Glútenlaust brauð með grænu te, ávöxtum og hnetum
Snarlhugmyndir uppskriftir snarl
Ómissandi ferðahollráð fyrir flugtak! Snarlhugmyndir
25th March 2014
glútenfríir fæðukostir
Ekki leyfa glútenfríu vörunum að plata þig!
1st April 2014
Snarlhugmyndir uppskriftir snarl
Ómissandi ferðahollráð fyrir flugtak! Snarlhugmyndir
25th March 2014
glútenfríir fæðukostir
Ekki leyfa glútenfríu vörunum að plata þig!
1st April 2014
Show all

Glútenlaust brauð með grænu te, ávöxtum og hnetum

Glútenlaust brauð

Innihald

250 gr. möndlumjöl

3 tsk vínsteinslyftiduft

3 msk husk

2 egg

130 gr apríkósur

5-6 döðlur

2-3 msk rúsínur

100 gr valhnetur (eða aðrar hnetur sem þér finnst góðar)

50 gr glútenlausir hafrar

50 ml hrísmjólk/möndlumjólk

250 ml vatn

1 poki af grænu tei

2-4 msk fræ að eigin vali (val)

Aðferð

1. Skerðu döðlurnar og aprikósurnar í bita og settu í pott ásamt vatninu, rúsínunum og græna teinu. Leyfðu suðunni að koma upp og sjóða í nokkrar mínútur. Taktu síðan græna teið úr pottinum og settu hafrana út í og leyfðu þeim að bíða á meðan þú græjar restina.

2. Blandaðu saman þurrefnunum í skál

3. Hrærðu eggin saman og heltu þeim yfir þurrefnin ásamt hrís/möndlumjólkinni. Hrærðu vel saman í hrærivél eða með sleif (eins og ég geri, sjá mynd)

4. Bættu svo við hnetunum, ávöxtunum og höfrunum í skálina. Deigið á að vera frekar blautt þegar öllu hefur verið blandað saman.

Þar sem mér finnst alltaf svo gott að hafa brauðin mín gróf og full að næringu bæti ég við alls konar fræjum, t.d graskersfræ, sesamfræ eða hörfræ. Ég hef einnig notað möndlur í brauðið. Ef þér finnst það líka gott þá máttu endilega bæta því við, svona 2-4 msk af fræjum (fer eftir smekk).

5. Settu deigið síðan í mót með bökunarpappír (sjá mynd) og bakaðu í 40-50 mín á 180 gráðum. Stráið yfir það sesamfræjum eða öðrum fræjum (val).

Þar sem ofnar eru svo mismunandi, þá mæli ég með að þið kíkið á brauðið eftir 40 mín og potið í það. Ef það er ekki blautt lengur þá er það tilbúið.

 

Njóttu!

gluten

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *