Uppskrift fyrir Kósý kvöld - holl uppskrift
heilbrigðum lífsstíl
Hvað felst í heilbrigðum lífsstíl? (birt í fréttablaðinu)
9th February 2013
spelt
Spelt eða Heilhveiti?
28th February 2013
heilbrigðum lífsstíl
Hvað felst í heilbrigðum lífsstíl? (birt í fréttablaðinu)
9th February 2013
spelt
Spelt eða Heilhveiti?
28th February 2013
Show all

Uppskrift fyrir Kósý kvöld – holl uppskrift

holl uppskrift

Hérna er góð og holl uppskrift að kósý kvöldi og jafnframt eitthvað sem ég hef áætlað að gera í kvöld….

Þessi uppskrift er ekki flókin en er alltaf klassísk! Matur + Mynd

Hakk bollur
500 g hakk 
100 g oregano
1/2 dl rifinn parmesan
2 pressaðir hvítlauksgeirar
2 egg
1 tsk þurrkað basil
10-12 gróf jakobs kex, mulið
Salt og pipar

Sósan
2 dósir niðursoðnir tómatar eða 500 g tómatapassata
3 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
1 msk basil
Salt og pipar

Spelt eða heilhveiti spagetti

1. Blandið öllu vel saman og mótið kjötbollur á stærð við golfkúlur – gefur 24 kúlur.
2. Mýkið hvítlaukinn í 2-3 mínútur í olíu á pönnu.
3.Bætið þá tómötunum og kryddunum á pönnuna og látið malla á vægum hita í um 20 mínútur og geymið
4. Steikið kjötbollurnar í olíu á pönnu, brúnið vel á öllum hliðum í um tíu mínútum
5. Hellið sósunni svo yfir pönnuna og látið malla í henni í 20-30 mínútur eða þar til að bollurnar eru fulleldaðar.
6. Berið fram með spaghetti. Dreifið fínt saxaðri steinselju yfir. Hafið nýrifinn parmesan til hliðar(val)[jamiesocial]

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *