Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu!
Svona kemur þú þér í form í sumar – Viðtal við Önnu Eiríks einkaþjálfara
10th July 2018
5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst
7th August 2018
Svona kemur þú þér í form í sumar – Viðtal við Önnu Eiríks einkaþjálfara
10th July 2018
5 ráð til að efla meltingu og brennslu á 48 klst
7th August 2018
Show all

Bilað góðir blómkálsvængir með ranch-sósu!

DSC_5117

Ég er með algjört æði fyrir þessum blómkálsvængjum! Ég held stundum að ég sé að “svindla” í mataræðinu þegar ég tek djúsí bita af þessum brakandi vængjum og þarf að minna mig á að þeir eru ekkert nema meinhollir og stútfullir af næringu!

Vængirnir eru ekkert venjulegir og eru sérlega bólgueyðandi, orkugefandi og góðir fyrir meltinguna. 

Ég verð þó að játa að fyrst um sinn miklaði ég fyrir mér hvernig í ósköpunum ég gæti gert djúsí vængi úr blómkáli en þegar upp var staðið er uppskrifin afar einföld og nokkuð skemmtileg í framkvæmd!

Til að útskýra þetta á sjónrænan hátt tók ég skref-fyrir-skref myndir.

DSC_4875

Blómkál, túrmerik-sólskinsdressingin mín og deigið (sem inniheldur aðeins 5 hráefni) er eina sem þarf í þessa syndsamlega góðu vængi.

DSC_4983

Byrjað er á að hræra saman í deig með góðu handafli og písk.

DSC_4853

Þá næst er blómkálið skorið. Mér þykir fallegast að rífa blómkálið með höndum í stað þess að skera það með hníf.

DSC_4967

Blómkál hjálpar að koma jafnvægi á hormón og er sérlega ríkt af C og K vítamíni!

DSC_4994

Blómkálinu er dýft í deigið og sett á ofnplötuna. Þetta fer síðan í bakarofninn í 15 mínútur.

DSC_5022
DSC_5024

Túrmerik-sólskinsdressingunni er penslað yfir blómkálið og bakað í aðrar 15-20 mín.

Túmerikdressingin er í sérlegu uppáhaldi hjá mér þessa dagana og kemur með sólskin í hjartastað. Þessir blómkálsvængir eru frábærir sem meðlæti með flestum mat og tilvaldnir í partýið.

Lesa einnig: 

Vegan lasagna úr 5 hráefnum

15 mín. fettuccine “osta”pasta með stökku blómkáli

Blómkálssteik með kókosrjómasósu og granateplum

DSC_5099

Bilað góðir túrmerik-blómkálsvængir með ranch-sósu

1 blómkálshaus

Sólskins-túrmerikdressingin mín

Blómkálsdeig

3/4 bolli glútenlaus hveitiblanda (ég notaði white bread flour by Doves farm sem fæst í Nettó)

1 tsk oregano

1 msk næringarger

1/2 tsk chilipipar (eða notið papríku duft ef þið viljið mildari vængi)

3/4 bolli möndlumjólk/rísmjólk eða vatn (ég notaði heimagerða möndlumjólk)

Ranch-sósa

4 msk vegan majónes (ég notaði frá Follow your heart)

2 msk fersk steinselja skorin

1 msk eplaedik eða sítrónusafi

1 tsk hlynsíróp eða hunang (einnig má nota 2-3 steviudropa)

½ tsk hvítlauksduft

½ tsk laukduft

½ tsk malaður svartur pipar

salt eftir smekk

Borið fram með:

ferskri steinselju, sellerý- og smágúrkusneiðum

1. Hitið ofninn við 220 gráður.

2. Rífið blómkálið í “vængi” og leggið til hliðar.

3. Hrærið þurrefnum saman í skál og bætið við helmingnum af vökvanum. Hrærið saman með písk þar til kekkjalaust og bætið við restinni af vökvanum. Deigið ætti að vera örlítið þynnra en hefðbundið pönnukökudeig.

4. Veltið blómkálinu uppúr deiginu. Gott er að þurrka aðeins af blómkálinu því  þið viljið ekki að deigið utan um blómkálið sé of þykkt. Raðið blómkálinu á ofnplötu þakin bökunarpappír og bakið í 15 mín.

5. Á meðan má gera túrmerikdressingu og ranch-sósu. Til að gera ranch-sósuna eru hráefni þess sett í skál og hrært með gafli.

6. Þegar blómkálið hefur bakast í 15 mín má taka það út og pennsla túrmerikdressingunni yfir. Bakið í aðrar 15-20 mín.

7. Berið fram með meira af ranch-sósu, gúrku og sellerýsneiðum og fegrið með ferskri steinselju og rauðu chilli.

Hollráð:

Blómkálsvængirnir eru einnig góðir hitaðir upp ef eitthvað verður afgangs og endast þeir í kæli í allt að 7 daga.

Ranch-sósan endist í kæli í allt að viku og góð með mörgum grillmat.

Túrmerik dressinguna má nota yfir salöt, kínó eða hvað sem þig dreymir um! Hún kemur með sólskin í hjartað!

Allar vörur fást í Nettó.

DSC_5105

Ég vona að þú njótir þessara blómkálsvængja eins mikið og ég hef gert síðustu daga! Það er ekki oft sem ég geri uppskriftir aftur og aftur en þessi hefur sko aldeilis verið gerð oftar en ég get talið.

Láttu vita í spjallinu að neðan ef þú prófar og hvernig smakkast!

Endilega deilið svo yfir á Facebook eða Instagram!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

4 Comments

  1. Elva says:

    En turmeric dressinginn ???

  2. LÓA HELGADÓTTIR says:

    Takk fyrir þessa flottu uppskrift kæra julia,ég á. örugglega eftir setjast niður og pæla í þessari
    frábæru uppskrift.?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *