Sumarsalat með jarðaberjadressingu
Forsala á uppskrifabók og bónusar!
3rd July 2019
Ferskir sumarkokteilar
23rd July 2019
Forsala á uppskrifabók og bónusar!
3rd July 2019
Ferskir sumarkokteilar
23rd July 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Sumarsalat með jarðaberjadressingu

Mér finnst salöt algjörlega ómissandi á sumrin, bæði er svo margt í uppskeru á þessari árstíð sem er gott að setja í salöt og svo eru þau einstaklega fljótleg sem hentar vel þegar maður vill eyða sem minnstum tíma í eldhúsinu og sem mestum úti í sól og blíðu.

Hér kemur eitt af mínum uppáhalds salötum, með jarðaberjadressingu.. namminamm!  Ég mæli með að gera tvöfaldan skammt því dressingin er syndsamlega góð. 

Dressingin er..

  • fljótleg
  • úr fimm hráefnum
  • sæt en þó passleg með mat

Salatið hentar með grilluðu grænmeti eða hvaða grillmat sem er og er tilvalið í næsta matarboð. Auðvitað er salatið betra með íslenskum hráefnum, svo leitið endilega eftir að kaupa slíkt.

Steinseljan er fæða sem hefur sérstaka hreinsunareiginleika, vinnur á bólgum og er góð fyrir húðina.

Sumarsalat með jarðarberjadressingu

Salatið
2 handfylli spínat eða grænt salat
1 rauðlaukur
veglegt handfylli af íslenskum jarðarberjum
2 smáar gúrkur
fersk steinselja
nokkrar valhnetur, muldar

Jarðaberjadressing
1 bolli íslensk jarðaber
1 límóna, kreist
1/4 bolli ólífuolía
1 tsk kókospálmanektar (t.d frá Biona) eða notið hlynsíróp/hunang
1⁄2 tsk salt

  1. Setjið öll hráefni í jarðaberjadressingu í blandara og vinnið örlítið, dressingin er best þegar hún er pínu kekkjótt. Smakkið til með salti eða sætugjafa eftir smekk.
  1. Skerið rauðlauk, gúrku og jarðaber og setjið í skál ásamt salatblöðum. Veltið uppúr helmingnum af dressingunni og skreytið með steinselju og valhnetum. Berið fram með afgangs dressingu og njótið. Algjör sumarsæla.

Ef þig vantar meiri innblástur fyrir sumarið þá eru hér tvö salöt í viðbót. Bæði einföld, fljótleg og henta vel í sumar.

Látið endilega vita í spjallið hvað fer í salatið hjá ykkur!

Endilega deilið svo á samfélagsmiðlum og taggið mig á Instagram! Ég elska að heyra frá ykkur.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Ásta Kristín Svavarsdottir says:

    Geggjað salat en eg hef ekki notað jarðaberjadressinguna nu prófa ég hana. Eg hef ss gert svona salat nema nota kashew hnetur i stað valhneta. Og basil oliu eða sitronuolíu utá eða enga olíu.

    Svo þarf eg að profa hin salötin takk fyrir þessa sendingu 🙂

    • studningur@lifdutilfulls.is says:

      verði þér að góðu og gaman að heyra að þér líki vel við uppskriftina Ásta Kristín :* Endilega prófaðu hin salötin og þér er velkomið að deila með okkur hvernig þér líkar þau 😀

      kv Katrín

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *