Vilt þú vera með?

Tvö laus störf hjá Lifðu til fulls

Lifðu til Fulls er leiðandi í heilsumarkþjálfun hérlendis. Við hjálpum einstaklingum að léttast á náttúrulegan hátt, bæta heilsuna og auka orku með lífsstílsbreytingum.

Við fræðum og hvetjum yfir 20.000 einstaklinga vikulega með fréttabréfum okkar, höldum þjálfanir og ókeypis sykurlausar áskoranir svo einstaklingar geti lifað til fulls í eigin skinni.

Við fáum fjöldan allan af árangurssögum sendar til okkar um breytt líf og líðan og starfsemin er virkilega gefandi og jákvæð.

Fyrirtækið fer nú ört vaxandi og leitum við eftir einstaklingum í tvær stöður hjá okkur. Báðar stöður eru hlutastarf og býðst viðkomandi að stjórna eigin vinnutíma að nokkru leiti og vinna heima hjá sér. Ef viðkomandi telur sig uppfylla skilyrði fyrir bæði störfin er frjálst að sækja um þau bæði.

1) Heilsumarkþjálfi

2) Viðtöl við kúnna um þjónustu og sölu

Heilsumarkþjálfi Lifðu til fulls

  • Starfið felur í sér að taka einstaklingsviðtöl við kúnna í þjálfun hjá okkur. Viðtölin eru tekin í gegnum síma eða skype og stendur hvert þeirra yfir í ca. 50 mín.
  • Hefur þú ánægju af því að hjálpa öðrum að bættri heilsu sem heilsumarkþjálfi?
  • Nýtur þú þess að vera útrétt hönd þegar einhver þarf á því að halda og að sjá aðra blómstra?

Hvað munt þú gera í starfinu?

  • Halda utan um kúnna og kúnnahóp
  • Mæta undirbúin og taka einstaklingsviðtöl við kúnna (viðtöl tekin í síma í ca. 50 mín)
  • Fylgja kúnnum eftir í tölvupósti og síma
  • Fara sjálf í gegnum þjálfun eins og kúnnar til að skilja upplifun þeirra
  • Vinna að vexti fyrirtækisins og hvernig hægt sé að betrumbæta upplifun kúnna

Hæfniskröfur:

  • Þarf að vera útskrifaður heilsumarkþjálfi frá IIN (Institute og Integrative Nutrition) eða öðrum sambærilegum skóla (markþjálfi er ekki hið sama)

Þú ert kjörin ef þú..:

  • Vilt starfa sem heilsumarkþjálfi og hefur áhuga á að vaxa með fyrirtækinu Lifðu til fulls
  • Elskar að þjónusta og hjálpa öðrum
  • Ert…
  • Góðhjörtuð
  • Skipulögð
  • Tæknivædd
  • Úrræðagóð og örugg í heilsumálum
  • Orkumikill

Tímaskuldbinding:

  • Þú heldur utan um ca. 15-30 kúnnahóp tvisvar yfir árið frá mars-júlí og svo aftur í sept-des 2017.
  • Tekin eru þrjú viðtöl við hvern kúnna. Athugið að símtalsfjöldi á kúnna getur verið lægri ef kúnni ákveður að bóka ekki öll símtölin.

Af hverju þú ættir að hafa áhuga á starfinu:

  • Þetta er tækifæri til að hjálpa öðrum að breyta lífi sínu til hins betra og fylgjast með þeim blómstra.
  • Þú munt eiga tök á að vinna með vaxandi fyrirtæki sem hefur góð áhrif á vellíðan fólks.
  • Þetta er tækifæri til að stuðla að betrumbættum þjálfunum og bættri upplifun kúnnans.
  • Árlegur aðgangur að efni í þjálfunum innan fyrirtækisins í tengslum við heilsu, þyngdartap og aukna orku.

Viðtöl við kúnna um þjónustu og sölu

  • Ert þú fljót að byggja upp sambönd grundvölluð á trúnaði og trausti, með öllum týpum af fólki?
  • Það krefst hæfni að hlusta og samkennd, næmni og hæfni í að geta verið sú sem viðskiptavinurinn þarfnast hverju sinni.
  • Hefur þú ánægju af því að vinna undir álagi og á sölulaunum?
  • Þá gæti þessi staða verið sú rétta fyrir þig.

Hvað munt þú gera í starfinu?

  • Taka ókeypis viðtöl við hugsanlega kúnna til að athuga hvort þjálfunin sé rétt fyrir þau.
  • Fylgja kúnnum eftir í tölvupósti og/eða síma og tryggja þeim ánægju og aðstoð.
  • Svara fyrirspurnum og áhyggjum kúnna og hlusta eftir þörfum þeirra.
  • Aðstoða kúnna með að ganga rafrænt frá greiðslum fyrir þjálfun.
  • Hlusta og öðlast skilning á því hvað viðskiptavinurinn þarf og finna lausnir.
  • Svara fyrirspurnum áhugasamra og fylgja eftir í spjallkerfi.

Hlutir sem þú hefur gert áður:

  • Unnið í sölustarfi í síma
  • Sannfært aðra í kringum þig að hallast að þínum hugmyndum með hreinskilni og einlægni

Þú ert ekki kjörin ef þú:

  • Vilt öryggi í launum
  • Ert orkulítil
  • Vilt vinna eftir klukkunni frekar en eftir útkomu

Þú ert kjörin ef þú ert:

  • Heiðarleg
  • Viljug til að setja þig í spor hugsanlegra viðskiptavina
  • Áhrifamikil og sannfærandi
  • Orkumikil
  • Viljug til að gefa kúnnanum auka tíma og athygli ef þarf og hlusta á undirliggandi þarfir og ótta
  • Ef þú elskar að vinna sjálfstætt og sjá vinna að hvernig þú getur bætt þig
  • Ef þú býrð yfir hæfni og hefur tilhneigingu til að læra hvernig á að bera sig í símtalinu ásamt því að þekkja vörur og þjónustu fyrirtækisins inn og út

Afhverju þú ættir að hafa áhuga á starfinu:

  • Þetta er tækifæri til að hjálpa öðrum að breyta lífi sínu til hins betra og fylgjast með þeim blómstra.
  • Þú munt eiga tök á að vinna með vaxandi fyrirtæki sem hefur góð áhrif á vellíðan fólks.
  • Þetta er tækifæri til að stuðla að betrumbættum þjálfunum og upplifun kúnnans.
  • Árlegur aðgangur að efni í þjálfunum innan fyrirtækisins í tengslum við heilsu, þyngdartap og aukna orku.

Tímaskuldbinding:

  • Vinnan mun krefjast þess þú vinnir í gegnum síma og takir 3-4 vikur í senn nokkrum sinnum yfir árið þar sem þú vinnur í törnum. Það er meiri vinna í boði í framtíðinni. Laun eru árangurstengd sölulaun eftir samkomlagi. Gert er ráð fyrir að lágmarki 40 viðtölum og að hámarki 80 viðtölum á þessum 3-4 vikum (meira ef vel gengur).
  • Umsækjendur þurfa að eiga tölvu og síma og fer vinna og þjálfun fram í þeim forritum sem notuð eru innan Lifðu til Fulls. Umsækjendur eru beðnir að fylla út umsóknina sem fylgir hér að neðan, ásamt því að senda inn ferilskrá ef til er. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum en verður lokað fyrir umsóknir 30.jan.2017.


Höfundarréttur @Lifðu Til Fulls slf. 2017