Spínat og járn
Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
2nd May 2017
Acai skálin
16th May 2017
Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
2nd May 2017
Acai skálin
16th May 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Spínat og járn

Vissir þú að næringarinnihald spínats breytist eftir því hvernig það er meðhöndlað?

Mig langar að deila með þér nokkru sem getur hjálpað þér að finna út hvort þú ættir að borða spínat hrátt eða eldað. Er þetta jafnframt eitthvað sem hefur hjálpað konum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun að auka járninntöku um allt að 24% frá fæðunni!

Járnskortur er eitthvað sem getur verið algengur hjá okkur konum og er járn eitt af lykilvítamínum eftir fertugt eins og ég deildi hér.

DSC_0593 (1)

Járn

í flestum tilfellum stafar járnskortur af blóðmissi með tíðablóði. Stundum stafar járnskortur af meltingarsjúkdómum eða þá lélegs mataræðis.. Einkenni járnskorts eru meðal annars slappleiki, þreyta, föl húð, særindi í munni, handa og fótakuldi, ör eða þungur hjartsláttur, andþyngsli og svimi.

Oxalsýra

Spínat inniheldur efni sem kallast á ensku, oxalic acid eða oxalsýra sem gerir það að verkum að það verður erfiðara fyrir líkamann að taka upp steinefni eins og kalk og járn. Að elda spínat getur gert járn aðgengilegra fyrir líkamann og þar með aukið járninnihald spínats.

Sjáum dæmi hér:

Hrátt spítan (1 bolli) Eldað spínat (1 bolli)
Járn (mg) 0.8 6.5
Kalsíum (mg) 30 245


Járn finnst einnig ríkulega í fæðutegundum eins og fiski, ávöxtum, appelsínum, appelsínusafa, mandarínum, jarðaberjum, grape, brokkolí, brussel sprouts, tómötum, tómatsafa, grænni og rauðri papríku, baunum, hnetum, aprikósum, sveskjum og rúsínum.

Með því að elda spínat, hvort sem það sé að gufusjóða, léttsteikja eða nota í pottrétt verða næringarefni eins og járn 24% aðgengilegri í samanburði við að borða hrátt spínat. Hins vegar er c-vítamín innihaldið meira í hráu spínati.

Það eru enn fleiri næringarefni heldur en c-vítamín og járn sem eru breytileg í næringargildi spínats eftir því hvort það er eldað eða ekki, en mér þótti þetta áhugavert að deila með þér og eitthvað til umhugsunar. Svo ef þú vilt auka járnmagn veldu þá að elda spínat og ef þú vilt efla ónæmiskerfið neyttu þess frekar hrátt.

Spínat er dásamleg fæða rík af A vítamíni sem er mikilvægt fyrir sjónina, eðlilega slímhúð, virkt ónæmiskerfi, vöxt, frumuskiptingu og frjósemi, E vítamín sem hindrar öldrun húðarinnar, örvar ónæmiskerfið, aðstoðar við súrefnisflutning og bætir blóðrásina, fólat (sem konum sem hyggja á barneignir t.d) og kalki sem er mikilvægt fyrir bein- og tannheilsu.


Vakti greinin áhuga þinn?

Ef svo er máttu deila með vinum þínum á facebook og sérstaklega ef þú átt vinkonu sem glímir við járnskort. 🙂

Neytir þú spínats daglega? Og vaknar jafnvel spurnig hjá þér núna hvort þú eigir að neyta þess hrátt eða eldað?

Segðu mér frá því hér að neðan og köfum dýpra.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Sigrún says:

    Ég hef borðað mikið af hráu spínati en hættir til að fá slæmt munnangur í góm, innan í munnholið og á tunguna. Af einhverjum ástæðum versnar þetta þegar ég fer að sækja spínat og annað grænmeti út í garðinn og e.t.v. líka þegar ég kemst í berjamó. Telur þú að þetta tvennt geti tengst? Kveðja , S

    • Prufa says:

      Það sakar ekki að prófa að taka það út og sjá hvernig þér líður ef það kemur bara fyrir þegar þú borðar spínatið og grænmetið og sjá hvort þessi munnangur koma ennþá eða hvort þú getur haldið þeim í burtu svoleiðis:)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *