Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana
Acai skálin
16th May 2017
Ferðalag mitt til Evrópu og Asíu!
29th May 2017
Acai skálin
16th May 2017
Ferðalag mitt til Evrópu og Asíu!
29th May 2017
Show all

Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

kókosjógúrt

Lykillinn að góðum morgunmat er eitthvað sem er einfalt og fljótlegt en á sama tíma gefur góða orku og næringu inní daginn, kókósjógúrtið er akkúrat þannig.

Kókosjógúrt-gerð hefst yfirleitt á sunnudagseftirmiðdögum hér á bæ. Slík jógúrtgerð tekur mig ekki nema 5 mínútur, öllu er skellt í blandara og geymist svo í 5 krukkum út vikuna.

Þetta grípur kallinn minn svo með sér sem morgunmat á virkum dögum. Jógúrtin eru því fullkomin fyrir fólk sem á annríkt og vill geta gripið eitthvað fljótlegt með sér í morgunmat eða sem milli mál.

Ég breyti reglulega til í jógúrt-gerðinni en þessa dagana er kókosjógúrt með jarðaberjum og banana það sem hefur slegið verulega í gegn! Þú verður að prófa þessa uppskrift!

kókosjógúrt

Jógúrtin fara sérlega vel í magann enda eru þau rík af hollri fitu úr kókósmjólkinni og góðum trefjum úr chia fræum sem efla meltinguna og gefa kraft fyrir daginn. Orðið chia merkir styrkur sem lýsir fræunum vel.

Ég legg oftast chia fræin í bleyti kvöldið áður en ég geri jógúrtin en þegar það gleymist þá læt ég þau liggja í bleyti í sirka 10 mínútur áður en ég held áfram.

Lesa einnig:
Kókosjógúrt með ananas, granóla og ferskri myntu
Hindberjaskálin
Lúxus hafragrautur með bananamjólk

kókosjógúrt

Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

Kókosjógúrt
2 dósir kókosmjólk (ég nota frá Coop, sem fæst í Nettó)
2 bananar
1 krukka chia fræ, útbleytt (c.a 1/4 bolli chia fræ og 3/4 vatn)
8 msk hamp fræ
6 dropar stevia með vanillubragði frá Good Good

Jarðaberjakrem
1 dós kókosmjólk (ég nota frá Coop, sem fæst í Nettó)
1 300 gr poki frosin lífræn jarðaber, látin þiðna
1 msk hrár kókospálmanektar/hlynsíróp
6-8 dropar stevia, venjulegt eða með jarðaberjabragði frá Good Good
örlítið salt

Klst áður en uppskriftin er gerð eða daginn áður:
Leggið chia fræ í bleyti, annaðhvort daginn áður og geymið í kæli eða 10 mín áður.
Takið jarðaber úr frysti og látið pokann þiðna í skál í kæli.

DSC_2670


1. Setjið öll hráefnin fyrir kókosjógúrt í blandara fyrir utan chia fræ og hrærið þar til silkimjúkt. Bætið við chia fræum rétt undir lok og hrærið saman rétt svo chia fræin blandast samanvið. Það er fallegast ef chia fræin fá að vera heil en ekki alveg blönduð saman.

2. Hellið jógúrtinu í krukkur. Ég fyllti fimm 500 gr krukkur upp að 3/4 (krukkurnar endurnýtti ég undan kókosolíu). Skolið blandarakönnuna.

3. Setjið allt í jarðaberjakremið í blandara og hrærið þar til silkimjúkt. Mikilvægt er að jarðaberin séu búin að þiðna fyrir bestu útkomu. Salt magnið eru c.a einn klípa og mikilvægt að hafa með fyrir endaútkomu.

4. Hellið kremi í krukkurnar þar til þær eru fullar og geymið í kæli.

Að morgni má borða það með skeið eða hræra saman og drekka sem þykkt og gott jógúrt. Einnig má setja í skál og skreyta með berjum.

Hver er þinn uppáhalds morgunmatur ?

Láttu vita í spjallinu hér að neðan ef þú prófar og hvernig smakkast! Endilega deilið líka á Facebook og Instagram svo fleiri geti notið góðs af.

Ekki gleyma svo að deilda þessari uppskriftarslóð með vinkonu sem þér þykir vænt um. 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

14 Comments

  1. Unnur says:

    Þetta ætla ég aldeilis að prufa.
    En verður útkoman eins ef ég nota light kókosmjólk?

    Bkv
    Unnur

  2. Þórlaug Ólafsdóttir says:

    Hvaða sort af kókósmjólk notar þú?

  3. Svala Erlendsdóttir says:

    Ég geri þetta jógúrt mjög oft en set chia fræin ekki í bleyti heldur beint útí jógúrtina. Þau draga í sig bleytu úr kókosmjólkinni og gera hana þykka og ég borða hana með skeið

  4. Gugga says:

    Get eg notað eitthvað í staðin fyrir stevíu? Mér finnst svo hræðilegt bragð af henni!

  5. Inga S. Matthíasdóttir says:

    Ég tíndi mikið af aðalberjum síðasta haust og hef notað þau í búst. Það, sem mér finnst best í búst er: 2 dl aðalber, 1 banani, 2 msk jarðaberjaskyr, 1 dl laktósafrí mjólk , 1 msk ciafræ, vatn eftir þörfum. Villekki hafa þetta mjög þykkt. Sniðugt að setja kókosmjólkina, hef ekki prófað en ætla að gera það.

  6. Sigrún Linda says:

    Ég var að prófa þett áðan! Og NAMMMMM!!! Svakalega er þetta gott 🙂 ég breytti smá og setti aðeins minna af kókosmjólk í jarðarberjakremið og svo setti ég bláber ofan á 😛

  7. Auður Lilja says:

    Notar þú aðeins þykka hlutann af kókosmjólkinni eða allt úr dósinni ? Ætla að prófa um helgina 🙂

    • Júlía heilsumarkþjálfi says:

      Sæl Auður! Ég nota alla dósina:)

    • Ásta says:

      Frábært að fá tillögur af morgunmat, var að mauka saman frosin bláber og banana, setti það í krukkur og í frysti, ætlaði svo að taka með mér í ferðalagið. Bæti síðan granóla morgunkorni án viðbættu sykur ofan á ásamt jarðarberjum og trönuberjum, fattaði ekki að búa til jógúrt úr kókósmjólk, nú er ég fróðari um það, takk takk.

  8. Sigrun G Erlingsdottir says:

    1 krukka chia fræ, er ekki viss hvaða mælieining það er?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *