5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum
Árangurssaga Þorgerðar: Aldrei of seint að breyta um lífsstíl
20th August 2019
Magnesíum drykkurinn sem slær á sykurþörf og bætir svefn!
4th September 2019
Árangurssaga Þorgerðar: Aldrei of seint að breyta um lífsstíl
20th August 2019
Magnesíum drykkurinn sem slær á sykurþörf og bætir svefn!
4th September 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum

“Ég finn eitthvað til í hálsinum” sagði maðurinn minn hálf-nefmæltur.

“Í alvöru, við þurfum að redda þvi” svaraði ég.

Daginn eftir, á sunnudagseftirmiðdegi var ég mætt með djúsvélina og gerði þessi dúndur-heilsuskot fyrir okkur hjónin til að drekka næstu tvo morgna. 

Þessi skot eru eitt það besta sem þú getur gefið líkamanum þegar það eru flensur og kvefpestir að ganga.

Ég vara þó við – skotin rífa vel í!

Hægt er að horfa á myndband af mér að gera skotin undir “highlights” á Instagram reikningnum mínum (smelltu hér til að skoða).

Ef þú hefur ekki notað oreganóolíu áður þá ertu að missa af miklu! Oreganóolía er nefnilega eitt það besta sem þú getur gefið líkamanum. Hún er bakteríudrepandi og vinnur gegn kvefi og flensukvillum, ásamt því að vera bólgueyðandi og jafnvel talin hafa verkjastillandi áhrif!

Engifer er sérstaklega gott fyrir meltinguna og hálsinn, eins og ég hef oft minnst á áður! Engifer er einnig örvandi fyrir blóðrásina og ríkt af b-vítamínum, járni, mangan, magnesíum og sinki.  


5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum 

Gefur 4 skot

2-3 engiferrót, pressuð
4 msk eplaedik (ég notaði frá Biona)
1 sítróna, kreist
12-15 dropar oreganóolía (ég notaði frá Kolbrúnu grasalækni)
12-15 dropar sólhattur (ég notaði frá  A. Vogel)

Viðbót fyrir djarfa:
klípa af cayenne pipar
½-1 tsk túrmerikduft og nokkrar klípur af svörtum pipar (ég notaði frá Sonnete sem fæst í Heilsuhúsinu og Nettó)

1. Pressið engifer í safapressu. Sjá athugasemdir með hvaða tegund ég nota og aðra valkosti ef þú átt ekki safapressu.

2. Bætið við ediki, sítrónusafa, olíu og hrærið. Geymist í loftþéttri glerkrukku næstu 3 daga.

3. Takið skot á morgnanna (c.a 20-40 ml.) 

Athugasemdir:

* Ég nota Hurom safapressu, ég fékk hana í Heimilistækjum á sínum tíma.

*Ef þú átt ekki safapressu getur þú sett hráefnin í blandara með smá af vatni og hrært eins vel og hægt er. Þetta má síðan fara í gegnum grisjupoka til að losna við hratið. Einnig er hægt að kaupa tilbúin engiferskot t.d frá Sollu. Að djúsa engifer er þó best.

*Vörurnar sem ég notaði fást í Nettó og Heilsuhúsinu.

Ég veit þú sérð ekki eftir því að gera þessi heilsuskot!

Láttu vita í spjallið að neðan ef þú prófar og hvað þitt helsta heilsuráð er gegn kvefi/flensu!

Endilega deilið uppskriftinni á Facebook elsku vinir! Ef þú prófar uppskriftina er ég alltaf glöð að sjá myndir á Instagram 🙂 Mundu bara að tagga mig @julias.food

Viltu fá ókeypis 1 dags matseðil sem eykur orku og vellíðan?

Matseðilinn gefur uppskriftir og sýnishorn frá Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu. Ef þú glímir við orkuleysi, verki eða sykurlöngun og vilt koma þér af stað eftir sumarið – ekki bíða lengur. Náðu þér í matseðilinn HÉR

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *