Uppskriftir og innkaupalisti vika 2

 

uppskriftir vika 2Sjáðu myndir af vörum sem ég nota hér neðst á síðunni. Allt á innkaupalista fæst í Nettó.

Espressó og kakó hafrar

2 bollar glúteinlausir hafrar eða tröllahafrar
4 bollar möndlumjólk eða kókosmjólk
1/2 bolli sterkt svart kaffi eða 1 tsk grænt kaffiduft (fæst m.a í hylkjum) eða kaffi extract
8 msk chia fræ
6 msk kakóduft
4 tsk kakónibbur
2 dropar stevia eða 2 döðlur skornar smátt
1 vanilludropi

Setjið öll innihaldsefnin í krukku, setjið lok yfir og geymið yfir nóttu. Ef þið notið kaffi extract verið viss um að bæta við allt að 1/2 bolla af möndlumjólk.

Þetta má borða kalt eða örlítið upphitað í potti. Njótið!

Fljótlegt salat með eplum og tahini

1 handfylli af klettasalati
1 handfylli af lambhagasalati
2 tómatar skornir
1/4 gúrka skorin
1 bolli eldað kínóa
½ bolli kjúklingabaunir (einnig má nota sykurlausan keyptan hummus)
1/2 bolli möndlur, saxaðar
1 stór graslaukur
2 lífræn epli skoluð og skorið í sneiðar með hýðinu*
4 msk tahini
2 msk ólífuolía
pipar

Setjið 1/2 bolla af kínóa í pott ásamt 1 bolla af vatni og sjóðið í 15 mín eða þar til kínóað hefur bólgnað út og er fallegt. Þegar það er orðið fallegt setjið það þá til hliðar og geymið.

Skerið allt nema eplin og setjið í veglega skál eða salatbox. Bætið við kínóa. Mér finnst gott að setja salatið í hring og gera pláss í miðjunni og setja volgt eða kalt kínóa þar. Eplin eru skorin í fallegar sneiðar og sett ofaná.

Blandið tahini saman við olífurolíu í skál. Setjið sósuna svo yfir salatið og njótið.

* Við skiljum eftir hýðið þar sem mikil næring kemur frá hýðinu úr lífrænu epli. Sem millimál má borða epli og dýfa í tahini eitt og sér.

Frískandi orkuskot

1 bolli grænt te (kælt)
4 msk chiafræ, útbleytt
50g möndlur (c.a handfylli)
1 bolli kókosmjólk
2 ferskjur* (fjarlægið kjarnan) eða notið epli
1 1/2 bolli jarðaber, frosin
1 1/2 bolli frosinn ananas
1 banani, frosinn eða ferskur
1 tsk tahini

Lagið grænt te og kælið. Blandið öllum innihaldsefnunum saman í blandara. Bætið við vatni ef eftir þörfum.

Kínóa- og kjúklingasalat með sætri kartöflu

2 kjúklingabringur (eða notið Oumph! Pure bita ef þið viljið sleppa kjöti)
1 bolli kínóa eldað
tvö góð handfylli af klettasalati
1 bolli jarðaber skorin
1 epli, skorið smátt
1 avókadó, skorið í teninga
1 bolli kirsuberjatómatar
handfylli af myntu og basil

Sítrónudressing á salat:
safi úr einni sítrónu (má nota gríska jógúrt ef þú vilt hafa sósuna þykkari)
2 tsk ólífuolía, salt og pipar og 1 dropi stevia (val)

Kryddlögur á kjúkling:
3 tsk balsamikedik
salt og piar

2 sætar kartöflur

Hitið ofnin við 220 gráður. Skerið sætu kartöfluna í sneiðar, kryddið með pipar og salt og setja á bökunarpappír með olíu. Eldið í 30 mín eða þar til mjúkar í gegn

Eldið næst kínóa í potti með 1 bolla af kínóa á móti 2 bollum af vatni. Sjóðið í 15 mín og slökkvið undir. Leyfið kínóanu að kólna örlítið eða liggja í pottinum.

Setjið kjúklingabringurnar í skál með 1 tsk af balsamikediki, salti, pipar og settu þar í ofn eða grill þar til þær eru full eldaðar. (c.a 12-15 mín)

Skerið allt grænmetið í salatið og setjið það allt saman í veglega salat skál.

Setjið sítrónu, ólífuolíu eða jógúrt, steviu dropa/sætu, salt og pipar í litla skál.

Þegar kjúklingurinn er tilbúinn, Skerið hann þá í ílanga strimla. Bætið kínóa, sætum kartöflum, kjúklingastrimlum og dressingunni í salatskálina og berið fram með ferskum kryddjurtum ofan á!

Föstudagspizzan

Botninn:
3 dl spelt, gróft og fínt
1,5 tsk vínsteinslyftiduft
1 msk ólífuolía
1 dl volgt vatn
salt

Álegg:
1 pk Oatly smurostur (eða notið geitaostur, mozarella ost)
1/2 pk Oumph! Pure* (eða notið kjúklingabita eða meira grænmeti t.d papríku, eggaldin)
Pítsusósa (munið að kaupa sykurlausa eða blandið ykkar eigin með: 1 bolla tómatsósa, 6 msk tómatpúrra, krydd að eigin vali: oreganó, basilikka, pipar)
sveppir
rauðlaukur
klettasalat
furuhnetur
avócadó (val)

*Oumph er sojabitar sem líkjast kjúkling á bragðið. Pure bitarnir eru einu sem eru án sykurs.

Kveikið á ofninum og stillið á 180°.

Gerið botn með því að blanda þurrefnunum vel saman og bætið vatninu út í. Bætið vatni og spelti við eftir þörfum. Fletjið deigið þunnt út í litlar, hringlaga pítsur eða eina stóra, kassalaga pítsu. Setjið deigið á bökunarplötu með bökunarpappír.

Smyrjið botninn með pítsusósu. Raðið áleggi ofan á og osti. Ef þið notið oumph! Er gott að steikja þá aðeins á pönu og krydda t.d með tímían og rósmarín. Ef þið notið oatly smurostinn þarf að bræða hann í pott áður.

Setjið pítsuna í ofninn og bakið í 15-20 mín eða þar til osturinn hefur brúnast.5. Gott er að þurrrista furuhneturnar á meðan pítsan er í ofninum og búa til hvítlauksolíu úr ólífuolíu og ferskum hvítlauk.Þegar pítsan er komin úr ofninum er hún toppuð með klettasalati, furuhnetum og jafnvel avócadó. Bætið hvítlauksolíu út á ef þið viljið.

Uppskrift er frá Þórdísi og Aron hjá Grænkerum.

SYKURLAUS ÁSKORUN 2019 (3)

Allar uppskriftir eru fyrir tvo og er innkaupalistinn í samræmi við það. Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó og mæli ég með vörunum þeirra. Fyrir myndir af þeim vörum sem ég nota getur þú farið hér neðar á síðunni.

Ath. Lestu yfir uppskriftirnar vandlega áður en þú kaupir inn þar sem stundum er val um að bæta við fæðu sem er ekki á listanum hér að neðan.

Ferskt

1-2 pokar klettasalat
1 poki lambhagasalat
2 tómatar
1 askja kirsuberjatómatar
1/4 gúrka
1 stór graslaukur
3 epli (ég mæli með lífrænum)
2 ferskjur (eða notið epli)
1 banani (má líka nota frosinn banana)
2-3 kjúklingabringur (eða notið Oumph! Pure bita – ath að pure eru þeir einu sem eru án sykurs!)
1 askja jarðaber
1-2 avócadó
mynta
basil
1 sítróna
grísk jógúrt (val)
2 sætar kartöflur
1 pk oatly smurostur (eða notið geitaost/mozarella ost)
sveppir
rauðlaukur
hvítlaukur (val ef þið viljið hvítlauksolíu með pizzunni)

Þurrmatur/annað

glúteinlausir hafrar (eða tröllahafrar)
spelt
furuhnetur (nema sé til frá viku 1)
vínsteinslyftiduft
1 möndlumjólk
1-2 dósir kókosmjólk
svart kaffi eða 1 tsk grænt kaffiduft (fæst m.a í hylkjum) eða kaffi extract
chia fræ (t.d. frá Sólgæti – nema sé til frá viku 1)
kakóduft (t.d. frá Sólgæti – nema sé til frá viku 1)
kakónibbur (t.d. frá Sólgæti – nema sé til frá viku 1)
stevia (eða döðlur) (nema sé til frá viku 1)
vanilludropar (nema sé til frá viku 1)
kínóa (t.d. frá Sólgæti – nema sé til frá viku 1)
kjúklingabaunir (t.d. frá Sólgæti eða Biona- nema sé til frá viku 1)
möndlur (t.d. frá Sólgæti – nema sé til frá viku 1)
tahini (t.d. frá Biona eða Sunita)
grænt te (t.d. frá Yogi tea)
frosin jarðaber
frosinn ananas
balsamikedik (T.d. frá Biona – nema sé til frá viku 1)
pítsusósa (munið að kaupa sykurlausa eða blandið ykkar eigin með: 1 bolla tómatsósa, 6 msk tómatpúrra, krydd að eigin vali: oreganó, basilikka, pipar)
extra-virgin ólífuolía (nema sé til frá viku 1)
salt og pipar (nema sé til frá viku 1)

Myndir af vörum á innkaupalista.
Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó 

Screenshot 2019-01-25 at 14.32.02Screenshot 2019-01-25 at 14.33.57  Screenshot 2019-01-25 at 14.31.01Screenshot 2019-01-25 at 14.35.00     Sol_Kinoa_mask_2Sol_dodlur_maskBiona, hvítt lífrænt tahini Screenshot 2019-01-31 at 14.25.30    Ecomil_möndlumjólkDoves_SpeltDoves_vínsteinslyftiduftKoko_kókosmjólk sykurlaus          Biona_balsamic vinegar        Sunita tahini brownKAL_Stevia með vanillubragðiBiona_kókosmjólk í dósYogi tea_green tea blanda   Screenshot 2019-01-25 at 14.34.10

Untitled design