
Fyllt sæt kartafla með spínati, hvítlaukssósu og lax
[favorite_button]
Prenta [print-me target=".mb-sfc-page-title, .sfc-logo, .print-recipe-cookpreptime"]
Innihald
- 2 sætar kartöflur
- Fylling
- 1/2 tsk kókosolía
- 1 stór rauður laukur, gróflega saxaður
- 2-3 hvítlauksgeirar, fínlega saxaðir
- 1 bolli kjúklingabaunir
- fjögur handfylli spínat
- pipar og salt eftir smekk
- Hvítlaukssósa
- 1/2 bolli hvítt tahini
- 1/2 bolli vatn
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
- 1 sítróna kreist
- 1/2 tsk paprikuduft (val)
- salt eftir smekk
- Lax
- 2 laxaflök (c.a. 400-500 gr) eða 550 gr hvítur fiskur (þorskur, steinbítur)
- 1 hvítlauksgeiri, pressaður
- 1 sítróna kreist
- salt og pipar eftir smekk
- salat að eigin vali með ½ gúrka, 2 tómatar og paprika (val)
Aðferð
- 1. Hitið ofn í 180°C
- 2. Skerið sætu kartöfluna til helminga. Setjið á ofnplötu og penslið yfir með olíu. Eldið í 30-40 mín eða þar til hægt er að stinga gaffli inn í kartöfluna.
- 3. Setjið öll innihaldsefni í dressingu í blandara og hrærið. Geymið í kæli.
- 4. Ef þið viljið gera salat með matnum má gera það núna.
- 5. Berið á laxinn með pensil og kryddið með salti og pipar. Setjið í eldfast mót og eldið með roð hliðina niður í c.a 7-12 mín (fer eftir stærð laxflaka) eða eldið á pönnu. Gott er að elda laxinn þar til há-bleik lína sést í miðjunni á flakinu.
- 6. Hitið pönnu með örlítið af kókosolíu og snöggsteikið lauk, hvítlauk, kjúklingabaunir, spínat og kryddið með salti og pipar. Steikið í um 5-7 mínútur. Leggið til hliðar.
- 7. Skerið sætkartöflubáta langsum og þversum, bætið við spínatfyllingu og dreifið hvítlauksósu veglega yfir. Berið fram með laxi og salati ef óskað.

