Uppskriftir og innkaupalisti vika 1

Sjáðu myndir af vörum sem ég nota hér neðst á síðunni.

VERTU MEÐ Í ÓKEYPIS SYKURLAUSRI ÁSKORUN

Chiagrautur með himneskum Chai kókosrjóma 

Chai rjómi:
1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk eða ósætuð hnetumjólk
1/4 tsk kanil
1/4 tsk malaðar kardimommur
1/4 tsk engiferduft
1/2 tsk rósapipar
1/2 tsk vanilluduft eða dropar
4-6 dropar stevia
salt
1 þroskaður banani, stappaður

Chiagrautur með banana:
1/3 bolli chia fræ
1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk
1/2 bolli vatn (eða meira, val)
1 þroskaður banani
1/2 tsk vanilludropar
2-4 dropar stevia

Súkkulaðikúlur:
1 bolli kínóa pops
4 msk kókosolía, brædd
1 msk kakó
6 dropar stevia (venjuleg eða með súkkulaðibragði)
1 tsk kókospálmanektar (val)
1 tsk pollen (Val)
vanilla

Ofaná:
Súkkulaðikúlur,  jarðaber og banani

1. Setjið öll hráefni í chai rjómann og vinnið í blandara þar til silkimjúkt. Geymið til hliðar í kæli.

2. Útbúið Chiagraut með því að vinna öll hráefni nema chia fræin í blandara. Hrærið varlega chia fræin samanvið án þess að vinna of mikið í blandaranum og geymið í kæli í 30 mín (eða lengur) svo úr verði þykkur chiagrautur.

3. Fyrir súkkulaðikúlur: Hitið ofninn á 170 gráður. Hrærið öllu vel saman í skál. Smakkið og bætið við hráum kókospálmanektar ef þið viljið hafa blönduna sætari, annars má sleppa. Bakið í 10-15 mín, þar til stökkt, eða setjið í þurrkuofn í 12 klst.

 

 

Ristað brauð með avókadó, á fjóra vegu

Lífrænt súrdeigsbrauð

Einfalt Avókadó:
Avókadó
1 msk olífuolía
1/2 tsk salt
chilli flögur

Avókadó og rauðlaukur:
1/2 Avókadó
1/4 rauðlaukur skorin þunnt
klettasalat
salt á hnífsodda

Avókadó og radísur:
1/2 Avókadó
Radisíur, smátt skornar
Svartur pipar

Lax og tómatmauk:
Avókadó, maukað
Léttreyktur lax skorin í þunnar sneiðar (graflax inniheldur sykur)

Tómatmauk:
handfylli kirsuberjatómatar
1/2 límóna
1/4 rauðlaukur smátt skorin
salt og pipar eftir smekk
Blaðspírur eða klettasalat

Ristið brauðsneið. Maukið avókadó eða raðið fallega á brauðið og kryddið eftir þeirri aðferð sem óskað. Njótið samstundis og gefið aðra sneið með!

Leiðbeiningar fyrir einfalt avókadó: Skerið avókadó og maukið saman með rest af hráefnum í skál. Setjið kjarnan úr avocadóinu fyrir miðju skálar til að fyrirbyggja að avókadómaukið verði brúnt á litin.

Leiðbeiningar fyrir lax og tómatmauk: Maukið avakadó með 1/2 kreistri límónu og kryddið með salt og pipar. Smyrjið á brauðsneið og bætið þunnum laxasneiðum ofaná. Útbúið tómatmauk með því að  skera kissuberjatómata smátt, 1/4 rauðlauk, salt, pipar, límónusafa. Bætið því við ofaná brauðið og skreytið með spírum eða klettasalati.

Hollráð: Frystið súrdeigsbrauðið í sneiðum til að geyma sem ferskast. Þá er auðvelt að taka út eina og eina sneið þegar það er skorið.

 

 

Próteinríkur berjabúst
~ Eflir ónæmiskerfi, bætir meltingu og minnkar sykurlöngun!

1 bolli möndlumjólk
handfylli af spínati
2 mandarínur (eða 1 appelsína)
1/2 bolli trönuber (frosin eða fersk)
½ bolli frosin berjablanda (hindber/bláber/brómber)
1 banani eða 1/2 avocadó
2 msk chia fræ, lögð í bleyti á móti 1/2 bolla af vatni í 15 mín. eða yfir nóttu
2 dropar stevia með vanillu eða/og hindberjabragði frá Via Health
1 tsk kókosolía
1 msk pollen/hemp fræ

Blandið öllu saman, bætið kókosolíu við út í og njótið!

 

 

Indverskur réttur

1 msk engifer, smátt söxuð
1 stór sæt kartafla, skorin í litla bita
2 gulrætur, skorin í litla bita
1 msk olía
1 msk kókosolía, t.d. frá Himneskri hollustu
1/2 tsk kanill
½ tsk salt
240 ml vatn
1 dl kasjúhnetur, t.d. frá Himneskri hollustu
Fersk steinselja eða kóríander til skrauts (má sleppa)

1. Setjið 1 msk af olíu á pönnu og steikið engifer í um mínútu.  Setjið grænmetið því næst út á pönnuna ásamt döðlunum. Kryddið og léttsteikið.

2. Hellið vatninu yfir og látið malla í 10 mín eða þar til að kartöflurnar eru tilbúnar.

3. Stráið kasjúhnetum og ferskum kryddjurtum yfir og njótið.

Uppskrift er frá Berglindi hjá Gulur, rauður, grænn og salt. www.grgs.is

 

Vegan ostapasta með sveppum og grænum baunum 

1/2 bolli kínóa eða spelt penne pasta

1 bakki íslenskir sveppir
1 rauðlaukur
2 hvítlauksgeirar
1 msk olífuolía
1-2 stiklar ferskt rósmarín
1/2 tsk timían krydd
1/2 tsk marjoram krydd
1/2 bakki eða 2 handfylli grænar baunir  í strimlum (Fæst í grænmetiskæli) eða aspas
2-4 msk vegan smurostur  (ég notaði frá goveggie sem fæst á Gló og er sú vara unnin úr kókosolíu og sykurlaus) eða notið sykurlasan rifin vegan parmesan eða smurost ef þið neytið mjólkurafurða
2-3 kirsuberjatómatar (val)

1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum.

2. Ef þið viljið hafa tómata með, hitið ofn við 180 gráður og setjið þrjá tómata inn í 20 mín.

3. Hitið pönnu á hellu með örlítið af vatni. Skerið rauðlauk smátt og pressið hvítlauk. Brúnið laukinn á pönnu, ætti að taka nokkrar mínútur. Bætið við olífuolíu, kryddum, sveppum og grænum baunum.

4. Hrærið samanvið í um 5-7 mín og bætið við vegan smurosti. Hrærið aðeins og berið fram strax með ofnbökuðu tómötum. Einnig má borða kalt.

VERTU MEÐ Í ÓKEYPIS SYKURLAUSRI ÁSKORUN (1)

Innkaupalisti vika 1

Allar uppskriftir eru fyrir tvo og er innkaupalistinn í samræmi við það. Allt á innkaupalistanum fæst í verslunum Nettó og mæli ég með vörunum þeirra. Fyrir myndir af þeim vörum sem ég nota getur þú farið hér neðar á síðunni.

Ath. Lestu yfir uppskriftirnar vandlega áður en þú kaupir inn þar sem stundum er val um að bæta við fæðu sem er ekki á listanum hér að neðan.

Ferskt:
klettasalat
engifer
spínat (1-2 pokar)
spírur (val)
1 poki radísur
kirsuberjatómatar (1-2 bakka)
2 rauðlaukar
2-3 bananar
2 mandarínur eða 1 appelsína
hvítlaukur
ferskt rósmarín
1 bakki sveppir
1 stór sæt kartafla
2 gulrætur
grænar baunir  í strimlum (Fæst í grænmetiskæli) eða aspas

Kæli:
léttreyktur lax
vegan ostur (t.d frá violife í Nettó eða frá Go Veggie frá Gló fákafen)

Frosið:

hindber (frá Coop Anglam)
kirsuber eða trönuber (frá Coop Anglam)

Annað:
lífrænt Súrdeigsbrauð (t.d frá brauð og co bakarí ) eða lífrænt rúgbrauð frá Biona
kínóa penne pasta (frá NatureC)
1 poki kasjúhnetur
kaldpressuð olífuolía (frá himneksri hollustu)
kókosmjólk í dós 2 (Frá coop Anglam, hvít dós)
chia fræ ( frá rainforest)
kókospálmanektar, síróp (t.d frá coconut palm nektar blossom, Cocofina í Nettó eða frá coconut secret í Gló fákafen )
kókosolía (frá Cocofina í Nettó eða frá Kiki health í Gló fákafen)
möndlumjólk (frá isona eða alpro)
hemp fræ (frá himneksri hollustu) eða pollen (frá green origins)
vanilludropar (frá ellyndale organics)
kínóa pops
kakó

Krydd:
kanil (frá himneskt hollustu)
engifer (frá himneskt hollustu)
chilliduft (frá himneskt hollustu)
kardimommur
salt og pipar
marjoram

 

 

Vörur frá verslun netto sem ég mæli með. Heilsudagar Nettó eru byrjaðir og ljúka 5.febrúar, um að gera að nýta sér góð kaup.

 

Rainforest-Foods-Chia-Seeds-218x300 bio-vaniliq-na-prah-rapunzelindex11262032-24743785335358065694310930048 HampfræGreen-Origins-Bee-Pollen-430x430Alpro-Drink-Roasted-Almond-Unsweetened-1L-edge-UK2_540x576_pisola-bio-almond-unsweetened-1l146442

Quinoa_natureCrops-1024x725front_WE-SPRD106_1024x1024-300x300tahin_ecol_gico_monki_6505694310930406Stevia_orginal_grande-300x300  80156      hh_kanill_Biona-Organic-Rye-Bread-500-g-Pack-of-6-0-5

creamy_original

dscn1959_2

 

 

Sérvörur frá verslun gliofákafen sem ég mæli sérstaklega með:

 

CoconutOil-FrontHempHRgo-veggie-cream-cheese CCS-00201-5

 

 

Bætiefni frá Kiki og Wild food Nutrition verða á 25% afslætti frá og með mánudegi 30.janúar í Gló fákafen

 

Wild-Nutrition-Food-Grown-Magnesium-60-Caps  index    index18749

 

KIKIMix-_web3