5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst
Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu!
17th July 2018
5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg
14th August 2018
Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu!
17th July 2018
5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg
14th August 2018
Show all

5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst

Við eigum öll skilið hamingjusama meltingu!

Okkur líður einfaldlega betur í kroppnum þegar það er jafnvægi í meltingunni og því langar mig að deila með þér 5 góðum ráðum til að efla meltinguna og brennsluna.  

melting

Slæm melting og bólgur (innflammations) orsakast oft vegna röskunar á rútínu okkar og mataræði.  Slíkt á til að hægja á brennslunni og starfsemi allra líffæra sem getur valdið sýkingum, þyngdarstöðnun, orkuleysi og ýmsum kvillum.

Grunnstoð heilsunnar er heilbrigð melting. Meltingin spilar lykilhlutverk í að líffærastarfsemi okkar sé virk og að líkaminn vinni rétt úr fæðunni. Meltingarflóran spilar einnig stórt hlutverk í styrkingu ónæmiskerfisins þar sem það býr að stórum hluta í meltingarfærunum. Tenging er á milli meltingarflórunnar og heilastarfsemi okkar og því slæm melting oft afleiðing andlegrar depurðar eða öfugt.

Með því að efla meltinguna stuðlum við að meiri orku, virkari brennslu og bættri andlegri líðan. Hér eru 5 ráð til að efla meltinguna náttúrulega!

Lesa einnig:
Losnaðu við bólgur og bjúgur með réttu gerlunum
Magnesíum drykkur sem bætir svefn og slær á sykurþörf
Eru föstur góðar fyrir konur yfir fertugt?

melting

Elskaðu góðu bakteríurnar

Þarmaflóran þarfnast góðra meltingargerla fyrir virka starfsemi. Mitt helsta ráð þegar kemur að meltingagerlum er að gefa líkamanum fjölbreytt úrval gerla fyrir sem bestan árangur. Mér finnst gott að rótera eftir tegundum gerla sem ég nota hverju sinni og oft á ég til 2-3 mismunandi tegundir gerla heima sem ég skipti á milli daga. Góðar bakteríur finnast einnig í ýmsum fæðum eins og sýrðu grænmeti, gerjuðum jógúrtum og kombucha drykkjum. Gott er að neyta þessara fæðutegunda allt að þrisvar í viku eða oftar.

melting

Skiptu út bólgumyndandi fitum og olíum

Holl fita skiptir gríðarlegu máli fyrir virka meltingarstarfsemi þar sem hún hjálpar til við upptöku og geymslu næringarefna. Holl fita heldur einnig heilastarfsemi og brennslu í lagi og getur dregið úr bólgum í meltingarfærum. Það er liðin tíð að telja að hollar fitur stuðli að þyngdaraukningu enda hefur verið sannað að þær geta þvert á móti stuðlað að þyngdartapi sem og almennri vellíðan. Mikilvægt er þó að velja réttu olíurnar. Olíur frá soja, maís og dýraafurðum geta verið erfiðar fyrir meltinguna. Skiptið þeim út fyrir kaldpressaðar olíur, eða með því að borða fisk, hemp- og hörfræ, kókos-, avókadó- og ólífuolíur. Fæðutegundir sem eru sérstaklega ríkar af hollri fitu eins og hnetur, möndlur, fiskur, kókos og fræ, hjálpa einnig við að efla meltingu og brennslu.

melting

Minnkaðu sykurinn

Aldrei er góð vísa of oft kveðin! Hvítur sykur getur myndað meltingarkvilla og bólgur í meltingarvegi. Minnkaðu sykur í mataræðinu með því að skipta út sykruðum drykkjum fyrir sódavatn eða vatn. Temdu þér að lesa á innihaldslýsingar svo þú sért ekki að innbyrða sykur að óþörfu og forðastu að kaupa sykraðar mjólkurvörur eða aðrar vörur sem innihalda viðbættan sykur. Veldu frekar náttúrulega sætugjafa eins og döðlur, stevíu, hlynsíróp, hunang eða kókospálmanektar sem fara mun betur í meltinguna.

Lesa einnig:
Konur og ketó
5 fæðutegundir sem við ættum öll að borða
Hvernig á að þekkja sykur í matvælum og góðir staðgenglar
Svitnaðu streituna burtu

Streita hefur bein tengsl við upptöku næringarefna og meltingu. Því er mikilvægt að halda streitu í skrefjum fyrir heilbrigða meltingu. Hreyfing er tilvalin þar sem hún dreifir huganum og kemur okkur aftur niður á jörðina. Rannsóknir hafa sýnt mikilvægi þess að hafa jafnvægi á æfingunum enda getur of áköf líkamsþjálfun haft skaðleg áhrif, t.d. á nýrnahetturnar, hægt á brennslunni og valdið streitu. Hugaðu því að jóga, göngum eða öðrum rólegri æfingum samhliða ákafari æfingum sem hækka púlsinn.

melting

Hreinsaðu líkamann

Meltingarvegurinn fyllist af eiturefnum eftir óheilbrigt líferni, slæmt mataræði, streitu, áföll eða sýklalyf.  Hreinsun með fæðu getur því verið mjög áhrifarík og góð, en ef hún er ekki gerð rétt eða í hófi geta áhrifin verið skaðleg. Það er mikilvægt að fara rétt að og fylgja góðri hreinsunaráætlun. Sem heilsumarkþjálfi mæli ég alltaf með að hefja stutta hreinsun til að losna við löngun í sykur og óhollustu, koma meltingunni af stað, auka orkuna og undirbúa líkamann þeirra fyrir lífsstílsbreytingu!

Til að koma þér af stað í hreinsandi mataræðinu er gott að huga að því að bæta við góðum trefjum, t.d. frá chia- og hörfræjum, döðlum og þurrkuðum ávöxtum.

Segðu mér endilega frá hér í spjallið að neðan, hvaða ráð höfðar helst til þín og ef það eru einhverjar fleiri spurningar um meltinguna eða breytt mataræði!

Ég vona að ráðin komi sér vel!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *