Rauðrófusafi fyrir bleikan október
Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
2nd October 2018
Við erum 6 ára! Vinsælustu uppskriftir og blogg!
24th October 2018
Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar
2nd October 2018
Við erum 6 ára! Vinsælustu uppskriftir og blogg!
24th October 2018
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Rauðrófusafi fyrir bleikan október

Rauðrófusafi

Í tilefni bleiku slaufunnar langar mig að deila mér þér þeirri fæðu sem virkast hvað mest sem forvörn gegn krabbameini ásamt gómsætri og fagurbleikri uppskrift.

Á haustin þykir mér kjörinn tími til þess að hreinsa líkamann með ýmsum fæðutegundum sem efla ónæmiskerfið og hrista burt slappleika. Þá þykir mér kjörið að bæta þessari fæðu við mataræðið enda styður hún við afeitrun líkamans.

Fæðan hentar vel bleiku slaufunni, enda fagurbleik á litinn.  Og fæðan er að sjálfsögðu rauðrófa.

Rauðrófusafi

Rannsóknir sýna að bleiki liturinn frá rauðrófunum inniheldur öflug jurtaefni sem eru talin frábær vörn gegn krabbameini. Rauðrófusafinn dregur úr myndun æxla og verið er að rannsaka hvernig nota megi rauðróf­usafa við meðhöndl­un á krabba­mein­um í brisi, brjóst­um og blöðru­hálskirtli.

Rauðrófur eru einnig taldar:

  • bæta hormónajafnvægið
  • styðja við afeitrun og hjálpa til við að hreinsa blóð og lifur.
  • lækka blóðþrýsting
  • draga úr bólgum
  • auka úthald og kraft á æfingum

Rauðrófur eru því frábærar fyrir konur á breytingarskeiði eða fyrir þá sem stunda miklar íþróttir. Sjálf tek ég rauðrófusafann sem ég deili nú með þér fyrir æfingar og finn ég kraftinn sem fylgir þeim.

Engar áhyggjur ef þú ert ekki hrifin af bragðinu af rauðrófum, uppskriftin er náttúrulega sætuð með hindberjum sem dregur úr moldarbragðinu sem margir finna af rauðrófum.

Rauðrófusafi

Rauðrófusafi

3 stórar rauðrófur
2 gulrætur
3 epli
300 gr lífræn hindber frosin, látin þiðna (ég nota lífrænu hindberin frá Coop sem fást í Nettó)
Collagen duft frá Feel Iceland (val, en frábær fyrirbygging á öldrun húðar og getur dregur úr liðverkjum)

1. Setjið rauðrófurnar, gulrætur og epli í gegnum safapressu. Ef þú átt ekki safapressu getur þú sett allt í gegnum blandara en þá mæli ég með því að afhýða rauðrófurnar og eplin fyrst og blanda svo. Næst getur þú sett blönduna í gegnum grisjupoka eða sigti til að fjarlægja allar trefjar.

2. Setjið næst blönduna yfir í blandarann með hindberjunum og hrærið vel. Bætið þremur skömmtum af Collagen dufti út í blandarann, ef þið notið slíkt, og hrærið vandlega saman við.

3. Hellið safanum í 3-4 glerflöskur (fer eftir stærð á flöskum) og geymið í kæli. Safinn geymist ferskur í 4-5 daga ef þú notar kaldpressaða safapressu annars í geymist hann í 2-3 daga ferskur.

Ég vona að þú prófir þennan bleika rauðrófusafa en ég bý hann oft til á sunnudögum og gríp í hann fyrir æfingar í gegnum vikuna. Æðisleg orka og ofboðslega góð næring fyrir líkama, húð, hár og neglur!

Það er svo margt annað sem mætti nýta rauðrófurnar í og þú gætir til dæmis prófað að gera bleikann búst drykkhindberjaskál, einfalt bleikt kínósalat eða bollakökur með vegan hindberjasmjörkremi!

Ef þú hefur áhuga á alvöru matarhreinsun mæli ég með því að þú kynnir þér 5 daga matarhreinsunina mína hér. Hún gefur einfalda og ánægjulega leið að frískari líkama, aukinni orku og minni sykurlöngun.

Endilega deilið áfram og skildu eftir komment hér að neðan ef þú hefur einhverjar spurningar. Svo er alltaf ánægjulegt að sjá ykkar útgáfu af rauðrófu-uppskrift á samfélagsmiðlum. Bæði á Facebook og Instagram.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Margrét Guðmundsdóttir says:

    Glæsilegt !Takk fyrir?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *