Karamellukaka fyrir jólin
smákökur
Smákökur með heitu kakói og kókosrjóma! (Matreiðsluþáttur)
20th December 2016
uppskriftir ársins
10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2016!
9th January 2017
smákökur
Smákökur með heitu kakói og kókosrjóma! (Matreiðsluþáttur)
20th December 2016
uppskriftir ársins
10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2016!
9th January 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Karamellukaka fyrir jólin

karamellukaka

Hó hó!

Í dag deili ég með þér uppáhalds karamellukökunni minni og ljúffengum jólabúst sem gott er að fá sér á milli jólakræsinga!

Það er leikur einn að útbúa þessa hollu og létu kræsingar en ég sýni þér hvernig í síðari jólaþættinum mínum.

Þú getur horft á þáttinn hér að neðan. Ef þú misstir af fyrri þættinum, getur þú smellt hér til að horfa á mig gera smákökur og kakó!

 

Karamellukaka

Enginn verður svikinn af þessari æðislegu karamelluköku sem er afar einföld að útbúa. Þetta er uppskrift úr matreiðslubók Lifðu til fulls!

Botn:

1 bolli pekanhnetur

1 bolli möndlur (lagðar í bleyti í 2 klst eða yfir nótt)

1 ¼ bolli döðlur

1 tsk vanilludropar

Salt eftir smekk


Karamellukrem:

1 bolli mjúkar döðlur (fjarlægið steininn)

1 msk vanilludropar

3 msk hunang + 1 tsk stevíudropar frá via health(einnig má nota eingöngu 4 tsk stevíudropa)

½ bolli + 2 msk kókosolía (bráðin)

¼ bolli vatn (eða meira)

1 tsk macaduft (val – ofurfæða sem hefur engin áhrif á bragðið í kreminu)

1. Setjið pekanhnetur í matvinnsluvél, stillið á lægstu stillingu og malið hneturnar vel. Bætið hinu hráefninu út í þar til deigið festist saman. Þrýstið niður í 23 cm smelluform.

2. Hrærið næst döðlur fyrir karamellukrem í matvinnsluvél þar til deigkúla myndast. Bætið hinu hráefninu út í og hrærið þar til áferðin er silkimjúk. Bætið við 1 tsk af vatni, eða meira eftir þörfum, getur verið breytilegt eftir döðlum. Smyrjið kreminu á botninn. Skreytið með pekanhnetum, örlitlu sírópi og/eða bræddu súkkulaði. Kælið í klst eða lengur og berið fram.

DSC_9096

Bleikur jólabúst með mandarínum og berjum

Eflir ónæmiskerfi, bætir meltingu og minnkar sykurlöngun!

1 bolli möndlumjólk

2 mandarínur eða 1 appelsína

1/2 bolli trönuber

½ bolli hindber og brómber

1 banani

1 tsk möndlusmjör

2 msk chia fræ

2 dropar stevia með vanillu eða/og hindberjabragði frá via health

Klakar

1. Blandið öllu saman, bætið klökum við út í rest og njótið.


Það er upplagt að bæta við hollari kostum inn á milli jólakræsinga og þessar uppskriftir eru fullkomnar í það.
Skrifaðu mér endilega athugasemd hér að neðan, það er alltaf ánægjulegt að heyra frá þér og ekki hika við að deila uppskriftunum með vinum á samfélagsmiðlum
.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

5 Comments

  1. Margrét says:

    Kærar þakkir Júlía og gleðileg jól til þ+ín og þinna
    kv. Margrét

  2. Oddný Jóna Þorsteinsdóttir says:

    Kæra Júlía,
    takk fyrir þessa sendingu.
    Á pottþétt eftir að nýta mér bústið strax á morgun.
    Bestu jólakveðjur,
    Oddný

  3. Rakel Egilsdóttir says:

    Hlakka til að gera þessa köku.Hvað er makaduft Hvar fæ ég það? Nú er ég komin sykurlausar gírinn. Takk kærlega fyrir allt Gleðileg Jól til þín og þinna?❤️

  4. Guðrún Dagný Einarsdóttir says:

    Takk fyrir þetta. Hlakka til að prófa þessar uppskriftir, sérstaklega kökuna.

  5. Lóa+Helgadóttir says:

    Ég óska ykkur gleðilegs nýs árs. Með þakklæti fyrir liðið ár .Kær kveðja Lóa Helgadóttir.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *