Lifðu til Fulls slf. Skilmálar fyrir 6 mánaða áframhald námskeið.
Almennt
Lifðu til Fulls áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir og/eða þjónustur fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöruna að fullu. Ef kemur til greiðslufalls þá áskilur Lifðu til Fulls slf. sér rétt til þess að sækja greiðsluna með lögboðnum leiðum.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Aðgangur er veittur þegar námskeið hefst nema annað hafi komið fram.
Gildistími
Aðgangur að persónulegu heimasvæði með öllum kennslugögnum, lokuðum facebook hóp og stuðningi frá Lifðu til fulls teyminu ótímabundið, svo lengi sem Lifðu til fulls slf. er í rekstri.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Ekki er hægt að hætta í áframhaldþjálfun, við skráningu og með greiðslu staðfestingargjalds ert þú að skuldbinda þig til að greiða námskeið til fulls. Áframhald þjálfun er ekki endurgreiðanleg. Hafir þú einu sinni fullgreitt fyrir áframhald þjálfun getur þú verið með að kostnaðarlausu næst þegar þjálfun á sér stað.
Verð
Vinsamlega athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara
Trúnaður seljanda
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Trúnaður kaupanda
Öll gögn og efni gefin í þjálfun eru í eign Lifðu til Fulls slf. og Júlíu Magnúsdóttur heilsumarkþjálfa. Öll gögn sem úthlutuð eru í þjálfun eru einungis fyrir persónulega notkun kaupanda og er með öllu óheimilt að deila gögnum, uppskriftum, og hljóðupptökum sem gefin eru í þjálfun, hvort sem um ræðir í hluta eða heild. Eignaréttur kemur skýrt fram á öllum skjölum sem úthlutað er í þjálfun og fylgja reglur eignaréttar samkvæmt því. Ef kaupandi brýtur á eignarétti flokkast slíkt brot undir þjófnað og viðkomandi afsalar með því rétti sínum í þjálfuninni og verður meinað að taka frekar þátt. Kaupandi er þrátt fyrir það bundin til að greiða þjálfun að fullu.
Vinsamlegast hafið samband við Lifðu til Fulls með frekari spurningar.

