Ferðalag mitt til Evrópu og Asíu!
kókosjógúrt
Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana
23rd May 2017
Vegan burger með “kokteilsósu” og sætkartöflufrönskum (djúsí og glútenfrítt)
5th June 2017
kókosjógúrt
Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana
23rd May 2017
Vegan burger með “kokteilsósu” og sætkartöflufrönskum (djúsí og glútenfrítt)
5th June 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Ferðalag mitt til Evrópu og Asíu!

Hefur þú átt draum sem rættist?

Lengi hefur mig dreymt um að fara í heimsreisu um Evrópu og Asíu! Ég trúi varla að ég sé að segja þetta en.. “síðustu helgi hófst ferðalagið” .
Við hjónin erum farin út í ævintýri!

Ég er að springa úr þakklæti og mun deila með þér myndbrotum frá Instagram og samfélagsmiðlum í sumar af ferðalaginu okkar! Smelltu hér til að fylgjast með mér á Instagram og Facebook,  þú finnur mig á snapchat undir: lifdutilfulls.

Ég mun halda áfram að skrifa þér og deila ráðum að hollu snarli fyrir ferðalögin, uppskriftum af ómótstæðilegum grillmat og fullt af fleiru skemmtilegu!

Mér datt í hug að nýta þessa viku til að deila með þér hvað ég tek með mér í ferðalagið til að halda í heilsuna og borða hollt á bragðgóðan og aðgengilegan hátt. Enda er heilsan í fyrirrúmi hjá mér framyfir auka klæðnað eða farangur.

DSC_2743

Ferðalisti minn fyrir ferðalagið


Vítamín:

meltingargerlar (frá Forever living)*

magnesíum (frá Dr.Mercola)*

omega 3 (frá Calamari Gold vegna hentugra umbúða)*

túrmerik (t.d. gegn bólgum og bjúg eftir flugið)*

DSC_2726

Ofurfæður og snarl:

moringa duftpokar

baobab duftpokar

súkkulaði prótein pokar frá Dr. Mercola

chia fræ

hamp fræ

kakónibbur

goji ber

mórber

Aduna raw bars

DSC_3222

Ilmkjarnaolíur:

tea trea (sótthreinsandi)

sítróna (svitalyktareyðir og flugnafælir)

lavender (slökun)

piparmynta (einbeiting og orka)

róandi jurtablanda fyrir svefn í flugvélum (ég tók með mér blöndu frá Ásdísi grasalækni)


Aukalega:

lítil matartaska (ég er með frá sistema sem fæst í Nettó)

sílíkon skurðbretti og lítill hnífur (góðvinur minn og ferðalangur Jayquy mældi með þessu)

gaffall og skeið

BPA laus Tupperware plastbox


Ég elska að hafa með mér ofurfæður eins og chia- og hampfræ, gojiber, mórber og kakónibbur til að bæði narta í milli mála eða gera úr kraftmikin chiagraut fyrir daginn. Allar ofurfæðurnar.

í dagpokan á ferðalaginu mun ég hafa með snarl og millimál eins og hnetur, þurrkaðir ávextir og ofurfæður eða próteinblanda sem ég blanda við útí vatn eða möndlumjólk.

Snarl og millimál þykir mér nauðsynleg í ferðalagið.

Ég vona að listinn hjálpi þér að skipuleggja næsta ferðalag þitt og gefið þér góðar hugmyndir að halda í hollustuna í sumar!

Það væri gaman að heyra í spjallið að neðan hvert þú ætlar að fara í sumar 🙂

Ef þér líkaði greinin deildu henni endilega á Facebook og höldum holl saman inn í sumarið!

*Nánar um þær vörur sem ég tek með mér:

Meltingargerlar frá Forever living henta vel þar sem þær eru léttar, fyrirferðalitlar og í hetugum umbúðum sem ekki krefjast þess að vera stöðuglega í kæli. Ég tek tvöfaldan skammt af meltingargerlum þegar ég ferðast. Sjá nánar hér. Hægt er að versla án sendingarkostnaðar.

Omega 3 frá Calamari Gold Omega-3 er unnið úr.… Þar sem ég verð í heitu lofslagi henta þær vel þar sem ég mun. Sjá nánar hér.

Túrmerik frá sourse nature fæst í verslun mamma veit best með viðbættum svörtum pipar fyrir bætta upptöku. Sjá nánar hér.

Magneísum frá Dr. Mercola þykir mér nauðsynlegt að hafa með þar sem ég finn mikin mun á því að taka magnesíum hvað varðar fótaóeirð enda verðum við mikið á fótum. Sjá nánar hér.

Sisteme ferðataskan er frá Nettó.
Aduna hrábar, chia fræ og mórber eru í afar hentugum umbúðum fyrir ferðalagið og fást í Nettó.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *