Þjónustufulltrúi hjá heilsufyrirtæki

Við leitum eftir jákvæðum og þjónustulunduðum aðila til að koma í teymið okkar og mun hafa kúnnaánægju að sínu helsta markmiði. Með slíku teljum við getað hjálpað þeim konum sem sækja námskeið okkar enn betur að árangri að bættri heilsu.

Þú ert kjörin ef þú ert dugleg, ábyrg, skipulögð, hugsar í lausnum og átt gott með að hvetja aðra áfram.

Starfshlutfall byrjar í 15 klst á viku, 2-3 klst á dag og unnið er heiman frá. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vaxa með fyrirtækinu. Best ef þú getur byrjað strax en líka í boði að byrja með haustinu.

Fríðindi: Vinna heiman frá og sviganleiki með vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta til viðskiptavina í gegnum tölvupóst, facebook og fyrirtækjasíma.
  • Fá og halda utan um árangurssögur frá viðskiptavinum.
  • Utanumhald námskeiða og tryggja að góð þjónusta sé veitt.
  • Fara í pósthús vikulega með bækur eða pakka fyrir viðskiptavin

Umsækjendur þurfa að eiga tölvu og fer vinna og þjálfun fram í þeim forritum sem notuð eru innan Lifðu til fulls. Umsækjendur eru beðnir að fylla út umsóknina frá hlekknum sem fylgir hér og senda inn ferilskrá sem allra fyrst.