Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu
5 orkugefandi millimál til að taka með í vinnuna eða hafa í töskunni
29th May 2018
Vanillubollakökur með hindberjasmjörkremi (vegan og glútenlausar)
12th June 2018
5 orkugefandi millimál til að taka með í vinnuna eða hafa í töskunni
29th May 2018
Vanillubollakökur með hindberjasmjörkremi (vegan og glútenlausar)
12th June 2018
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu

Í matarboði sem ég var með um daginn var grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu sem sló heldur betur í gegn hjá fjölskyldumeðlimum.

Þessi uppskrift er ótrúlega einföld og tekur ekki nema 10 mínútur að undirbúa og síðan er fiskinum skellt á grillið. Ég bar hann fram með grilluðum kúrbítssneiðum, fersku granateplasalsa og hvítlauks-grillsósu sem er algjrölega ómótstæðileg með hvaða grill mat sem er í raun!

Á meðan fiskurinn er á grillinu er upplagt að útbúa stórt salat fyrir alla til að hafa með. Sætar kartöflur geta einnig verið gott meðlæti.

Lesa einnig:
3 sumarsalöt og dressingar sem þú verður að prófa
Fyllt sæt kartafla með hvítlaukssósu
Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu

Grillaður þorskur

Salsað er afar ferskt og notaði ég kirsuberjatómata og granatepli. Fyrir þá sem vilja spara tíma er hægt að kaupa granateplakjarna í Costo í stað þess að opna granateplið sjálf.

Grillaður þorskur

Þessi hvítlauksósa er nú eitthvað og finnst mér ómissandi að hafa með fiskinum og passar flestum grillmat! Þessi verður notað meira í sumar get ég sagt.

Grillaður þorskur

Marineringin sem ég notaði á þorskin er vel hægt að nota með öðrum fisk eins og bleikju eða lax í stað ef þess er óskað.

Grillaður þorskur

Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlauksósu

1 kúrbítur, skorinn langsum

salt og pipar

olía

1 þorskflak (c.a 600 gr)

Marinering á fiskinn

handfylli fersk steinselja

steinseljukrydd

smá laukduft

örlítið ferskt chilli (einnig má nota chilli krydd)

salt og pipar eftir smekk

1-2 msk ólífuolía (fer eftir stærð á fiski)

Granateplasalsa

1 bolli ferskir kirsuberjatómatar

½ bolli granatepli

¼ rauðlaukur, fínt saxaður

½ lime, kreist

handfylli fersk steinselja (c.a ¼ bolli)

Einföld hvítlauks-grillsósa

4 msk vegan majónes

1 msk sítrónusafi

handfylli ferskur vorlaukur eða graslaukur, smátt saxaður

1 tsk hlynsíróp eða hunang (einnig má nota steviu)

1 hvítlauksrif, pressað, eða hvítlauksduft

8 klípur svartur pipar (eða meira eftir smekk)

salt eftir smekk

1. Hitið grillið.

2. Skerið kúrbít langsum með ostaskera og raðið á disk. Kúrbíturinn ætti að vera hæfilega þykkur enda ef hann er of þunnur er erfiðara að grilla hann.  Penslið kúrbítinn og kryddið með salti og pipar.

3. Útbúið næst marineringu fyrir fiskinn með því að hræra öllu saman í skál. Leggið þorskflakið á grillbakka eða á álpappír og penslið fiskinn með kryddolíunni.

4. Nú má grilla fiskinn og kúrbítsneiðarnar. Raðið kúrbítsneiðum á grillið, þær taka c.a 2 mín á hvorri hlið en fer eftir hitastigi á grilli. Grillið fiskin í 10-15 mín eða þar til hann er eldaður í gegn.

5. Á meðan má undirbúa granateplasalsa. Opnið granatepli og fjarlægið kjarnana til að nota í salsað. Skerið kirsuberjatómata gróflega, saxið rauðlaukinn og steinseljuna og sameinið í skál. Kreistið lime safa yfir og kryddið með chilli, salt og pipar eftir smekk.

6. Setjið þá hráefni hvítlauks grillsósunar í skál og hrærið saman með gafli.

7. Berið fram með fersku salati og njótið.

Ég vona að þú prófar réttinn og ekki hika við að segja frá hér í spjallinu að neðan hvernig smakkast! Það er alltaf gaman að heyra frá þér!

Hollusta ætti alls ekki að vera tímafrek eða flókin og vona ég að þessi réttur gefi þér innblástur að hafa það hollt í sumar!

Það er alltaf gaman að heyra frá einstaklingum á Frískari og Orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu hjá mér þar sem þau deila árangri sínum og upplifun, en mig datt í hug að deila því með þér (aldrei að vita nema þú viljir slá til og vera með fyrir frískari og orkumeiri líðan í sumar!)

Nú er ég búin að vera à þessu fæði í viku. Er búin að missa 2.5 kg. Takk fyrir mig. 

– Bryndís Þórarinsdóttir

Nammi nammi namm..? sjúklega góðar uppskriftir….

– Guðbjörg Sigríður Kristjánsdóttir

Bleiki drykkurinn í morgunmat 24 dagar liðnir. Ég finn fyrir meiri orku – sykurlöngun fer minnkandi. Gleðilegt sumar ?

– Hildur Eiríksdóttir

Námskeiðið felur í sér 30 daga matseðil (og helling af auka uppskriftum!) og skipulagið sem þarf til að koma sér af stað með lífsstíl sem endist. Lokað er fyrir námskeiðið sem stendur en hægt er að skrá sig á biðlista HÉR.

DSC_5190small

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

1 Comment

  1. Ragnhildur Guðný Guðmundsdóttir says:

    Já takk

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *