Jólabooztið sem styður við þyngdartap
ráð að orku
Jólagjöf: 5 ráð að orku + vikuáætlun
16th December 2014
Því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnunin hverju sinni!
3rd January 2015
ráð að orku
Jólagjöf: 5 ráð að orku + vikuáætlun
16th December 2014
Því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnunin hverju sinni!
3rd January 2015
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Jólabooztið sem styður við þyngdartap

jólaboozt

Fyrir ári varð vínkona mín húgt á Acai-dufti

Hún vissi samt ekkert hvað hún átti að gera með Acai berin en hún varð að fá þau.

Það endaði með að ég birtist heim til hennar með stóra jólakörfu með Acai dufti, Acai- og bláberja tei og Acai súkkulaði svona uppá grínið og skemmtum við okkur vel að útbúa mismunandi Acai tilraunir.

Þú ert kannski forvitin að heyra af hverju vinkona mín varð svona húgt á Acai?

Málið er að Acai duftið er náttúrulegt ofurfæði sem er þekkt fyrir þyngdartaps eiginleika sína og hefur duftið farið sigurförum í heilsuheiminum síðastliðin ár og er góð ástæða fyrir því.

Acai berin eru stútfull af andoxunarefnum og nauðsynlegum amínósýrum og steinefnum.

Einnig eru þau ótrúlega bragðgóð og sérstaklega með dökku súkkulaði, sem sakar ekki.

Ef þú vilt bara auka orkuna en ekki léttast er þér öruggt að fá þér Acai duftið og nýtur líkaminn þá frekar góðs af góðu andoxunarefnunum og öðrum kostum Acai ofurfæðunar.

Í dag fannst mér tilvalið að gefa þér uppskrift af Acai jólaboozti, enda tilvalin svona yfir hátíðhöld með tilheyrandi kræsingum.

Því með því að hlúa að þinni heilsu geturðu fyrirbyggt ofát eða að þú gleymir að fá þér að borða.

Ef þú varst ekki búin að næla þér í jólagjöfina frá mér með vikulegri áætlun sem styður við heilsu þína á hverju degi geturðu sótt hana hér 🙂

 

 

melbournes-best-acai-bowls-550x550

Acai jólaboozt
~ Uppskrift fyrir 2

2 tsk acai duft

4 handfylli af spínati*

½ avocadó (eða banani)

handfylli kakónibbur eða hrátt lífrænt kakó

2 tsk chia fræ

3 msk af kasjúhnetum (ath ekki ristaðar, né saltaðar)

4 dropar stevia

1 bolli bláber

1 1/2 bolli vatn og nokkrir klakar

 

*Fyrir þá sem eru með vanvirkan skjaldkirtil, notið lambhagasalat í stað spínats.

Blandið allt saman þangað til mjúkt og kekkjalaust. Njótið strax.

Önnur skemmtileg leið að njóta Acai Jólabooztsins er í skál með skeið og þá toppað með ferskum berjum og/eða uppáhalds múslíinu þínu.

 

Acai duftið fæst í verslunum Nettó og frábært frá Rainforest merkinu.

Ég er þó forvitin að heyra, Hafðiru heyrt um Acai áður? Ef ekki er þetta eitthvað sem myndi gagnast þér?

Kæra vínkona ég kveð þig að sinni og bíð þér gleðilegrar hátíðar, það hefur verið sannur heiður að fá að skrifa til þín á árinu.

 

Jólaknús, heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Og Lifðu til fulls teymið

 

p.s Ekki gleyma svo að sækja jólagjöfina frá mér 🙂 Vikuleg áæltun til að hlúa að þinni heilsu fæst ókeypis með skráningu hér.

Gleðileg jól!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

4 Comments

  1. Borgný Gunnarsdóttr says:

    cai duftið. Set það á óskalistann minn. Gleðileg jól

  2. Margret Haraldsd says:

    er búin að skrá mig oft en ekkert gerist mig vantar jólagjöfina eða vikulegu áætlunina til að hlúa að heilsu búin að deila oft en ekkert gerist bíð spennt jólakveðjur M.H.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *