Hvernig á að skipta út sykri í bakstri og “sætu” smákökurnar mínar!
auka brennslu
Í staðinn fyrir hafragrautinn í fyrramálið, prófaðu þetta!
24th November 2015
vellíðan yfir jól
7 ráð fyrir holl jól og jólagjöf
9th December 2015
auka brennslu
Í staðinn fyrir hafragrautinn í fyrramálið, prófaðu þetta!
24th November 2015
vellíðan yfir jól
7 ráð fyrir holl jól og jólagjöf
9th December 2015
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Hvernig á að skipta út sykri í bakstri og “sætu” smákökurnar mínar!

Aðventan býður uppá margar freistingar.

Ilmurinn frá nýbökuðum smákökum á köldum vetrardegi er erfitt að standast, það er því upplagt að gera þær sætar og góðar fyrir þig líka.

Í dag fást svo ótal margar tegundir af hollum og góðum sætuefnum sem sniðugt er að skipta út fyrir hefðbundinn hvítan sykur og betrumbæta uppskriftina að heilsunni.

Það er bara svo huggulegt að eiga eitthvað sem þú getur nartað í og hvað þá með góðri samvisku.

 

Hvernig á að skipta út sykri í jólabakstrinum

Það er einfalt að skipta út hefðbundnum hvítum sykri fyrir náttúrulegri sætu í jólabakstrinum án þess að skerða bragð eða að nokkur setji útá það. Hér eru nokkur náttúruleg sætuefni (þá á ég við sætuefni sem fást frá náttúrunnar hendi en eru ekki unnin sem sykuralkahól) sem má skipta út fyrir í jólabakstri. Sjálfsagt er listinn ekki tæmandi, en hann samsvarar uppgefið magn af einum bolla af hefðbundnum hvítum sykri.

 

hvernig-ad-skipta-ut-sykri-i-bakstri-og-saetu-smakokurnar-minar

 

Sjálfsagt má minnka magn sætu ef þú ert ekki vön að neyta sykurs daglega. Hægt er að nálgast sætuefnin í heilsuvöruverslunum og mörgum verslunum í dag og alltaf mikilvægt að kaupa lífrænt og/eða gæða vöru þar sem hún inniheldur fleiri næringarefni, bragðast gjarnan betur og er hollari fyrir þig…

 

Hollar og sætar súkkulaðibitakökur Júlíu

IMG_1995-2

 

Sykurlausar og glútenlausar. Dásamlegar.

 

Þú trúir varla að þessar séu hollar.

 

1 bolli glútenlausir hafrar, malaðir

1 1/4 bolli möndlumjöl

1/2 tsk. matarsódi

1/2 tsk. vínsteinslyftiduft

1/2 tsk. salt

1/2 bolli + 1 msk ólífuolía

1/4 bolli hunang

4-6 dropa steviu

1 tsk. vanilludropar

1/2 bolli lífrænt 70% súkkulaði eða dekkra

 

1. Forhitið ofn við 180°C .

2. Malið hafrana í matvinnsluvél eða blandara þar til úr verður hveitiáferð. Sameinið möndlumjöl, malaða hafra, matarsóda og lyftiduft í stóra skál.

3. Sameinið olíu, hunang og vanilludropa í litla skál.

4. Sameinið blautu blönduna í litlu skálinni við þurrefnin í stóru skálinni og hrærið saman með sleif. Bættu við söxuðu súkkulaði.

5. Takið deigið með matskeið og setjið á bökunarpappír. Hafið hverja köku um 4 cm með því að dreifa aðeins úr þeim með blautum fingrum og hafið 4 cm á milli þeirra.

6. Bakið við 180°C í 12-15 mín. og slökkvið þá á ofninum. Látið kökurnar bíða í ofninum í um 7-10 mínútur áður en þær eru fjarlægðar úr ofninum. Látið kólna.

 

Njóttu með kaldri möndlumjólk í samveru við fjölskyldu!

 

Hvaða sætuefni notar þú mest af, segðu mér frá í spjallinu að neðan.

 

Mundu svo að deila á facebook fyrir léttari og sykurminni jól

 

 

Heilsa og kærleikskveðja

 

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *