Hvernig á að skipta út sykri í matargerð og fyllt sæt kartafla með hvítlaukssósu!
Chia búðingur
Chia búðingur með hnetusmjöri og sultu
16th August 2016
Að elska sjálfa þig!
30th August 2016
Chia búðingur
Chia búðingur með hnetusmjöri og sultu
16th August 2016
Að elska sjálfa þig!
30th August 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Hvernig á að skipta út sykri í matargerð og fyllt sæt kartafla með hvítlaukssósu!

fyllt sæt kartafla

Ef þér þykir martröð að finna út úr því hvar sykur leynist í matnum þínum er þessi grein fyrir þig. Hér deili ég með þér hvernig ég fer að því að elda án sykurs og vonandi einfalda þér sykurlausa matargerð.

Vika tvö er hafin í Ókeypis 14 daga áskorun að sykurleysi.

Það er ekki of seint að vera með! Þú getur smellt hér og fengið strax aðgang að uppskriftum vikunnar ásamt innkaupalista og fleiri ráðum til að vinna bug á sykurpúkanum.

Nú er þitt tækifæri að segja skilið við sykurpúkann og sjá hversu einfalt og og gott það getur verið.

Fátt er meira svekkjandi en að hefja átak og vera dugleg að forðast nammi en uppgötva svo að sykur var falinn í matnum þínum í staðinn. Hér eru því nokkur atriði sem ég vona að hjálpi þér að velja betur.

Hvar er sykur í matvæli

Algengar vörur sem innihalda falinn sykur eru til dæmis salatsósur, mjólkurafurðir, tómatsósur, fitusnauðar vörur, brauð, pakkasósur, áfengi, sulta og chutney, sterkar sósur, majónes, bbq sósur, dósamatur, þurrkaðir ávöxtir því stundum er viðbættur sykur eins og í trönuberjum. Listinn er auðvitað ekki tæmandi en til að hjálpa þér að lesa aftan á vörurnar sem þú kaupir regulega hef ég sett hér að neðan samnefni sykurs. Þau geta verið tvö til þrjú í einni og sömu vörunni og til að einfalda enn frekar hef ég feitletrað þau algengustu.

Hvernig skipti ég út sykri í matnum?

Skoðaðu heilsuhilluna. Flestar vörur í heilsuhillum matvöruverslana innihalda nátturulega sætu og engan sykur en það er ekki þar með sagt að það sé rétt og því er gott að nota lista yfir samnefni sykurs hér að neðan til stuðnings.

Þá er auðvelt að skipta út sykri  svona:

Skiptið út Tómatsósunni fyirr lífræna tómatsósu.

Veljið lífrænt eða vegan majónes.

Dijon sinnep er sykurlaust.

Gerið sósur frá grunni með olíum og kryddum yfir salat eða kjöt, hvítlauksósan hér neðar er góð.

Notið grænmetisteninga í stað dósa- eða pakkasúpu.

Forðist dósamat, alvöru matur bragðast betur hvort sem er.

Algeng samnefni sykurs

cane sugar malt syrup golden sugar
caramel maltodextrin golden syrup
carob syrup maltose grape sugar
corn syrup mannitol high-fructose corn syrup
date sugar molasses honey
dextran rapadura invert sugar
dextrose raw sugar lactose
diatase refiner’s syrup barley malt
diastatic malt sorbitol beet sugar
ethyl maltol sorghum syrup brown sugar
fructose sucrose buttered syrup
glucose turbinado sugar cane-juice crystals
glucose solids xylitol fruit juice concentrate

 

*Feitletruðu nöfnin eru þau algengustu hér á Íslandi

DSC_6590

Fyllt sæt kartafla með spínati og hvítlaukssósu

~fyrir 2

 

1 sæt kartafla

Fylling:

1/2 tsk kókosolía

1 stór rauður laukur, gróflega saxaður

2-3 hvítlauksgeirar, fínlega saxaðir

1 bolli kjúklingabaunir

tvö handfylli spínat

pipar og salt eftir smekk

Hvítlauksósa:

1/2 bolli tahini

1/2 bolli vatn

1 hvítlauksgeiri, pressaður

1 sítróna kreist

1/2 tsk paprikukrydd (val)

salt eftir smekk

Hitið ofninn í 200°C eða útigrill. Skerið sætu kartöfluna til helminga. Setjið á ofnplötu og penslið yfir með olíu eða vefjið í álpappír og setjið á útigrill. Eldið í 25-30 mín eða þar til hægt er að stinga gafli inn í kartöfluna.

Setjið öll innihaldsefni í dressingu í blandara og hrærið.  Útbúið því næst fyllingu með því að hita pönnu með örlítið af kókosolíu og snöggsteikja lauk, hvítlauk, kjúklingabaunir, spínat og krydda með salti og pipar. Steikið í um 5-7 mínútur. Skerið sætkatöflubáta langsum og þversum og þrýstið á til að opna, bætið við spínatfyllingu og dreifið hvítlauksósu veglega yfir.

 

 

Tækifæri til að fá uppskriftir og innkaupalista í hendurnar, ásamt stuðningi og hvatningu gerist ekki á hverjum degi og hvað þá ókeypis. Smelltu hér fyrir fimmtudaginn og þá tryggir þú þér uppskriftir viku tvö í áskoruninni ásamt einföldum innkaupalista.

Voru einhverjar fæðutegundir sem komu  þér á óvart að innihéldu sykur? Segðu mér frá að neðan hver reynsla þín var.

Fjörið gerist í spjallinu.

Ef þér líkaði greinin, smelltu á like á facebook og deildu með vinum.

 

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

p.s. Rúmar 3 vikur í að uppskriftabók mín kemur út í bókabúðir um land allt!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *