[ Hátíðarpakki 2 ]
Upplifðu jafnvægi og vellíðan án þess að fórna bragði eða stemningu.
Aðeins 5.990 kr (fullt verð 19.990 kr)
Nýji hátíðarpakkinn inniheldur:
Sektarlaust og orkuríkt súkkulaði - Yfir 30 einfaldar uppskriftir
Hátíðlegar hrákökur sem þér líður vel af - fullkomið að njóta með fjölskyldunni
Glænýr jólamatseðill - sem fær líkaman til að ljóma
Bónus: Leiðir til að hafa það kósý án sykurs
Nærandi jól sem bragðast eins og þau eiga að gera - bara án sykurs.
Núna aðeins 5.990 kr
(fullt verð 19.990 kr)
Þetta snýst ekki um að sleppa gömlum hefðum – heldur að njóta þeirra með meiri orku, vellíðan og jafnvægi.
Sektarlausir og orkuríkir súkkulaðimolar
Syndsamlegar, einfaldar og fljótlegar uppskriftir án hvítan sykurs og hveitis. Hér finnur þú 30 uppskriftir af hráfæðisúkkulaði eins og trufflur, marsipankonfekt, lakkrísnammi, mokkamola, karamellukúlur, appelsínubita, döðlugott og pistasíuæði ef eitthvað sé nefnt. Njóttu þess að fá þér mola þegar sykurlöngun kallar með góðri samvisku.
Hátíðarkökur sem þér líður vel af
Eftirréttir sem smakkast dásamlega og láta þér líða vel eftirá. Engin bjúgur, sektarkennd eða uppþemba. Fáðu uppskriftir af bounty draumköku, vanillu-og matcha ostaköku með súkkulaði, karamellu- og tahini kaka ef eitthvað sé nefnt. Þessar kökur getað vissulega orðið ómissandi komandi ár hjá þér.
Glænýr jólamatseðill sem fær líkaman til að ljóma
Glænýr jólamatseðill með hollum, einföldum og bragðgóðum uppskriftum sem kemur með ferskan blæ í hátíðhöldin. Matseðilinn hefur eitthvað fyrir alla og inniheldur meðal annars kalkúnabringu með pistasíufyllingu, bláberjakryddað lambalæri, hægeldað nautaprime rib í heilu, ljúffeng rauðvínssósa, bernesósa, grasker með trönuberjum og fetaosti, ferskt hátíðarsalat, rósakál með tahini og ný útfærsla af waldorfsalati. Tilvalið er að nýta yfir hátíðarmánuðinn sem og á aðfangadag. Gefið er val um kjöt- og veganrétti.
Bónus: Kósý án sykurs
Jólin verða jafn notaleg – bara án sykurs. Hér færðu innblástur og hugmyndir til að næra líkama og sál þegar löngunin í sætt bankar upp á.
Tryggðu þér hátíðarpakkan í dag á bestu mögulegu kjörum.
Aðeins 5.990 kr
(fullt verð 19.990 kr)
Hundruðir fjölskyldna hafa notið góðs af jólaáætlunum mínum síðustu ár og núna er þitt tækifæri til að öðlast meiri orku, léttleika og vellíðan...
Ég elska góðan mat og get ekki ímyndað mér lífið án sætinda. Ég veit því af eigin raun hversu erfitt það getur verið að standast freistingar jólanna. Þegar ég hóf vegferð mína að bættri heilsu fór ég að fikra mig áfram með hollar útgáfur af uppáhalds jólauppskriftunum mínum. Með árunum hef ég þróað þær og fínstillt þannig að þær eru, hreint út sagt, enn bragðbetri en þær gömlu og láta líkamanum líða vel.
Fyrsti hátíðarpakkinn sem ég gaf út naut mikilla vinsælda. Þar voru uppskriftir af jólamat, smákökum og hátíðardrykkjum, og leiðarvísir að því hvernig skipta megi út sykri í bakstri. Nú, í Hátíðarpakka 2, deili ég glænýjum og girnilegum réttum af jólamat, hrákökum, súkkulaðimolum og hollum hugmyndum að jólastemningu án sykurs.
Ég er viss um að þessar nýju uppskriftir verði fljótt hluti af þínum jólahefðum rétt eins og þær hafa orðið hjá minni fjölskyldu.
Það er engin þörf á að velja á milli jólabragðs og vellíðunar – í þessum pakka færðu hvort tveggja.
Nýjar og spennandi útgáfur af hátíðarréttum sem þú munt elska.
© 2024 Lifðu til Fulls | Privacy policy