Uppskriftir og Innkaupalisti vika 2
Allar uppskriftir eru fyrir tvo og er innkaupalistinn í samræmi við það. Innkaupalistin fæst í verslunum Nettó og mæli ég með vörum þeirra. Sjá myndir af vörum Nettó sem ég nota neðst.
Uppskriftir
Síðsumardrykkur sem slær á sykurþörfina
~ fyrir tvo
2 bollar (c.a 2 góðar lúkur) af spínati
1/2 gúrka
1 banani
4 msk chia fræ
1 msk sólblómafræ (lögð í bleyti og skoluð fyrir bætta upptöku)
1 msk kókosolía
1 bolli frosin berja blanda (bláber/kræjuber/brómber/hindber)
2-4 dropar stevia með vanillubragði
1 1/2 bolli möndlumjólk
Setjið öll innihaldsefni í blandara og þeytið.
Fyllt sæt kartafla með spínati og hvítlaukssósu
~ fyrir tvo
2 sætar kartöflur
Fylling:
1/2 tsk kókosolía
1 stór rauður laukur, gróflega saxaður
2-3 hvítlauksgeirar, fínlega saxaðir
1 bolli kjúklingabaunir
fjögur handfylli spínat
pipar og salt eftir smekk
Hvítlauksósa:
1/2 bolli tahini
1/2 bolli vatn
1 hvítlauksgeiri, pressaður
1 sítrónau kreist
1/2 tsk paprikuduft (val)
salt eftir smekk
Hitið ofninn í 200°C eða útigrill. Skerið sætu kartöfluna til helminga. Setjið á ofnplötu og penslið yfir með olíu eða vefjið í álpappír og setjið á útigrill. Eldið í 25-30 mín eða þar til hægt er að stinga gafli inn í kartöfluna.
Setjið öll innihaldsefni í dressingu í blandara og hrærið. Útbúið því næst fyllingu með því að hita pönnu með örlítið af kókosolíu og snöggsteikja lauk, hvítlauk, kjúklingabaunir, spínat og krydda með salti og pipar. Steikið í um 5-7 mínútur. Skerið sætkatöflubáta langsum og þversum og þrústið til að opna, bætið við spínatfyllingu og dreifið hvítlauksósu veglega yfir.
Kökudeigshummus
Sykurpúkinn fór í afturábak kollhnís þegar Naglinn uppgötvaði kökudeigið og skeiðar og skálar sleiktar samviskulaust.
1 dós Biona kjúklingabaunir (mínus vökvi)
1-2 matskeiðar NOW erythritol
2 matskeiðar MONKI náttúrulegt hnetusmjör (eða cashew eða hvítmöndlu)
2 matskeiðar sykurlaus ISOLA möndlumjólk
klípa salt
1/4 tsk matarsódi
NOW Better Stevia French Vanilla dropar
5 g kakónibbur
Blanda öllu saman í matvinnsluvél eða blandara þar til orðið flauelsmjúkt eins og barnsrass. Hræra kakónibbum saman við. Hægt að nota sem ídýfu eða bara skófla í smettið með skeið.
Gestauppskriftin er frá Röggu Nagla ragganagli.com
Kínóa prótein skálin
~ fyrir tvo
2 bollar kínóa
Salt og pipar eftir smekk
3 góð handfylli spínat
Kjúklingabaunir
Rauðkál
1/4 rauðlaukur
1/2 tsk paprikukrydd
Fersk mynta (val)
2 msk tahini eða hvítlauksósa frá degi 1
Setjið 4 bolla af vatni á móti 2 bollum af kínóa í pott, látið sjóða og lækkið undir. Eldið í 15 mínútur eða þar til kínóað er tilbúið. Leyfið að kólna örlítið og kryddið með pipar og salti. Kryddið kjúklingabaunir með papriku. Takið næst skál og raðið salati, rauðkáli, rauðlauk, kínóa, kjúklingabaunum, myntu og dreifið hvítlauksósu yfir.
Espressó og kakó „yfirnóttu“ hafrar
~ fyrir tvo góða skammta
2 bollar glúteinlausir hafrar eða tröllahafrar
4 bollar möndlumjólk/rísmjólk/kókosmjólk
1/2 bolli sterkt svart kaffi eða 1 tsk grænt kaffi duft (fæst m.a í hylkjum) eða kaffi extract
8 msk chia fræ
6 msk kakóduft
4 tsk kakóanibbur
2 dropar stevia með vanillubragði frá Via health eða 2 döðlur skornar smátt
Setjið öll innihaldsefnin í krukku, settu lok yfir og geymdu yfir nóttu. Ef þú notar kaffi extract vertu viss um að bæta við allt að 1/2 bolla af möndlumjólk. Þetta má borða kalt eða örlítið upphitað í potti. Njóttu!
Innkaupalisti vika 2:
Ferskt
2 poki spínat
2 sítróna
1 gúrka
1-2 bananar
2 sætar kartöflur
1 rauðlaukur
hvítlaukar
Þurrmatur/Annað
1 poki kakónibbur (frá Rainforest)
1 möndlumjólk (frá Isola eða Alpro er sykurlaus)
NOW Better Stevia French Vanilla dropar (eða notið stevia frá viku 1)
1 poki Erythritol (frá Now)
Matarsódi
1 poki glúteinlausir hafrar eða tröllahafrar
Svart kaffi eða 1 tsk grænt kaffi duft sem duftfromi frá Actigreen
2 dósir Kjúklingabaunir (frá Biona)
Kæli
1 poki frosin berjablanda ( frá Dit Valg coop)
Krydd til að eiga
Salt
Pipar
Paprikuduft
Það sem þið ættuð að eiga frá síðustu viku og þurfið að nota núna:
rauðkál
fersk mynta
kakóduft (frá Rainforest)
chia fræ (frá Rainforest)
kínóa (frá Nature crops þykir mér best)
sólblómafræ ( 140 gr frá Náttura)
tahini (frá Monki)
stevia með vanillubragði frá Via health
hnetusmjör (Einnig má nota kasjú- eða hvítmöndlusmjör frá Monki)
kókosolía frá himneskri hollustu
Hér sérð þú þær vörur sem ég nota m.a og fást í Nettó.
Ert þú með spurningar um áskorun? Komdu yfir á spurt og svarað síðuna hér.












