Truflaður vegan súkkulaðisjeik með fudge sósu
Grænmetis-grillveisla í sumar!
25th July 2017
5 fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg
8th August 2017
Grænmetis-grillveisla í sumar!
25th July 2017
5 fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg
8th August 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Truflaður vegan súkkulaðisjeik með fudge sósu

DSC_3291

Á huggulegum sunnudögum jafnast ekkert á við ís! En ef það er eitthvað tvennt sem ég fæ aldrei nóg af þá er það salat og ís!

Í dag deili ég með þér svo trufluðum súkkulaðisjeik að þú trúir varla að hann sé hollur!

Hann slær á hverja súkkulaðiþörf og ekki sakar hvað hann er fljótlegur því hann er aðeins úr 4 hráefnum!

DSC_3262

Eftir langan dag af myndatöku sátum við Tinna ljósmyndari alsælar í súkkulaðivímu. Mér leið eins og ég væri í Grease myndinni með mjólkurhristing í háu glasi með röri! Alveg truflað…

Lesa einnig:

DSC_3270

Ég skreytti minn sjeik með ristuðum heslihnetum og súkkulaði-fudge sósu.

DSC_3308

Truflaður vegan súkkulaðisjeik með fudge sósu


Ísinn

2 bananar, afhýddir og frosnir

2 msk dökkt lífrænt kakóduft

2-4 dropar stevia með súkkulaðibragði og 1 tsk kókospálmanektar/hlynsíróp

vanilluduft á hnífsoddi

örlítið af vatni eða möndlumjólk

  –

Súkkulaði-fudge

2 msk kakóduft

4 msk kókospálmanektar/hlynsíróp

2-4 dropar stevia

2 msk kókosolía, brædd í vatnsbaði og 1 msk vatn

salt eftir smekk

Ofaná

ristaðar heslihnetur eða möndlur

kakónibbur

1. Byrjið á að útbúa dásamlegu súkkulaði-fudge sósuna með því að bræða kókosolíuna. Setjið hráefni í blandara og vinnið á lágri stillingu þar til silkimjúkt. Bragðið og bætið við sætu eftir þörfum. Geymið í kæli á meðan þú útbýrð ísinn.

2. Skerið frosna banana í bita og vinnið í matvinnsluvél eða blandara ásamt rest af hráefnum þar til ísáferð fæst. Bætið við vökva eftir þörfum. Ef blandarinn er kraftlítill er matvinnsluvél betri kostur.

3. Hellið í fallegt glas og berið strax fram með súkkulaði-fudge sósu, ristuðum hesilhnetum og kakónibbum! Rör eða skeið virka vel. Njótið!

DSC_3291

Súkkulaði klikkar aldrei og þessi sjeik ekki heldur.

Ég vona að þið njótið góðs af elsku vinir!

Segið mér svo frá í spjallinu hér að neðan hvað ykkur þykir gott að gera til að slá á sætindaþörfina!


Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *