Margprófuð leið til að brenna fitu, losa um verki og
fyllast orku 5 gómsætum dögum!
Þú ert á réttum stað! Því ég vil sjá ÞIG njóta lífsins full af orku laus við óþarfa bjúg og bólgur. En ekki týnast í upplýsinga flóðinu um heilsukúra sem fjölmiðlar drekkja okkur í.
Ég vil að þú upplifir að líkami þinn sé vel nærður, laus við eiturefni, að þér líði vel, þú vaknir með bros á vör og orku til að takast á við daginn.
Hreinsun er ein hraðvirkasta og áhrifaríkasta leiðin til að léttast og bæta líðan. Ekki eru allar hreinsanir jafn góðar. Í raun geta margar hreinsanir valdið skaða frekar en að gera gott með því að hræða líkamann svo hann heldur að hann sé að fara í svelti ástand (sem hægir á brennslunni, eykur blóðsykurmagnið eða gerir þig of þreytta og ringlaða til að klára vinnudaginn).
Ég býð þér upp á örugga, árangursríka og sannreynda hreinsun
Eftir margra ára reynslu í að rannsaka og prófa flest alla hreinsunarkúra hef ég uppgötvað hvað virkar -og hvað ekki- og síðasta áratuginn leitt þúsundir einstaklinga í gegnum áhrifaríkar hreinsanir sem raunverulega skila árangri sem endist, setja líkamann ekki í hættuástand og er ánægjulegt að fylgja eftir
Þegar ég prófaði þessa hreinsun sjálf fann ég strax mun ég vaknaði full af orku, hugurinn varð skýrari, og fötin pössuðu betur. Meltingin mín varð betri en ég gat nokkurn tímann hugsað mér.
Í dag hef ég hjálpað hundruðum íslenskra
einstaklinga í gegnum þessa hreinsun sem hafa upplifað sömu niðurstöður, ég persónulega hreinsa á þennan hátt nokkrum sinnum á ári.
Og nú er tækifæri þitt
Því ég vil virkilega sjá þig yfirstíga þær hindranir sem halda líkama þínum föngnum í vef eiturefna og orsaka orkuleysi, verri svefn og fitumyndun. Ég vil að þú getir hafið nýtt tímabil í þínu lífi og liðið betur í þínu skinni.
Ég gerði þessa hreinsun fyrir þig til að auðvelda þér verkefnið
…svo þessi fasta fita sem þú glímir við akkúrat núna fari auðveldlega og komi ekki aftur, svo þú megir virkilega finna fyrir líkama sem brosir við þér á hverjum morgni og þú hafir meiri orku en þú nokkurn tímann héldir að þú byggir yfir.
Með 5-daga matarhreinsun getur þú upplifað eitthvað nýtt.
Fullt verð 19.990 - 50% afsláttur aðeins núna
9.990 ISK
✓ þyngdartap
✓ Aukin orka
✓ Skýrari hugsun
✓ Dregur úr óhollri matarlöngun
✓ Minni bólgur, bjúg og þroti
✓ Betri húð
✓ Sterkara ónæmiskerfi
✓ Útgeislun
✓ Betri melting
✓ Betri stjórn á matarlyst og matarskammti
„Allur bjúgur farinn á líkamanum, ég sé leggina og ökklana mína, finn ekkert til í hnjánum og ekki gleyma vefjagigtinni. Ég er nánast verkja laus sem er yndisleg tilfinning og ég er stútfull af orku. Mér hefur ekki liðið svona vel í mínum líkama í mörg ár plús það að það fóru 3 kíló í leiðinni, ekki slæmur bónus. Kallinn er alsæll með nýju líðan sína, kemur heim úr vinnu fullur af orku sem hefur ekki sést hér í nokkur ár. Allir á heimilinu eru búnir að njóta góðs af kvöldmatnum og eru ánægðir með matinn. Maturinn algjör snilld." - Sigríður Helga Sigfúsdóttir
Þessi hreinsun er alveg mögnuð. Fyrsta daginn var ég með útstæðan maga, á þriðja degi var hann horfinn. Ég er búin að vera í mörg ár að gera magaæfingar, fara í ýmsa megrunarkúra og fleira. Alltaf var maginn tryggur mér og fór ekki. Hans verður ekki saknað. Maðurinn minn er einnig himinn lifandi yfir þessari hreinsun, beltið er komið 3 götum þrengra og allur líkaminn í miklu betra standi. Það kom mér á óvart hvað hreinsunin var í raun auðveld, nægur matur og ég lærði margt. -Hildur Gylfadóttir
Aðalástæðan fyrir því að ég fór í þetta er að ég hef alltaf verið slæm í maganum, oft illt og hefur það að hamla mér mikið í daglegu lífi. Hef verið svo góð í maganum og góð melting núna þessa viku. Akkúrat það sem ég þurfti að prófa en hafði ekki komið mér í það. 2,5 kg farin og er það aukabónus fyrir mig, mér finnst samt líkamleg vellíðan vera mikilvægari líkamsþyngd…ég er sykurfíkill en hef farið 100% eftir þessu og finnst það ekkert mál. - Hrefna Björnsdóttir
Með hreinsuninni fékk ég strax betri húð, líflegra hár og fallegri neglur. Ég vakna á morgnana með flatan maga, enga undirhöku og bjúgur í andliti er úr sögunni. Meltingin er komin í betra horf og fötin ekki lengur að kæfa mig eða rennilásinn á stígvélunum að springa heldur frekar er allt laust á mér og mér líður ótrúlega vel. Það sem kom mér mest á óvart í hreinsuninni var hversu gómsætur maturinn var og hvað líkami minn virtist hreinsast vel af honum! Með hverjum degi varð eldamennskan styttri og auðveldari og hvert kvöld eins og á veitingahúsi. Maðurinn minn var hæstánægður með allt saman og kílóinn hans fjúku og orka hans hefur aldrei verið meiri. Hreinsunin hjálpaði mér að sjá hvað er hægt að gera góðan mat sem er hrikalega góður og hollur! Ég mun hiklaust tileinka mér flestar uppskriftirnar áfram og allar girnilegu snarl hugmyndirnar. -Ragnheiður Guðjónssen.
Skref 1: Undirbúningur
Skref 2: Hreinsunarvika
Skref 3: Áframhald
Fyrsta skrefið er að endurræsa hugarfarið áður en við byrjum á líkamanum. Af hverju heldurðu að þú dettir alltaf aftur í sama farið eftir að hafa komist á beinu brautina?
Þú munt líka fá 4 nákvæm skref til að taka í að undirbúa líkaman þinn og útrýma fæðutegundum sem valda þér orkuleysi, stífla meltingu og hindra þyngdartap.
Þá hefst 5-daga matarhreinsun! Fylgdu tilbúna eiturlosandi matseðli sem eykur brennslu og útrýmir helstu ofnæmisvaldandi fæðutegundum. Ég deili með þér nákvæmum skrefum til að taka á hverjum degi í hreinsun svo það fari ekki milli mála hvað er í lagi og hvað ekki.
Haltu áfram að upplifað eðlilegt þyngdartap, aukna orku, vellíðan gef ég þér nokkur verkfæri svo þú getur haldið áfram að léttast og upplifað áfram þessa vellíðan sem þú hefur nú þegar náð.
Skref 1: Undirbúningur
Fyrsta skrefið er að endurræsa hugarfarið áður en við byrjum á líkamanum. Af hverju heldurðu að þú dettir alltaf aftur í sama farið eftir að hafa komist á beinu brautina?
Þú munt líka fá 4 nákvæm skref til að taka í að undirbúa líkaman þinn og útrýma fæðutegundum sem valda þér orkuleysi, stífla meltingu og hindra þyngdartap.
Skref 2: Hreinsunarvika
Þá hefst 5-daga matarhreinsun! Fylgdu tilbúna eiturlosandi matseðli sem eykur brennslu og útrýmir helstu ofnæmisvaldandi fæðutegundum. Ég deili með þér nákvæmum skrefum til að taka á hverjum degi í hreinsun svo það fari ekki milli mála hvað er í lagi og hvað ekki.
Skref 3: Áframhald
Haltu áfram að upplifað eðlilegt þyngdartap, aukna orku, vellíðan gef ég þér nokkur verkfæri svo þú getur haldið áfram að léttast og upplifað áfram þessa vellíðan sem þú hefur nú þegar náð.
SKILYRÐISLAUS ÁNÆGJUÁBYRGÐ
Þessi hreinsun er tryggð með 100% skilyrðislausri ábyrgð frá mér – ef þér líkar ekki gögnin sem þú færð hefur þú 24 klst til þess að tilkynna okkur það og við endurgreiðum þér með glöðu geði án þess að spyrja nokkurs.
Fullt verð 19.990 - 50% afsláttur aðeins núna
9.990 ISK
Áður en ég byrjaði á 5-daga hreinsunina leið mér alveg hræðilega, meltingin og heilsan var alveg í rúst. Ég var síþreytt, verkjaði allstaðar og var með uppþembu, bjúg og bakflæði. Ég átti erfitt með svefn og vöku alla daga. Leið eins og gamalli konu sem væri tonn að þyngd og nennti ekki neinu.
Með 5 daga hreinsunina leið strax mér miklu betur ég vakna um leið og vekjaraklukkan hringir og fer strax fram úr án þess að draga lappirnar í 40 mín, í fyrsta sinn á ævinni. Ég get einbeitt mér að því sem ég geri án þess að dotta og endist allan daginn sem er algjört æði! Ég er hætt að vera þunglynd eða pirruð alla daga og mér finnst ég léttari á fæti og hætt að verkja í liðamót og get farið í lengri göngu- eða verslunartúra. Meltingin hefur einnig lagast töluvert. Hreinsunin opnaði augun mín fyrir því hversu slæmur lífstíllinn minn var og hvaða fæða var einfaldlega skaðleg fyrir mig. Nú veit ég hvernig ég á að undirbúa mig þegar ég fer út úr húsi, í vinnu eða á ferðalag og hversu mikilvæg sum bætiefni eru fyrir heilsuna og ég get alls ekki verið án. Það kom mér á óvart að þessi hreinsun virkilega virkaði, hvað ég var strax orkumeiri og skýrari í hugsun, að uppþemba og bjúgur hurfu ótrúlega hratt og ég leit ekki lengur út eins og ég væri ólétt. -Margrét María Guðjónsdóttir
Þú getur keypt einkaleiðsögn í hreinsun með heilsumarkþjálfa og næringar- og lífstílsráðgjafa fyrir nokkrar þúsundir króna.
Fyrir sama pening getur þú keypt fjölda hreinsunar bóka sem enda á að safna ryki heima hjá þér eða kort í hot yoga í von um að svitna eiturefnum burt.
Nú í staðinn getur þú sparað þér hugarangrið, vesenið og í staðinn fjárfest í 5 daga matarhreinsun sem hefur verið sannreynd og skilar raunverulegum árangri.
Þú getur gripið í hana hvenær sem er, hvar sem er og aðgangur þinn rennur aldrei út.
Hreinsunin og vellíðan sem henni fylgir er handan við hornið. Þú getur hlaðið öllum gögnum niður og hafist handa um leið eða þegar þér hentar.
Eins og við báðar vitum þá kemur fjárfesting í heilsunni margfalt til baka.
Og hver veit nema þessi hreinsun sé skrefið í áttina að allt öðru lífi og líðan hjá þér?
Heildarverð í 5 daga matarhreinsun er því aðeins 19.990 kr
En leyfðu mér að gefa þér einstakt tilboðsverð núna á meðan við kynnum þessa hreinsun með 50% afslætti og með því að tryggja þér hreinsunina í dag færð þú hana á aðeins 9.990 kr.
Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara!
SKRÁÐU ÞIG NÚNA
5 daga matarhreinsun inniheldur eldaða rétti þ.a.m eldaðar súpur, grænmetisrétti, fiskirétti og fleira girnilegt. 5 daga hreinsunin er því kjörin að taka yfir vetrarmánuðina.
3 daga hráfæðishreinsun inniheldur rétti sem krefjast ekki eldunar og allar uppskriftir neytast því kaldar, með undantekningu við heita te drykki. Því er kjörið að taka 3 daga hreinsunina yfir hlýrri mánuði ársins.
Gott er að endurtaka hvorra hreinsun fyrir sig árlega á mismunandi árstíma ef þess er kosið, þar sem báðar bjóða gjörólíkar nálganir til að hreinsa líkamann á blíðlegan og öruggan hátt.
Hreint ekki! Þessi hreinsun virkar alveg jafn vel fyrir karla og konur. Margir karlmenn hafa nú þegar farið í gegnum þessa 5 daga matarhreinsun og flestar konur elda fyrir alla á heimilinu. Ég hef aldrei heyrt af því að karlmaðurinn á heimilinu standi upp og fái sér Cheerios í staðinn fyrir kvöldmatinn og hafa uppskriftirnar komið mörgum virkilega á óvart.
Eini munurinn á hreinsun karla og kvenna er sá að oft léttast kallarnir meira (ég veit það stelpur, svekkjandi, en svona er lífið
Nei, við leggjum áherslu á fasta fæðu en aftur á móti notum við ýmist boost drykki og safa á viðeigandi tíma dags til að hámarka hreinsun líkamans (en við þú færð alltaf morgunmat, hádegismat og kvöldmat).
Margar upplifa matinn of mikinn ef eitthvað er. Þú munt jafnframt læra nýjar leiðir að elda og snarla sem er líklegt að þú tileinkar þér eftir hreinsunina. Svo nei þú verður ekki svöng í 5-daga matarhreinsun.
Algjörlega! Flestir sem hreinsa hafa orð á því að þeir sofi betur og hafi MEIRI orku á meðan á hreinsun stendur.
Fyrstu dagar hreinsunar gætu verið orkuminni en síðustu dagarnir, en það veltur allt á því hversu mikið líkami þinn þarf á hreinsun að halda og hversu óhreinn hann raunverulega er. Aftur á móti með því að fylgja 4 hollráðuðum sem ég gef þér í undirbúningnum ertu örugg um að njóta ávinninga hreinsunarinnar fyrr.
Til þess að ná hámarks þyngdartapi og orku frá hreinsuninni mælum við með að þú fylgir leiðarvísinum nákvæmlega. Aftur á móti veit ég að þú ert upptekin og hefur öðru að sinna en matnum þessa vikuna og því gef ég þér hollráð ef þú þarft að fara út að borða eða þarft að grípa þér eitthvað á ferðinni.
Enn og aftur kemur þetta að undirbúningi og ég gef þér skýr skref um hvernig best er að fara að.
Það er ekkert til sem heitir að „klikka“ á hreinsuninni – flestir þátttakendur eru meira að segja hissa á hversu auðvelt það er að halda sig við hana þegar þeir eru á annað borð komnir af stað.
Ætlar þú virkilega að leyfa tæknina að stoppa þig hér? Þú ert búin að lesa alla leið hingað svo það hlýtur að hafa einhverja þýðingu, ekki satt? :)
Engar áhyggjur ef þú ert ekki tölvusnillingur, ég er það ekki heldur og hef sett þetta upp á sem einfaldastan máta fyrir þig og höfum við stuðningslið hjá Lifðu til Fulls sem getur hjálpað þér skref fyrir skref.
Í 5 daga matarhreinsun leggjum við strax í byrjun áherslu á að endurræsa hugarfar þitt og líkama. Þegar við mætum þyngdartapi í hreinsun með breyttu hugarfari hjálpar það okkur að taka þær ákvarðanir sem halda þér á beinu brautinni eftir hreinsun og útrýma hættunni á að þú farir aftur í sama farið.
Með því að fylgja skrefunum sem ég gef þér ertu örugg um að vera nærð, södd og sæl eftir þessa 5 daga og laus við allar óþarfa matarlanganir. Þar að auki hjálpa ég þér undir lokin með við hvernig þú getur skilið líkama þinn betur og haldið áfram.
Ímyndaðu þér að þú byrjir þessa hreinsun og haldir bara út í 3-daga (sem er mjög óalgengt að gerist). Á þessum 3 dögum færðu meiri orku, fullt af uppskriftum og kennslu til að koma þér af stað, væri það þá ekki þess virði samt sem áður? Í flestum tilfellum hefur konum einfaldlega liðið svo vel eftir fyrstu 3 dagana að þær hafa ekki viljað hætta.
5 daga matarhreinsun á þessu verði er aðeins í boði í dag. Eftir það er ólíklegt að hreinsunin býðst þér á þessu kjaraverði. 5 daga hreinsunin er fullkomin fyrir þig ef þú ert staðráðin í að byrja eitthvað nýtt fyrir þig og þína heilsu og með því að festa kaup á henni getur þú hafist handa hvenær sem er.
Fullt verð 19.990 - 50% afsláttur aðeins núna
9.990 ISK
© 2024 Lifðu til Fulls | Privacy policy