Lifðu til Fulls slf. Skilmálar fyrir áskriftarleið
1. Almennt
Lifðu til fulls slf. kt. 7110121090, Gulaþing 60, 203 Kópavogur. Býður upp á sértæka þjónustu þar sem viðskiptavinir geta keypt áskriftar aðgang að efni sem stuðlar að heilbrigðum lífsstíl (uppskriftir, fræðsla, myndbönd o.fl.) Lifðu til Fulls áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verð upplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir og/eða þjónustur fyrirvaralaust. Sala á þjónustunni er háð skilmálum sem viðskiptavinir eru hvattir til þess að kynna sér vel fyrir kaup og á meðan viðskiptasambandi stendur. Með kaupum á þjónustu samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála:
2. Áskriftarleið – gjöld
Kaupandi gerist áskrifandi að þjónustu Lifðu til Fulls slf. Með því að velja mánaðarlega áskrift eða árs áskrift.
2.1 Almenn áskrift – mánaðargreiðslur 3 mánaða binditími
- Eitt mánaðar gjald 5990 kr á mánuði
- Eftir fyrstu greiðslu er sjálfkrafa tekið af skráðu greiðslukorti á dagsetningu hvers mánaðar sem fyrsta greiðsla var gerð.
- Áskrift þarf að segja upp og þarf að berast fyrir síðasta virka dag áður en færslan fyrir umrætt tímabil er dregin af kortinu. (Nánar í kafla 6 uppsögn)
- Þegar umsaminn áskriftar tími er liðinn, þarf að segja upp áskrift annars heldur áskrift áfram þangað til að uppsögn berst.
2.2 Árs áskrift – 12 mánaða binditími
- Árgjald 44.900 kr ( 2 mánuðir fríir) sem er greitt með einni greiðslu á hverju ári eða þar til áskrift er sagt upp.
- Eftir fyrstu greiðslu er sjálfkrafa tekið af skráðu greiðslukorti á dagsetningu hvers árs sem fyrsta greiðsla var gerð (nema áskrift hafi verið sagt upp fyrir þá dagsetningu)
- Áskrift þarf að segja upp og þarf að berast fyrir síðasta virka dag hvers mánaðar áður en færslan fyrir umrætt tímabil er dregin af kortinu(Nánar í kafla 6 uppsögn)
- Þegar umsaminn áskriftar tími er liðinn, þarf að segja upp áskrift annars heldur áskrift áfram þangað til að uppsögn berst.
*Vinsamlega athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Upphæð greiðslu er háð áskriftarsamningi sem er í gildi hverju sinni.
3. Afhending vöru/aðgangur
Eftir skráningu í áskrift færð þú aðgang að öllu læstu efni á síðunni sem þú getur skráð þig inn á í gegnum notendanafn og lykilorð. Allar vörur eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Viðskiptavinur hefur aðgang að efninu tímabundið svo lengi sem áskrift er virk og Lifðu til fulls slf. er í rekstri.
4. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Þú hefur rétt til að falla frá samningi/áskrift innan 14 daga frá kaupum í samræmi við ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016. Til þess að nýta réttinn þarft þú að tilkynna ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu t.d. með tölvupósti á netfangið studningur@lifdututilfulls.is. Nota má til þess staðlað eyðublað, eyðublaðið er að finna hér. Ekki er tekið við úrsögnum á samfélagsmiðlum. Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn rennur út. Farir þú inn á heimasvæðið, nýtir þér efni, horfir á fyrirlestur eða annað sem tengist áskriftinni hefur þú þar með samþykkt að þú fallir frá réttinum til þess að falla frá samningi um kaupinn.
5. Greiðslur
Sjálfvirk greiðsla er samþykkt um leið og áskrift er keypt. Áskriftaleiðir eru sjálfkrafa skuldfærðar á debet eða kreditkort áskrifanda, þar til samningi er sagt upp og uppsögn tekur gildi.
Greiðsla tekst ekki:
Takist ekki að skuldfæra fyrir áskriftargjaldi mun LTF reyna að skuldfæra aftur eða þar til greiðsla næst. Ógreidd áskriftargjöld fara í innheimtu hjá Motus.
6. Uppsögn
Binditími í áskriftarleið er 3 mánuðir frá kaupum. Viðskiptavinir geta sagt upp mánaðarlegri áskrift hvenær sem er eftir að 3 mánaða bindi tíminn er liðinn. Uppsögn þarf að berast áður en færslan fyrir umrætt tímabil er dregin af kortinu. (s.s ef þú kaupir 6. maí þarf uppsögn að berast síðasta virka dag fyrir 6 ágúst). Til að segja upp áskriftarleið þarf uppsögn að berast í tölvupósti á netfangið: studningur@lifdutilfulls.is. Ekki er tekið á móti uppsögnum á samfélagsmiðlum eða símleiðis.
7. Trúnaður seljanda
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
8. Trúnaður kaupanda
Öll gögn og efni gefin í þjálfun eru í eign Lifðu til Fulls slf. og Júlíu Magnúsdóttur heilsumarkþjálfa. Öll gögn sem úthlutuð eru í þjálfun eru einungis fyrir persónulega notkun kaupanda. Það er með öllu óheimilt að deila gögnum, uppskriftum, og hljóðupptökum sem gefin eru í þjálfun, hvort sem um ræðir í hluta eða heild. Eignaréttur kemur skýrt fram á öllum skjölum sem úthlutað er í þjálfun og fylgja reglur eignarréttar samkvæmt því. Ef kaupandi brýtur á eignarrétti flokkast slíkt brot undir þjófnað og viðkomandi afsalar með því rétti sínum í þjálfuninni og verður meinað að taka frekar þátt. Kaupandi er þrátt fyrir það bundin til að greiða þjálfun að fullu.
Vinsamlegast hafið samband við Lifðu til Fulls með frekari spurningar

