Forsala Bok

Vilt þú fá meiri kennslu um sykurleysið og fleiri
ómóstæðilegar uppskriftir?

Tryggðu þér endurprentaða uppskriftabók mína í forsölu og fáðu bónusefni
sem koma þér af stað í breyttan lífsstíl!

Forsala gildir aðeins til 10.júlí

Ég er yfir mig spennt að deila með þér endurprentuðu bókinni minni, Lifðu til Fulls með yfir 100 ómótstæðilegum og einföldum uppskriftum fyrir orku og ljóma.

Uppskriftirnar eru vegan, án glútens og sykurs ásamt sérkafla með kjötréttum. Í bókinni finnur þú leiðarvísi að því hvað gott er að eiga í búrskápnum, hvernig á að skipta út sykri og ýmsa aðra fræðslumola sem munu reynast þér ómetanlegir. Nú getur þú tryggt þér eintak af endurprentuðu bókinni í forsölu og fengið ókeypis aukaefni sem kemur þér strax af stað í breyttan lífsstíl.

Með því að kaupa endurprentuðu bókina í forsölu færðu aukaefni:

10 helstu fæðutegundir sem auka brennslu og orku til að koma þér vel af stað í breyttum lífsstíl og hvar þú finnur fæðuna í bókinni.
Sykurlaus start - allt það sem er nauðsynlegt að bæta í mataræðið til að tryggja minni sykurlöngun og sleppa sykri.

Að breyta mataræðinu er án efa það besta sem ég hef gert fyrir mína heilsu. Aukakíló og verkir hurfu og líkaminn fylltist orku og vellíðan á hverjum degi. Þegar ég komst að því hvað hollustan gat verið bragðgóð var ekki aftur snúið.

Uppskriftirnar í bókinni eru einfaldar og fljótlegar og henta uppteknu fólki vel. Mataræðið passar allri fjölskyldunni og finnur þú m.a. dásamlega morgunverði, millimál, hollar útfærslur af vinsælum skyndibitum, mexíkóréttum og sektarlausum sætindum ásamt ýmsum fróðleik, eins og hvernig hægt sé að skipta út sykri fyrir aðra hollari kosti. Bókin er ómissandi leiðarvísir sem auðveldar þér leiðina að bættum lífsstíl og færir þér ljóma í hverjum bita.


  Júlíu hefur tekist að sameina einfaldar og næringarríkar uppskriftir með fallegum myndum af girnilegum mat. Hlakkaðu til að fletta bókinni og elda uppúr henni eða fá innblástur þegar þú ert í stuði til að skapa.

Solla Eiríks á Gló


  Ég dáist að heildarsýn Júlíu á heilsu og fegurð að innan sem utan. Maturinn hennar fyllir mann orku, gleði og krafti. Uppskriftirnar eru einfaldar og fljótlegar sem gerir auðvelt að hefja breyttan lífsstíl Ég elska þessa bók!

Yesmine Olssen, höfundur og sjónvarpskokkur


  Ein fallegasta bók sem ég hef séð! Uppskriftirnar eru allar svo girnilegar og spennandi

Ebba Guðný, höfundur og sjónvarpskokkur


  Með þessari fæðu finn ég góða orku allan daginn og árangur í lyftingum. Ég mæli með bókinni fyrir alla þá sem vilja borða hreint og líða vel.

Dr. Anna Hulda Ólafsdóttir, keppandi í crossfit og lyftingum


  Bókin hennar Júlíu inniheldur fjölda fallegra og hollra uppskrifta sem geta stuðlað að bættri heilsu.

Ragnar Freyr Ingvarsson, Læknirinn í eldhúsinu



Uppskriftabókin inniheldur yfir 100 uppskriftir sem gefa orku og ljóma.

Smelltu á hnappinn til að tryggja þér bókina (endurprentaða) í sérstakri forsölu og bónusefni!

Allt fyrir aðeins kr. (fullt verð kr )

 

Sendingarkostnaður bætist við á næstu síðu



julia

Ef þig langar til að líða vel í eigin skinni þá mæli ég hiklaust með að þú fylgir uppskriftunum í þessari bók. Ég hef gert það síðustu 10 mánuði og líðanin er svo miklu betri. Liðverkirnir eru horfnir og aukakílóin farin, 7 kíló fóru á fyrstu tveimur mánuðunum og hafa haldist af síðan. Það er bara svo gaman að finna hvað matur skiptir líkamann miklu máli. Maturinn er fjölbreyttur og ég er aldrei svöng.


Katrín Björg

julia

Maturinn í þessari bók er hreint æðislegur. Eftir að hafa fylgt þessu mataræði í tæpar þrjár vikur leið mér alveg yndislega, ég sef betur, er hætt að svitna á nóttunni, bakverkurinn er nærri horfinn þannig að ég get hreyft mig miklu meira og svo náði ég af mér 18 kílóum. Ég er sátt og glöð með mitt nýja líf og sjálfa mig. Uppskriftirnar eru einfaldar og gaman að fara eftir þeim! Ef þú kaupir þér eina bók í ár láttu það vera þessa.


Marta Klein

viktoria

"Ég var í algjörri sykurneyslu, alltaf orkulaus og þung á mér en með því að fylgja uppskriftum Júlíu er þessi löngun farin og ég elska matinn! Líkaminn verður orkumeiri og léttari með hverjum bita og það kom mér á óvart hvað er í raun auðvelt að tileinka sér þetta nýja mataræði. Bókin hjálpar mér að læra að sneiða framhjá sykri og hugsa vel um sjálfa mig."


Viktoría Birgisdóttir

julia

"Mataruppskriftir frá Júlíu hafa hjálpað mér við að að breyta matarvenjum mínum og hafa betri stjórn á blóðsykrinum. Ég hef lést, mér líður dásamlega og í raun hefur mér sjaldan liðið betur! "


Ásta Björg Guðmundsdóttir

julia

"Með uppskriftum frá Júlíu hef ég bætt lífsgæði mín mikið. Ég hef tapað 10 kílóum og grætt í staðinn mikla vellíðan og öðlast trú á sjálfa mig. Ég hef loksins náð að koma reglu á mataræðið mitt. Í dag nota ég nánast eingöngu þessar uppskriftir."


Lára Ólafsdóttir

julia

"Ég er mikill matgæðingur og nammigrís. Aldrei hefði ég trúað því að ég myndi geta hætt að borða sælgæti en núna langar mig ekki einu sinni í það þótt það sé fyrir framan mig. Það er meira að segja hægt að búa til „nammi“ sem er mjög hollt. Allar girnilegu mataruppskriftirnar og nammið virka fyrir alla fjölskylduna. Auk þess hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu. Bókin hefur eitthvað fyrir alla."


Vala Ólöf Jónasdóttir


 

Allt fyrir aðeins kr. (fullt verð kr )

 

Sendingarkostnaður bætist við á næstu síðu

 

 

Höfundarréttur @Lifðu Til Fulls slf. 2019