Svona lítur hreinsunardagur út
Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum
17th December 2018
5 ráð til að setja þér markmið sem þú nærð
15th January 2019
Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum
17th December 2018
5 ráð til að setja þér markmið sem þú nærð
15th January 2019
Show all

Svona lítur hreinsunardagur út

Gleðilegt nýtt ár!

Í dag deili ég með þér uppskriftum fyrir nýárshreinsun og opnum við með trompi fyrir skráningu í okkar sívinsælu (og árlegu) ókeypis 14 daga sykurlausa áskorun!

Áskoruninn hefst mánudaginn 28.janúar og er skráning hafin hér! Mæli ég með að skrá þig strax til að trygga þér stað!

Með þáttöku færðu innkaupalista, hagnýt ráð og stuðning, auk 5 uppskrifta í hvorri viku fyrir sig, sem slá á sykurlöngun og auka orkuna. Allt ókeypis.

Í fyrra tóku alls 25.000 manns þátt og veit ég að margir bíða með eftirvæntingu eftir að taka þátt aftur, enda ávinningar þess að vera með miklir, þar á meðal aukin orka, léttari líkami og vellíðan!

Það eina sem þú þarft að gera til að vera með, er að smella hér og skrá þig!

Á nýju ári þykir mér tilvalið að taka einn dag í það minnsta í smá hreinsun. Einföld hreinsun eins og sú sem ég deili með þér í dag frískar uppá líkamann, losar um bólgur og kemur manni rétt af stað inn í nýja árið.

Það er algengur misskilningur að við þurfum að fasta eða drekka eingöngu safa til þess að hreinsa líkamann. Hreinsunardagurinn hér neðar inniheldur bæði safa, jógúrt, hrökkkex, súpu og meira að segja súkkulaðikúlu.

Hreinsun er tími til að borða hreina fæðu og gefa meltingunni hvíld frá reyktum og sykruðum mat sem oft fylgir hátíðarhöldum. Góður svefn og að hlúa að líkamanum er eitthvað sem ég legg frekar áherslu á á hreinsunardegi.

Smá undirbúningur daginn áður en hreinsunardagur er tekinn er ávísun á að dagurinn gangur betur fyrir sig. Gefðu þér klukkustund eða svo til að versla inn og undirbúa. Einnig er hægt er að kaupa tilbúna safa eða búst drykki t.d frá Gló til að minnka fyrirhöfn.

DSC_0005

Hreinsunardagur

Morgunmatur – Grænn og hreinsandi safi

Það er engin betri leið (að mínu mati) til að byrja daginn heldur en á hressandi grænum safa!

Millimál – Súkkulaðikúlur

Millimálin eru val, ef maður finnur fyrir orkuleysi

Hádegi – Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

Það má útfæra jógúrtin á ýmsan hátt og nota með því hnetur, möndlur eða aðra ávexti en þá sem eru í uppskriftinni.

Millimál –  Hrökkbrauð og hummus

Einnig er hægt að nota gulrætur eða annað grænmeti í staðinn fyrir hrökkbrauð.

Kvöldmatur – Súpa eða Linsubaunaréttur

Hér mæli ég með að nota karrýrétt frá Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu eða linsubaunasúpu með engifer sem þú finnur hér.

Undirbúningur

Verslið inn daginn áður, leggið chia fræ í bleyti fyrir jógúrt, útbúið hrökkbrauð eða/og súkkulaðikúlur til að hafa við hendi, einnig má flýta enn frekar fyrir og útbúa safann og jógúrtið.

Byrjið daginn á grænum safa og borðið næst þegar hungurtilfiningin kallar. Ef svengd er ekki mikil yfir daginn er óþarfi að borða allan matinn hér á matseðlinum. Ykkur er velkomið að skipta uppröðun uppskrifta eftir hentisemi, þetta hér að ofan er bara tillaga en má algjörlega hliðra til.

Ég vona að greinin veiti þér innblástur að setja heilsuna í forgang á þessu nýja ári og að þú verðir með okkur í ókeypis 14 daga sykurlausu áskoruninni sem hefst 28.janúar! Ég get lofað því að áskorunin í ár verður sú allra besta hingað til!

Allar uppskriftirnar eru einfaldar og þægilegar, vegan og lausar við hvítan sykur og glúten.

Láttu vita í spjallið að neðan ef þú ætlar að skella þér í einn góðan hreinsunardag og ekki gleyma að tagga mig (@julias.food) á Instagram ef þú prófar uppskriftirnar! Mér finnst alltaf jafn gaman að heyra og sjá frá ykkur.

Deildu síðan yfir á Facebook og byrjum árið með því að fylla líkamann af orkuríkum mat!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *