Uppskriftir og innkaupalisti vika 1

 

Uppskriftir viku 1

Sjáðu myndir af vörum sem ég nota hér neðst á síðunni. Allt á innkaupalista fæst í Nettó.

Myntu- og súkkulaðisjeik

~ uppskrift fyrir 2

3 grænkálsblöð
1 avókadó
handfylli af ferskri myntu
2 tsk chiafræ
2 msk kakónibbur
4 döðlur eða 6 dropar stevía
100g möndlur eða möndlumjólk
1 msk lífrænt kakó (val)
vanilludropi (val)
3 bollar vatn*
klakar, ef þið viljið hafa hann kaldan

Setjið allt í blandara og njótið.

*Athugið að ef þið notið möndlumjólk í staðinn fyrir heilar möndlur er því bætt útí í stað vatns.

Regnbogasalat með sítrónudressingu

~ uppskrift fyrir 2

3 góð handfylli af grænu salati grænkáli/spínati/ljósgrænu salati
1 papríka
1/2 gúrka, skorin
2 tómatar eða 6-8 kirsuberja/heilsu tómatar
1 bolli gulrætur, skrældar
1 bolli rauðkál, skrælt
1 hvítlaukur
1 avókadó
240 gr kjúklingabaunir, eldaðar (eða ein dós)
fersk mynta og/eða aðrar kryddjurtir

Sítrónudressing
safi úr einni sítrónu
2 tsk ólífuolía
salt og pipar
1 dropi stevia (val)

1. Raðið græna salatinu fallega í stóra skál sem þú vilt bera það fram í. Raðið svo öllu hinu í flokka ofan á salatið.

2. Blandið í sítrónudressinguna og hellið yfir. Einnig má nota 1 msk balsamik edik og 2 msk ólífuolíu fyrir dressingu.

Besta súkkulaðibrownie í heimi með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa

1 ½ bolli valhnetur (eða notið möndlur eða pekanhnetur t.d frá sólgæti)
½ bolli kókosmjöl eða kókoshveiti (ég notaði fínmalað kókosmjöl)
1 ½ bollar medjool döðlur (ég kaupi í grænmetiskælinum í Costco)
½ bolli hemp fræ
2 msk lífrænt kakó
salt

Möndlusmjörkrem
½ bolli möndlusmjör (eða ein 179 gr krukka)
2 msk kókosolía brædd
3 msk kókoskrem (ég notaði creamed coconut frá Cocofina sem fæst í bleikum kassa í Nettó)
salt

Ofaná 
poppað kínóa (quinoa puffs, frá Nature crops sem fæst í Nettó)

1. Leggið hnetur í bleyti yfir nóttu eða í 5 klst.

2. Bræðið kókosolíu og kókoskrem í vatnsbaði.

3. Skolið af hnetunum og vinnið þær í matvinnsluvél þar til muldar niður. Bætið við kókosmjöli og malið niður fínt. Sameinið rest af þurrefnum í matvinnsluvélina og vinnið. Bætið við döðlum ef þið þurfið en blandan ætti að mynda deigkúlu.

4. Þjappið botninn í 15×15 cm kassalaga form fyrir þykkar brownies, notið stærra form fyrir þynnri súkkulaðiköku.

5. Skolið af matvinnsluvél. Setjið öll hráefnin kremsins í matvinnsluvél og vinnið.

6. Hellið kreminu yfir botninn og dreifið poppuðu kínóa yfir. Frystið í að minnsta kosti 3 klst.

7. Skerið í ílanga bita og njótið. Geymist ferkst í kæli í allt að viku og lengur í frysti (geymist í allt að 3 mánuði eða lengur í frysti).

Kakónibbu-ristaður lax

~ uppskrift fyrir 2

Þessi lax á kemur bragðlaukum sérlega á óvart! Grillaður lax og stökkar kakónibbur, gerist ekki betra!!

2 laxaflök, með skinni
extra-virgin ólífuolía
salt og pipar
¼ bolli ristaðar kakónibbur (ekki hráar nibbur)*

1. Berið ólífuolíu á laxinn og kryddið með salti og pipar. Dreifið jöfnu lagi af kakónibbunum yfir og ýtið þeim varlega inn í laxinn svo þær festist.

2. Hitið grillið, setjið laxinn beint á og eldið í c.a 7-12 mín (fer eftir stærð laxaflaka). Ef þið viljið elda laxinn á pönnu má hita 2 tsk af olíu á stórri teflonpönnu á yfir miðlungs hita, setja laxinn á og elda með roðhliðina niður. Laxinn er eldaður ef þið sjáið þunna bleika línu í miðjunni á flakinu.

3. Berið fram með salati, skrældu rauðkáli og kínóa.

* Margar kakónibbur á markaðnum eru ristaðar, en það er hægt að fá þær hráar svo skoðaðu umbúðirnar vel. Ef þú kaupir þær hráar hitaðu þær þá á pönnu með kókosolíu í 2-3 mín. (þetta er mjög mikilvægt skref) Innblásturinn af uppskriftinni sótti ég frá Chef Jacques Torres.

Ef þið borðið ekki lax mæli ég með þessum geggjuðu blómkálsvængjum í staðinn!

15 mín. fettuccine “osta” pasta með stökku blómkáli

Fettuccine pasta (ég notaði glúteinlaust soybauna fettuccine pasta frá a la eco)

Vegan “osta” sósan
1 bolli kókosmjólk (ég nota frá coop í Nettó)
1/2 bolli rifinn vegan parmesan (eða notið hefðbundinn)
1 msk næringarger
1 hvítlauksrif eða einn perlulauk
chili á hnífsodda
1 tsk dijion
klípa af salt
nokkrir dropar stevia eða kókospálmanektar

Grænmetið
1 msk ólífuolía
2 hvítlauksrif (ég notaði tvo perlulauka)
1/2 blómkál
1/2 kúrbútur
handfylli ferskt rósmarín

Borið fram með
spínati, furuhnetum, steinselju, parmesan

1. Setjið öll hráefni sósunar í blandarann og vinnið þar til silkimjúkt.

2. Sjóðið vatn í potti og leyfið suðu að koma upp. Bætið pasta útí vatnið, lækkið undir og sjóðið skv. leiðbeiningum á pakka c.a. 6-8 mín.

3. Hitið pönnu. Steikið hvítlauk, blómkál, kúrbít og kryddjurtir á pönnu og hrærið í 5-7 mínútur.

4. Hellið sósunni yfir pönnuna ásamt pastanu og hrærið örlítið. Leyfið að malla í nokkrar mínútur.

Uppskriftir viku 1 (1)

Allar uppskriftir eru fyrir tvo og er innkaupalistinn í samræmi við það. Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó og mæli ég með vörunum þeirra. Fyrir myndir af þeim vörum sem ég nota getur þú farið hér neðar á síðunni.

Ath. Lestu yfir uppskriftirnar vandlega áður en þú kaupir inn þar sem stundum er val um að bæta við fæðu sem er ekki á listanum hér að neðan.

Ferskt

1 búnt grænkál
1 poki spínat
salat að eigin vali (einnig má nota grænkál eða spínat)
2 avókadó
fersk mynta
1 paprika
1/2 gúrka
gulrætur
2 tómatar eða 6-8 kirsuberja/heilsu tómatar
rauðkál
1 sítróna
2 hvítlaukar
3 perlulaukar (einnig má nota hvítlauk)
2 laxaflök, með skinni
vegan parmesan eða parmesan
1 blómkál
1 kúrbítur
ferskt rósmarín
fersk steinselja

Þurrmatur/annað

furuhnetur
chiafræ (t.d. frá Sólgæti)
kakónibbur (t.d. frá Sólgæti)
valhnetur (einnig má nota pekanhnetur)
möndlur (einnig má nota möndlumjólk)
möndlusmjör (t.d. frá Biona)
kókosolía
kókoskrem (t.d. frá Cocofina eða Biona sem fæst í Nettó)
hemp fræ
poppað kínóa (quinoa puffs, t.d. frá BioFair eða Nature crops sem fæst í nettó)
lífrænt kakó (t.d. frá Sólgæti)
kjúklingabaunir eldaðar (eða ein dós, t.d. frá Biona)
kókoshveiti (t.d. frá Biona en einnig má nota fínmalað kókosmjöl)
kínóa
extra-virgin ólífuolía
stevia (einnig má nota kókospálmanektar)
döðlur (ég nota medjool döðlur)
vanilludropar
salt og pipar
kókosmjólk í dós (ég nota frá coop í Nettó)
næringarger (t.d frá KAL næringarger)
dijon sinnep (t.d frá Biona)
fettuccine pasta (ég notaði glúteinlaust soybauna fettuccine pasta frá a la eco)
chili
balsamik edik (val)

 

Myndir af vörum á innkaupalista.
Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó 

kokosolia_flatt    Screenshot 2019-01-25 at 14.35.00

Screenshot 2019-01-25 at 14.33.57Screenshot 2019-01-25 at 14.35.52Screenshot 2019-01-25 at 14.32.02Screenshot 2019-01-25 at 14.33.33     Screenshot 2019-01-25 at 14.33.11

Screenshot 2019-01-25 at 14.30.45   Screenshot 2019-01-25 at 14.32.34   Screenshot 2019-01-25 at 14.31.01     Screenshot 2019-01-25 at 14.34.42   Screenshot 2019-01-25 at 14.30.15 Screenshot 2019-01-25 at 14.35.28

 

 

Untitled design