Drekktu þennan til að slá á sykurþörfina
7 hlutir sem geta gerst þegar þú sleppir sykri
2nd February 2016
sykurlaus áskorun
7 hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur og spennandi tilkynning
16th February 2016
7 hlutir sem geta gerst þegar þú sleppir sykri
2nd February 2016
sykurlaus áskorun
7 hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur og spennandi tilkynning
16th February 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Drekktu þennan til að slá á sykurþörfina

Fyrsti dagurinn í “Sykurlaus í 14 daga” áskorun hófst í gær með tæpum 20.000 djörfum einstaklingum sem eru skráðir til leiks. Enda hefur sykurát okkar Íslendinga verið til mikillar umfjöllunar og skammtíma og langtíma ávinningar miklir að því að sleppa sykri.

Að sleppa sykri hefur sjaldan verið eins einfald eða hvað þá bragðgott með sykurlaus í 14 daga áskorun. Ef þú ert ekki skráð/ur nú þegar vertu viss um að skrá þig ókeypis hér og fá fyrstu uppskriftirnar og innkaupalistann sendan um hæl.

Í hverri viku styðjumst við, við þrjár lykilfæðutegundir sem geta hjálpað líkamanum að draga úr sykurlöngun þar sem gjarnan er sykurlöngun sprottin af ójafnvægi í næringu eða lykilvítamínum eins og þessum.  Til að slá á sykurþörfina er þetta lykilatriði. Sjáðu hér fæðutegundir úr okkar fyrstu viku

 

Copy of Copy of Copy of Copy of Untitled design

 

Hér kemur svo dásamlegur sykur “detox” drykkur sem slær á sykurþörfina.

 

Græn sykur detox

~ fyrir 2

4 góð Handfylli af blaðgrænu (spínat/lambhagasalat)

1/2 gúrka

1 lífrænt epli

1 banani eða 1 avocadó

6 msk sítrónusafi

5 msk Chia fræ

1 msk Möndlusmjör

4 bollar möndlumjólk

 

DSC_nota

 

1.Setjið allt í blandara og hrærið. Bætið við 1-2 dropum steviu fyrir sætara bragð.

Hollráð: Tvöfaldaðu uppskriftina og geymdu í kæli í 2 daga. Neyttu um morguninn og seinnipart.

Sjáðu hvað þú gætir átt von á með því að sleppa sykri í 14 daga…

 

“Betri líðan, jafnari orka og aukin vitund um það sem maður borðar. Svo er þetta er líka þræl gaman, maður hefur gott að því að skoða almennilega hvað maður lætur ofaní sig.” — Svanbjörg Pálsdóttir

“Þetta opnaði augu mín algjörlega fyrir öllum leyndu gildrunum. Mér hefur liðið alveg rosalega vel og finnst maturinn alveg hreint snilldarlega og syndsamlega góður.” — Lovísa Vattnes

“Ég er búin að missa 5kg og verkir í höndunum farnir og sef miklu betur ? Ég hef ekki fengið höfuðverk eða slæmt mígreniskast síðan ég byrjaði sem er æði og ég er orku meiri :D” — María Erla Ólafsdóttir

 

 

[ulp id=’NnzVA75FLJjm3kIS’]

 

 

 

 

Hefur þú prófað að sleppa sykri? Hversu mikinn sykur telur þú þig neyta í dag? segðu mér frá að neðan hver reynsla þín er

Fjörið gerist í spjallinu

Ef þér líkaði greinin, smelltu á like á facebook og deildu með vinum og ekki hika við að skrá þig í sykurlausu áskorunina, sykurleysið verður bráð leikur einn fyrir þér

Umfram allt eigðu yndislega viku

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Eyrún Þórðardóttir says:

    hvenar er næsta 14 daga sykurlausa áskorun?

    • Sara heilsumarkþjálfi says:

      Sæl Eyrún, því miður er ekki komin dagsetning, en við látum vita um leið og hún hefst á ný.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *