S
ara Barðdal er Heilsumarkþjálfi frá Institute of Integrative Nutrition, einkaþjálfari frá ÍAK, viðskiptafræðingur og móðir. Sara hefur sérstakan áhuga á uppbyggingu einstaklingsins og hefur sótt ýmis námskeið í tengslum við það til að mynda frá Dale Carnegie.
Hér skrifar Sara um heilsuferðalag sitt og hvernig hún kom til með að vinna hjá Lifðu til fulls
Áhuginn á heilsu og mataræði kviknaði árið 2008 eftir að veikindi komu upp í fjölskyldunni. Í kjölfarið fór ég að kynna mér ýmis konar mataræði og gera tilraunir í eldhúsinu.
Þegar ég fór að prófa mig áfram og læra á sjálfa mig upplifði ég mitt “aha” augnablik þar sem ég áttaði mig á því að það sem við borðum skiptir öllu máli og að orðatiltækið “þú ert það sem þú borðar” er ekki bara eitthvað sem sagt er, það er dagsatt.
Eftir þessa upplifun var ekki aftur snúið. Ástríðan fyrir heilbrigðum lífsstíl og mataræði var komin til að vera og ég vildi vita meira.
Í dag hef ég fundið mitt jafnvægi og mitt líkamlega form hefur aldrei verið betra. Þetta er þó ferðalag sem sem líkur aldrei, lykilatriði er að venja sig á góða siði sem næra líkama og sál.
Mér finnst ótrúlega gefandi að sjá aðra ná markmiðum sínum í lífinu og vinna með sig andlega og líkamlega. Ég hef fulla trú á að allir eiga að geta upplifað heilsu og vellíðan í sínum líkama og það er mitt markmið að hjálpa einstaklingum að finna sitt jafnvægi svo þau geti upplifað hamingju og gleði í lífinu…og þannig lifað til fulls.
Sara á lítinn grísling sem elskar allt grænt en sjálf drekkur hún græna safa daglega. Hún býr í Danmörku og grínast sko ekki þegar kemur að hreyfingu.


