Uppskriftir viku 1 (1)

Sjáðu myndir af vörum sem ég nota hér neðst á síðunni. Allt á innkaupalista fæst í Nettó.


Orkuríkir og fljótlegir kínóagrautar

1 1/2 bolli kínóaflögur eða soðið kínóa
1 3/4 bolli vatn
1 bolli möndlumjólk (eða notið meira af vatni)
1/2 tsk vanilluduft
1/2 tsk salt

Berið fram með:
kókosmjólk (best er að geyma dósina í kæli yfir nóttu)
möndlumjólk
chiafræjum
tahini

Fyrir jarðaberjagraut:
1/2 bolli sykurlaus jarðaberjasulta
fersk mynta og jarðaber

Fyrir kakógraut:
bnananasneiðar
kanil og kakóduft eftir smekk

Aðferð:
Ef þið notið kínóaflögur setjið þær í pott ásamt vökva. Leyfið suðu að koma upp, lokið pottinum og lækkið undir hellunni. Leyfið að malla í 5-10 mín. Hrærið þá vanillu og salti saman við. Ef þið notið kínóa tekur það 15 mín að sjóða en einnig er sniðugt að forsjóða kínóa og er þá nóg að hita það upp með örlítið af vökva. Berið fram með kókosmjólk eða þeyttum kókosrjóma, chiafræjum og tahini. Njótið sem lúxusmorgunverð!

Hollráð:
Kínóaflögur líkjast hefðbundu haframjöli og taka aðeins 5 mín að sjóða. Setjið kínóaflögur ásamt vökva í pott nóttina áður svo grauturinn sé fyrr að eldast.

Krydduð buff með ljúfri tahinidressingu

Rauðrófubuff:
1 bolli rauðrófur eldaðar
½ bolli soðið kínóa
1/4 bolli kasjúhnetur
1 hörfræegg (3 tsk hörfræ hrært samanvið 2 tsk vatni og látið liggja í 15 mín)
1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk sítrónusafi
3 msk kókosolía, brædd eða fljótandi
1 tsk chili mauk (fæst hjá Bændur í bænum, einnig má nota sambal olek eða 1/2 ferskt chili)
1/2 tsk eðalkrydd frá Pottagöldrum
1/2 tsk pipar
1/2 tsk salt
1/2 bolli möndlumjöl (til að velta uppúr í lokin)

Tahinidressing:
(Sjá “Avókadósalat” uppskriftina)

Salatið:
handfylli spínat/grænkál/klettasalat
1/2 bolli soðið kínóa
ferskir tómatar
fersk steinselja
avókadó

Aðferð:
Sjóðið rauðrófur í potti í 50 mín. Sjóðið 1 bolla af kínóa í potti í 15 mín í 2 bollum af vatni. Einnig er hægt að kaupa forsoðnar rauðrófur og kínóa til að flýta fyrir.

Hitið ofninn í 180 gráður.

Setjið öll innihaldsefni í rauðrófubuffin nema möndlumjöl í matvinnsluvél eða blandara þar til vel blandað.

Setjið næst bökunarpappír á ofnplötu. Takið lófafylli af deiginu og mótið í lítil buff. Veltið uppúr möndlumjöli og leggið á bökunarpappír.

Eldið í 15 mín á hvorri hlið, 30-40 mín í heildina.

Takið fallega salatskál og fyllið með salati. Raðið yfir kínóa, tómötum, rauðrófu buffi, kryddjurtum og avókadó sneiðum. Berið fram með tahinidressingu.

Hollráð:
Buffin geymast vel í kæli út vikuna. Einnig er hægt að setja buffið á glútenlaust brauð sem litla borgara með sykurlausri BBQ sósu og ferskum tómötum.

Avókadósalat með truflaðri tahinidressingu

handfylli græn salatblöð að eigin vali
1 avókadó
4-6 radísur
1⁄2 nori örk (sushi blöð)
handfylli þari
handfylli graskersfræ

Tahini dressing:
1⁄4 bolli tahini
1⁄4 bolli vatn
1 tsk sítrónusafi
1 tsk eplaedik
1 tsk miso (hægt er að nota 1 tsk meira af tahini í stað miso. Miso-ið gefur þó góða viðbót í dressinguna)

Aðferð:
Setjið öll hráefni í tahinidressingu í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Ég geymi gjarnan dressinguna í sprautubrúsa í kæli og nota á salöt, grænmeti eða á hrökkex frá Mama’s gone crackers (fæst í Nettó).

Skerið radísur í þunnar sneiðar og avókadó í ferninga. Skerið nori örkina eða rífið.

Veljið fallegan disk fyrir salatið og setjið 1-2 tsk af miso tahini dressingu þar ofaná. Raðið salatblöðum yfir, avókadó, radísum, rifinni nori örk, þara og graskersfræjum. Bætið við dropa hér og þar af tahinidressingu. Njótið og notið sem forrétt, meðlæti eða léttan hádegisverð.

Bakað eggaldin með tahini og ferskum tómötum

2-3 eggaldin (fer eftir stærð)

Kryddlögur fyrir eggaldin:
3 hvítlaukar saxaðir
2 msk olífuolía
1 sítróna, kreist
2 tsk papríka
2 tsk kóríander
1 tsk chiliduft
salt og pipar

Kryddaðar kjúklingabaunir:
240 gr eða 1 dós kjúklingabaunir, soðnar
1/2 tsk paprikuduft
1/2 tsk chili
salt og pipar eftir smekk
1 msk olífuolía

Berið fram með:
2 msk af brúnu tahini
1/2 bolli kirsuberjatómötum
1 litlum rauðlauk
handfylli af ferskri steinselju

Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður.

Hrærið saman kryddblöndunni og penslið yfir eggaldinið. Setjið á ofnplötu og bakið í ofni í 40 mín eða þar til eggaldinið er alveg mjúkt í gegn.

Velltið kjúklingabaunum uppúr kryddi og olífuolíu og bætið við á ofnplötuna eftir 20 mín.

Skerið kirsuberjatómata og steinselju smátt. Skerið rauðlauk í strimla. Hrærið saman í skál fyrir hressandi salsa.

Takið matardisk og dreifið 1 msk tahini yfir miðju þess. Raðið eggaldin og skreytið með kjúklingabaunum og salsa. Borið fram með tahini.

Kínóasalat með bökuðu grænmeti og ristuðum möndlum

3 dl þurrt kínóa
5-6 dl vatn
1 grænmetiskraftur

Möndlukurl:
1 dl möndlur
1-2 msk ólífuolía
1/2-1 tsk Maldon salt eða Himalayasalt

Marínerað grænkál: 

grænkál
ólfíuolía
sítrónusafi
salt

Bakað grænmeti:
1 sellerírót (eða annað grænmeti sem ykkur þykir gott bakað)
1 sæt kartafla, ólífuolía og salt

Aðferð: 
Skolið kínóafræin vel. Setjið kínóa í pott ásamt vatni og látið vatnið flæða örlítið yfir fræin. Bætið grænmetiskrafti saman við og sjóðið í uþb. 10 mín. Fylgist með hvort það þurfi að bæta við vatni. Hrærið vel öðru hverju svo það brenni ekki í botninn.
Takið pottinn af hellunni og færið kornið yfir á fat eða ofnskúffu meðan það þornar.

Fyrir bakaða grænmetið: Hitið ofninn í 180° Skerið grænmetið í litla bita. Hellið ólífuolíunni yfir og saltið. Bakið við 180 ° í 30 mín (með blæstri)

Fyrir möndlukurlið: Bakið í ofni við 180° í 10 mín. Takið úr ofninum, setjið í litla matvinnsluvél og malið örstutt. Setjið smá ólífuolíu yfir og saltið.

Fyrir grænkálið: Rífið kálið af stilkunum og skerið í litla bita. Setjið í skál og setjum smá ólífuolíu yfir. Kreistið smá sítrónusafa líka yfir og gott salt. Blandið svo öllu saman og njótið!

Uppskrift er fengin frá Oddrúnu hjá heilsumamman.is

Uppskriftir viku 1 (2)

Allar uppskriftir eru fyrir tvo og er innkaupalistinn í samræmi við það. Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó og mæli ég með vörunum þeirra. Fyrir myndir af þeim vörum sem ég nota smelltu hér.

Ath. Lestu yfir uppskriftirnar vandlega áður en þú kaupir inn þar sem stundum er val um að bæta við fæðu sem er ekki á listanum hér að neðan.

Ferskir ávextir/grænmeti:
1 poki spínat, grænkál eða klettasalat
1 poki grænkál
1 sellerírót
1 sæt kartafla
2-3 eggaldin
2 avókadó
kirsuberjatómatar 1 bakki
2-3 tómatar
rauðrófa (1 bolli eldaðar)
4-6 radísur
4 hvítlaukar
1 sítróna
1 rauðlaukur
1 banani
jarðarber

Ferskar kryddjurtir:
mynta
steinselja

Þurrmatur/dósamatur:
kínóaflögur eða soðið kínóa
möndlumjöl (t.d. frá H-Berg úr Nettó)
kókosmjólk (frá Coop Anglam)
kjúklingabaunir 1 dós (frá Biona)
tahini (frá Monki)
sykurlaus jarðarberjasulta (fyrir jarðarberjagraut) (frá GoodGood Brand)
1⁄2 nori örk (sushi blöð)
þari
dökkt lífrænt kakóduft (fyrir kakógraut)

Hnetur/möndlur/fræ:
chiafræ (frá himneskri hollustu)
kasjúhnetur (frá himneskri hollustu)
graskersfræ (frá himneskri hollustu)
hörfræ (frá himneskri hollustu)
möndlur (frá himneskri hollustu)

Sósur/olíur/annað:
ólífuolía (frá himneskri hollustu)
kókosolía (frá himneskri hollustu)
möndlumjólk (frá Biona eða Isola)
sítrónusafi (frá Himneskri Hollustu)
eplaedik (frá himneskri hollustu)
chili mauk eða sambal olek einnig má nota ½ ferskt chili
miso (eða nota 1 tsk af tahini í staðinn)
stevía með vanillubragði eða vanilludropar (stevía frá GoodGood Brand)

Krydd:
vanilluduft (frá himneskri hollustu eða Rapunzel)
salt
pipar
kanill (frá himneskri hollustu)
eðalkrydd frá Pottagöldrum
papríkuduft (frá himneskri hollustu)
kóríander (krydd)
chiliduft
grænmetiskraftur (frá himneskri hollustu)

Myndir af vörum á innkaupalista.
Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó 

bio-vaniliq-na-prah-rapunzelpicAlpro-Drink-Roasted-Almond-Unsweetened-1L-edge-UK2_540x576_p

146442        Stevia_orginal_grande-300x300        tahin_ecol_gico_monki_650dscn1959_2

Quinoa_natureCrops

image_2291-1       Jarðaberjasulta_previewDöðlur 500 gr_previewGraskersfrae__previewKex original_previewChiafrae200gr_preview    5694310930406 Kínóa flögur     _MG_9205