Bestu vítamínin eftir fertugt
Einfaldasta leiðin til að hreinsa líkamann eftir páska
14th April 2017
Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
2nd May 2017
Einfaldasta leiðin til að hreinsa líkamann eftir páska
14th April 2017
Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
2nd May 2017
Show all

Bestu vítamínin eftir fertugt

Vítamín spila lykilhlutverk í að jafna orku, matarlanganir og sykurlöngun líkamans.

Eftir því sem árin líða verður sífellt mikilvægara að hugsa um breytingar á næringu m.a. vegna breytinga á hormónum.

Hér ætla ég að fara yfir bestu vítamínin fyrir konur eftir fertugt.
—-

—-

B12

Eftir fertugsaldur og sérstaklega eftir fimmtugsaldurinn er æskilegt að taka inn B12 vítamín, þar sem upptaka líkamans á B12 vítamínum fer versandi með árunum.  B12 vítamín spilar lykilhlutverk í orku, eðlilegri blóðrás og heilastarfsemi. Afleiðingar af B12 vítamín skorti getur meðal annars verið hárlos, minnisleysi og aukin stresseinkenni.

B12 vítamín er finna í dýraafurðum eins og kjúkling, egg og fisk.

Fyrir bestu upptöku á B12 vítamíni er gott að taka það inn með mat og í fljótandi eða uppleysanlegu formi eins t.d. með sprey eða freyðitöflu.

—-

—–
Magnesíum

Eitt af því sem magnesíum gerir fyrir okkur er að jafna blóþrýstinginn, sem er sérstaklega mikilvægt fyrir konur yfir fertugt þar sem þær eru í áhættuhópi fyrir of háan blóðþrýsting. Ef þú upplifir mikið af bólgum eða streitu getur magnesíum einnig verið frábært bætiefni, þar sem magnesíum kemur á jafnvægi og hjálpar að stjóra streituhormónum. Magnesíum styður einnig við upptöku líkamans á kalsíum og spilar lykilhlutverk í heilbrigðri vöðva-tauga og hjartastarfsemi.

Það gæti komið þér á óvart að magnesíum finnst í grænu laufgrænmeti, baunum, hnetum, fræum og avókadó til dæmis.

Ráðlagður dagsskammtur eftir fertugt er 320 mg. Magnesíum fæst í töflu eða duft formi. Eitt besta magnesíum sem ég veit um er frá Dr. Mercola og tek ég það samhliða slökunardufti á kvöldin.

Hlustið á líkamann eftir magnesíumþörf eða leitið til læknis fyrir ráðleggingar þar sem ofneysla getur orsakað ógleði, niðurgang og krampa.

Lesa einnig:

Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
Lax með ristuðum kókosflögum, kartöflum og aspas
Túrmerik hummus með steinseljusalati

—-

—-

D-vítamín

D-vítamín er lífsnauðsynlegt og spilar lykilhlutverk í upptöku á öðrum næringarefnum. D-vítamín hefur áhrif á ónæmiskerfi, blóð-æða-vöðva-og taugakerfi og talið sporna fyrir ýmsum aldurstengdum heilsukvillum eins og sykursýki og hjartasjúkdómum.

D-vítamín er í fáum fæðutegundum og helst þá í feitum fisk eins og síld, lax, silung, lúðu eða sardínum en það eru þær fæðutegundir sem innihalda mest af D-vítamíni. Algengt er að D-vítamín sé að auki viðbætt í lýsi og mjólkurafurðir.  
D-vítamín fæst í dropum eða töfluformi.

—-

Til að athuga vítamínstöðu líkamans er hægt að fara í blóðprufu hjá lækni, ég mæli með að gera það 1-2 ára fresti.

Ég er viss um að þú sitjir sjálf/ur á einhverjum hollráðum um hvað virkar fyrir þig og hvað hefur alls ekki virkað. Endilega deildu þeim í spjallið hér að neðan! 

Mundu svo að fylgja okkur á Facebook og Instagram.  fleiri uppskriftir og ráð.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

7 Comments

  1. Sigríður Valdís says:

    Júlóa bókin þín er æðisleg fékk bókina í dag gaman að skoða og láta sér dreyma og njóta takk takk

  2. Sigríður Valdís says:

    Hvar fæ ég þetta sprey af B12 eða er betra að taka inn töflur af b 12

  3. Már Sveinsson says:

    Er það rétt skylið að þú teljir að lýsi sé ekki með d-vítamíni öðruvísi að það sé d-vítamíns bætt?

    Kveðja Már Sveinsson.

    • Júlía heilsumarkþjálfi says:

      Hæ Már 🙂
      Nei. D-vítamín er í fáum fæðutegundum. Lýsi og feitur fiskur, eins og síld, lax, silungur, sardínur
      og lúða, eru þær fæðutegundir sem innihalda mest af D-vítamíni. Lýsi og mjólkurvörur eru oft viðbættar.

      Ég sá einmitt að greinin gæti verið vilandi hvað þetta varðar og bætti við þessum texta bút.

      Heilsukveðja
      Júlía

  4. Már Sveinsson says:

    Takk fyrir svarið Júlía.
    Ég hef spurt aðeins fyrir um þetta og mér skylst að í stað þess að framleiða lýsið úr einstökum tegundum t.d. Ufsalifur þorkal.eða lúðul. o.s.frv. Eins og gert var lengst af í upphafi. Sé nú allt sett í einn pott og síðan vítamín bætt ef þarf, þar sem tegundirnar innihalda mismikið af vítamínum.
    Kveðja Már.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *