Orkuskot Júlíu | Öflug og einföld blanda fyrir frískari kropp
Jólasmákökurnar mínar
11th December 2019
7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun
14th January 2020
Jólasmákökurnar mínar
11th December 2019
7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun
14th January 2020
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Orkuskot Júlíu

Gott orkuskot gerir kraftaverk fyrir þreytta kroppa. Hér er uppáhálds blandan mín sem við hjónin fáum okkur reglulega þegar við þurfum að fríska upp á líkamann.

Stundum þarf maður að kick-starta líkamann í gang eftir langa hvíld, veikindi, langar vinnutarnir eða frí. Þegar ég finn að ég þarf á extra orku á að halda  finnst mér geggjað að gefa líkamanum orkuskot og fylla hann af vellíðan!  

Það er gott að gera hreinsanir reglulega.  Þegar það er kominn tími á hreinsun hjá okkur hjónum þá bý ég til græna djúsa sem við drekkum yfir daginn og síðan endum við dagana yfirleitt á léttum kvöldverðum. 

Grænir drykkir fara svo vel í magann og geta verið sérstaklega vatnslosandi og hreinsandi sem hjálpar gegn uppþembu og bjúgsöfnun. Basísku eiginleikar græna drykksins hjálpa líkamanum einnig að losna við sykurlöngun.

Komdu hreinsunardeginum þínum í gang með græna orkudrykknum mínum! 

orkuskot

Ég elska myntu og nota hana því óspart í drykkina mína enda er mynta frábær fyrir bætta meltingu og einbeitingu. Það má sjálfsagt nota steinselju í staðinn eða jafnvel bæði fyrir ævintýragjarna en steinselja er talin vera ein helsta fegurðarfæðan.

Bæði mynta og steinselja eru mjög góðar kryddjurtir til að nota í græna djúsa.

Lesa einnig

5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og flensum
5 ráð til þess að efla meltingu og brennslu á 48 klst
Svona lítur hreinsunardagur Júlíu út!

orkuskot

Notið það íslenska og græna salat sem fæst hverju sinni í drykkinn.

orkuskot

Orkuskot Júlíu 

1 gúrka
2 græn epli
1 sítróna
1 límóna
handfylli spínat eða grænkál
handfylli fersk mynta
engiferbútur

1. Setjið allt í gegnum safapressu og njótið.

orkuskot

Ég mæli með og nota safapressu sem kaldpressar því hún varðveitir næringarefni betur og eykur geymsluþol drykkjar. Djúsinn geymist í 3 daga í kæli.

Ég vona innilega að þú prófir djúsinn! Endilega deildu uppskriftinni áfram á Facebook eða taggaðu mig á Instagram ef þú prófar hann og líkar vel.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *