Af hverju sumarið er BESTI tíminn að taka heilsuna í gegn
Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?
21st May 2019
Forsala á uppskrifabók og bónusar!
3rd July 2019
Hvað þýðir það að “vera besta útgáfan af sjálfri þér”?
21st May 2019
Forsala á uppskrifabók og bónusar!
3rd July 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Af hverju sumarið er BESTI tíminn að taka heilsuna í gegn

Síðsutu dagarnir til að trygga þér stað og sumartilboð á Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu.

Ég hef aðeins verið að hlera hjá þeim sem hafa nú þegar skrá sig – og einnig tekið eftir því að margir virðast velta sama hlutnum fyrir sér varðandi það að skrá sig. En það er hvort það verði ekki erfitt að halda þetta út í sumar? 

Sumarið er tíminn sem fólk vill grilla, halda partý og matarboð, borða ís og gera vel við sig í sumarfríum. Tilhugsunin um það að vera fara eftir matarprógrami eða sleppa sykri getur því verið óspennandi á þessum tíma.

Ég slæ þessa efasemd alltaf strax útaf borðinu því ég vil meina að sumarið sé einmitt einn besti tíminn til að taka mataræðið í gegn!

Enda sýnir 30 daga námskeiðið þér að það sé vel hægt að borða góðan mat, grilla með vinum og meira að segja ís og sætindi í sumar OG á sama tíma öðlast aukna orku, léttari líkama og vellíðan. Og það þarf ekki að vera vesen eða tímafrekt.

Er saga Sigrúnar sem ég deili með þér í dag akkúrat sú sem segir betur frá því.

Sigrún hefur lokið Frískari og orkumeiri námskeiðinu og hefur hún verið ótrúlega dugleg að deila myndum af mat og uppfærslum af ferðalagi sínu í átt að betra matræði og heilsu. Hún er algjör fyrirmynd og með mjög heilbrigt viðhorf gagnvart lífsstílsbreytingum, hún tekur þetta algjörlega eftir sínum takti og hefur náð frábærum árangi.

Frá 110 kílóum niður í 83 kíló

Þegar Sigrún byrjaði að taka mataræðið í gegn var hún 110 kg. Með heilbrigðum breytingum eins og að minnka djús og brauð náði hún sér niður í 89 kg en rétt áður en hún byrjaði á Frískari og orkumeiri námskeiðinu var hún ekki á góðum stað, fékk sér oft í glas og nammi og Domino’s pizzur. “Rétt áður en ég byrjaði hjá ykkur var ég að rokka á milli 87-89kg. Mig hefur dreymt um að komast niður í kjörþyngd þ.e.a.s. 79-80kg. “ Segir Sigrún. 



Sigrún er dugleg að deila með okkur myndum af matnum sínum og ferlinu.

Ótrúlega fljótlegur árangur, án öfga

“Það fóru strax tvö kíló á fyrstu 1-2 vikunum. Engin löngun í sætabrauð né sykur, þá nammi og þess háttar. Þremur mánuðum eftir að ég byrjaði hjá ykkur var ég komin niður um 4 kg.” segir Sigrún og bætir við að hún sé orkumeiri og sofi að jafnaði betur. Þrátt fyrir þennan fljótlega árangur hefur Sigrún alls ekki tekið þetta á öfgunum. “Kýs frekar að gera þetta í smáskrefum og í dag kíki ég reglulega á gögnin frá námskeiðinu til að minna mig á og fá fleiri hugmyndir.” segir hún.

“Eftir námskeiðið er ég meðvitaðari um sykurneysluna og huga að fjölbreyttu matarræði”

Lítið stress fyrir sumarið

Við höfðum áhuga á að heyra hvernig Sigrún sæi sumarið fyrir sér, nú þegar hún er komin af stað með lífsstílsbreytinguna, “Ég er að fara til Portúgals í sumar, mun borða það sem er á boðstólnum þar en passa samt að versla hollt.” segir hún. “Er að vinna í að skipuleggja ísskápinn líka. Trúi því að með tíð og tíma að ég mun eyða minna í mat.”

“Námskeiðinu fylgir góður stuðningur og hugmyndir. Gaman að deila reynslunni til hinna líka.” bætir hún við.

Frískari og orkumeiri námskeiðið er sniðið til þess að fólk geti breytt mataræðinu en samt fengið sér ís, grillað með vinunum og gert vel við sig í útilegum og fríum.

Þetta snýst frekar um að lítil skref í átt að betra lífi!

Taktu heilsuna með trompi í sumar

Tryggðu þér SUMARTILBOÐIÐ og skráðu þig á meðan þú getur! Skráningu fer að LJÚKA!

Öðlastu orku og fínar línur fyrir sumarið!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *