Sýnishorn af degi í L.A. og jólatilboð!
Læknirinn í eldhúsinu
Viðtal og uppskrift – Læknirinn í eldhúsinu
8th November 2016
sykurlaus jól námskeið
3 námskeið í desember
25th November 2016
Læknirinn í eldhúsinu
Viðtal og uppskrift – Læknirinn í eldhúsinu
8th November 2016
sykurlaus jól námskeið
3 námskeið í desember
25th November 2016
Show all

Sýnishorn af degi í L.A. og jólatilboð!

Jólatilboð

Hæhæ

Það er búið að vera ekkert smá gaman hér í hráfæðiskóla Matthew Kenney í sólríku Kaliforníu.

Við hefjum daginn snemma á hverjum degi og gerum uppskrift eftir uppskrift af girnilegum hráfæðisréttum. Ef ég væri ekki í góðri hreyfingu og ég tala nú ekki um ef að maturinn væri ekki svona hollur, að þá kæmi ég trúlega rúllandi heim.

Eftir skóla reyni ég svo að njóta borgarinnar eða sleikja sólina á ströndinni.

Í skólanum gerum við allt frá morgunmat til aðalrétta og eftirrétta sem er ótúlega skemmtilegt og því mikil reynsla sem maður kemur með til baka.

Núna á föstudaginn berum við fram okkar eigin 3 rétta kúrs sem okkar lokaverkefni og verður spennandi að sjá hvað maður nær að malla fram.

Ég vildi því bjóða þér að fylgjast betur með á Facebook, Instagram og Snapchat ef þú ert ekki nú þegar að fylgjast með. -einnig getur þú bætt mér beint við á snapchat með notendanafninu: lifdutilfulls

Hér sérð þú m.a. ómótstæðilegan hvítsúkkulaði ostakökuís sem við gerðum, með bláberja tvisti, ostakökubotni og súkkulaði fudge sósu…þarf að segja eitthvað meira?!

Raw ostabakki:

Ég hlakka mikið til að koma aftur á klakann og deila með þér þekkingunni úr skólanum, enda með þó nokkuð margar nýjar hugmyndir undir beltinu…

Heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi

p.s. Þar sem jólin eru handan við hornið er ég að opna fyrir sérstakt tilboð á sannprófuðu 5 daga matarhreinsun okkar og uppskriftabókinni!  Það er upplagt að taka smá hreinsun áður en jólin skella á! Farðu hér til að sjá tilboðið!

Jólatilboð

Ef þú vilt gefa bókina sem jólagjöf, sérð þú líka ‘4 fyrir 3’ tilboð hér!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *