Kanilhjúpaðar jólamöndlur
Súkkulaðiþynnur með myntufyllingu
28th November 2017
Himneskar vanillukökur
12th December 2017
Súkkulaðiþynnur með myntufyllingu
28th November 2017
Himneskar vanillukökur
12th December 2017
Show all

Kanilhjúpaðar jólamöndlur

_DSC3083

Gleðilegan desember!

Það kemur mér alltaf í jólaskap að rölta um bæinn yfir hátíðirnar og finna dásamlega ilminn af ristuðum möndlum með kanil.

Nú má sannarlega koma með þennan jólailm heim með þessum sykurlausu kanilhjúpuðum möndlum!

Þær gefa ljúfan karamellukeim sem kemur skemmtilega á óvart með kanilbragðinu og gerir möndlurnar að ómótstæðilegu jólasnarli.

Það er einfalt að gera þessa uppskrift og getur þú horft á örstutt myndband með mér til að sýna þér hvernig á að fara að hér að neðan.

_DSC3019

Ég nota steviu sem sætugjafa í uppskriftina sem gerir möndlurnar að algjörlega sykurlausu snarli! Einnig má nota aðra náttúrúlega sætugjafa eins og kókospálmasykur eða hlynsíróp.

Jólamöndlur hjúpaðar með kanil og karamellu

Þessar færa ilminn af jólum sannarlega heim!


1/2 bolli vatn

2 msk kókospálmasykur/strásykur (ég notaði frá sweet like sugar hér)

2 tsk kanil

1 tsk stevia með karamellubragði (sjá athugasemdir)

Salt

1/4 tsk múskat

1/2 bolli möndlur

Einnig má nota 1 msk hlynsíróp og nokkra dropa af vanillu en karamellubragðið frá steviunni er ómissandi.

1. Hitið pönnu og fáið upp góðan hita.

2. Bætið u.þ.b. 1/2 bolla af vatni út pönnuna, eða sem nemur botnfylli á hana og hitið í smástund.

3. Bætið við sætugjafa og öllu nema möndlum. Hrærið þar til byrjar að sjóða á pönnunni.

4. Bætið næst möndlum við og hrærið stöðugt í við miðlungshita í 10-15 mín. eða þar til vatnið hefur gufað alveg upp og þess í stað myndað karamelluáferð um möndlurnar. Varist þó að brenna möndlurnar ekki og bætið við vatni ef þarf.

5. Leggið möndlurnar á bökunarpappír og leyfið að kólna í 2 klst. a.m.k.

6. Njótið sem hátíðlegt snarl!

_DSC3063

Ég vona að þú prófir þetta holla jólasnarl!

Láttu svo vita í spjallið að neðan, hvað kemur þér í jólaskap?

Komdu á kósýkvöld í beinni!

Í kvöld kl.20 (og fimmtudag kl.10) er kósýkvöld í stofunni hjá mér og þér og ég mæli með að láta þig ekki vanta vegna þess að það verður jólafjör, gjafaleikur og svo getur þú lært:

  • Hvernig hægt er að komast úr vítahring sykurs – fyrir fullt og allt
  • Uppskrift sem hreinsar og eflir orku
  • 5 orkugefandi fæður sem ég borða nánast daglega
  • Algeng mistök sem skal forðast

Smelltu HÉR til að vera með, það verður jólastemning og þú munt enda kvöldið full af fróðleik!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *