Hvað á að borða fyrir orku og minni kviðfitu? | Uppskriftir
7 fæðutegundir sem efla ónæmiskerfið
13th March 2020
Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
1st April 2020
7 fæðutegundir sem efla ónæmiskerfið
13th March 2020
Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
1st April 2020
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Hvað á að borða fyrir orku og minni kviðfitu?

Minni kviðfita og meiri orka

Í dag deili ég með þér helstu fæðunni fyrir meiri orku og minni kviðfitu. Þar að auki færð þú uppskrift af algjörri orkusprengju með íslenskum krækiberjum! Það gerist varla betra betra…

Grænt salat eins og grænkál, klettasalat, spínat eða lambhagasalat er ein helsta fæðan sem hjálpar til við að hreinsa og minnka bjúg, styrkja þarmaflóruna, bæta orku líkamans, byggja upp ónæmiskerfið, minnka kviðfitu og draga fram náttúrulegan ljóma!

Grænt salat hjálpar einnig til við að slá á sykurlöngun vegna beiska bragðsins sem kemur frá þeim. Svo er það líka rosalega steinefnaríkt, ríkt af trefjum og próteini!

Þar að auki innihalda grænu laufblöðin kalsíum, magnesíum, járni, fosfati, kalíum, zinki og A,C,E og K vítamínum.

Að blanda grænu salati í blandara auðveldar líkamanum einnig upptöku næringarefna.

Lesa einnig

Eru föstur góðar fyrir konur yfir fertugt?
2 mínútna æfing sem hjálpar þér að elska líkamann þinn
7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun

berry smooothie

Krækiberjabomba fyrir meiri orku og minni kviðfitu

2 góð handfylli af blaðgrænu (spínat/lambhagasalat)

1 bolli möndlumjólk  (uppskrift neðar eða notið aðkeypta)

1 banani

2 msk chia fræ lögð í bleyti

Græn duft (t.d blanda frá Kiki sem fæst á Gló)

1/2 bolli íslensk krækiber, frosin

1/4 bolli (eða meira) hindber, frosin

1 tsk kókosolía brædd


Möndlumjólk

50 gr möndlur

4 bollar vatn

Himalaya salt á hnífsodd eða/og 2-3 steviu dropa frá via health steviu

1. Útbúið möndlumjólk með því að setja möndlur og vatn í blandara og hræra þar til kekkjalaust. Smakkið og bætið við salti eða/og steviu dropum. Hægt er að drekka möndlumjólkina beint úr blandaranum eða setja í hana gegnum grisjupoka til að fá hana tæra. Skiljið c.a. 1 bolla af möndlumjólkinni eftir í blandarakönnunni og geymið rest í kæli. Möndlumjólk geymist fersk í 3-5 daga.

2. Bætið næst öllum innihaldsefnum nema kókosolíu við í blandarakönnuna og hrærið. Rétt undir lokin má bæta við kókosolíunni og hræra örlítið en kókosolían harðnar hratt ef hún er sett saman með frosnum berjum.

Að bæta við meira af grænu er lykilatriðið að aukinni orku, minni verkjum og betra formi á fljótlegan en náttúrulegan hátt. Þess vegna er þetta eitt af fyrstu skrefunum í Nýtt líf og Ný þú áður en hópurinn byrjar svo á þriggja vikna matarhreinsun. Hreinsun er vænlegust til árangurs ef hún gerð með hollri og góðu fæðu og er hvorki kvöld né pína.

Smelltu hér fyrir leiðarvísi með fleiri girnilegum og grænum uppskriftum, fróðleik og stuttu hreinsunarprófi svo þú sjáir betur hvar líkami þinn og heilsa eru stödd. Með skráningu lærir þú einnig um skrefin sem við tökum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun og hverskonar árangri má búast við.

Ef þú hefur íhugað hvernig það væri að breyta um lífsstíl og ert orðin leið á að enda alltaf í sama farinu… Ef þú þráir að öðlast varanlegt þyngdartap, orku og allsherjar heilsu, þá er þetta fyrir þig!

Ég skapaði þessa þjálfun til þess að sýna þér leiðina að varanlegum árangri, leiðina sem hentar þér.

Þér er ætlað að lifa full af orku, laus við leiðindakílóin sem hafa þvælst yrir þér, frjáls til að fara upp fjöll og firnindi án þess að verkja í skrokkinn — lífsglöð og sátt!

Byrjaðu því að borða meira af grænu með einfalda leiðarvísinum og lærðu á sama tíma meira um hvernig Nýtt líf og Ný þú lífsstílsþjálfun gæti breytt lífi þínu!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *