
Besta leiðin til að léttast á fimmtugsaldri
27th March 2017
Einfaldasta leiðin til að hreinsa líkamann eftir páska
14th April 2017
Besta leiðin til að léttast á fimmtugsaldri
27th March 2017
Einfaldasta leiðin til að hreinsa líkamann eftir páska
14th April 2017Ég elska súkkulaði og í ár gerði ég páskakonfekt með fyllingu sem er algjörlega ómótstæðileg.
ö
Það er mikilvægt að njóta okkar yfir páska í samveru fjölskyldunnar og þá er einmitt fullkomið að eiga eitthvað gott páskagóðgæti til að deila.
Góður kostur við að gera þitt eigið súkkulaði yfir páska er að þú getur stjórnað sætumagninu svo ef þú ert vön sykurminni lífsstíl mæli ég með að minnka hlynsírópsmagnið í súkkulaðinu niður í 75 g. Ég notaði litla páskaeggjabakka sem henta uppskriftinni vel.
Þegar þið eruð búin að bræða súkkulaðið eru eggin fyllt með kasjúsmjörkremi… mmm
Lesa einnig:
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
Súkkulaði trufflur með lakkrís
Magnesíum og súkkulaðilöngun
–
–
Leyfið eggjum að harðna og skreytið með bræddu súkkulaði, ég notaði vegan hvítt súkkulaði og salt.
–
–
Páskakonfekt
–
Súkkulaðið
100 g kakósmjör brætt
50 gr kókosolía
75 g hrátt kakóduft
100 g hrátt hlynsíróp
4 dropar steviudropar t.d frá Via Health
1 tsk vanilludropar
páskaeggjaform
–
Kasjúhnetufylling
4 msk kasjúhnetusmjör t.d. frá Monki
1 msk vegan smjör t.d. frá Earth Balance
1 msk hlynsíróp
1 tsk vanilludropar
4-6 klípur salt
vegan hvítt súkkulaði til skreytingar
–
1. Bræðið kakósmjör og kókosolíu yfir vatnsbaði. Hrærið saman kakódufti, hlynsírópi, steviudropum og vanillu með gaffli þar til silkimjúkt.
2. Hellið þunnu lagi af súkkulaðinu yfir páskaeggjamót og frystið í 10 mín. Geymið súkkulaðið yfir vatnsbaði svo það stífni ekki.
3. Útbúið á meðan fyllingu með því setja allt í skál og hræra. Gott ráð til að fá silkimjúka karamellu er að setja allt í matvinnsluvél eða blandara.
4. Takið eggjamótið úr frysti og hellið öðru lagi af súkkulaði yfir. Frystið í 10 mín.
5. Bætið fyllingu í eggjamótið lauslega (ca. 1 tsk í hvert) og hellið súkkulaði yfir. Sléttið úr með hníf og frystið á ný í 10-20 mín.
6. Bræðið hvítt súkkulaði og sléttið yfir ef þið viljið. Njótið.
–
Fyllir 6 eggja hálfmána eða tvö páskaeggjamót
–
–
Ef þú útbýrð eggin láttu endilega vita hvernig smakkast í spjallinu hér neðar!
Gleðilega páska 🙂
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!
