7 ráð til að minnka sykurneyslu
5 dýrkeypt mistök þegar við ætlum að hætta sykri
12th February 2019
Hvernig má draga úr bólgum og hrista í burtu flensu á sólarhring!
11th March 2019
5 dýrkeypt mistök þegar við ætlum að hætta sykri
12th February 2019
Hvernig má draga úr bólgum og hrista í burtu flensu á sólarhring!
11th March 2019
Show all

7 ráð til að minnka sykurneyslu

Það að draga úr sykurneyslu er margþætt og vex okkur oft í augum.

Oft er ég spurð að því hvernig ég fer að því að borða aldrei sykur og að hafa ekki einu sinni löngun í sykur, svo ég ákvað að setja saman 7 ráð sem við getum öll nýtt til að minnka sykurinn og halda sykurpúkanum í burtu.

DSC_1523

1. Finndu staðgengla fyrir uppáhalds sætindin þín

Náttúruleg sæta býður upp á endalausa möguleika og ég get (nánast) lofað þér því að það eru til staðgenglar fyrir öll þau sætindi sem þér finnst góð! Njóttu þess að prófa þig áfram í eldhúsinu með bollakökum, súkkulaði sjeiknum mínum og fylltum döðlum.


2. Ekki falla í gildruna “ef ég fæ mér smá, þarf ég að borða allan kassann”

Ég þekki þetta vel sjálf og átti ég til að klára heilan tromppoka á aðeins nokkrum mínútum! Það er eðlilegasti hlutur í heimi að fara aðeins útaf sporinu og er það eitt það mikilvægasta sem þú skalt muna sértu að breyta mataræðinu þínu. Alls ekki fara í uppgjöf og troða í þig fullum kassa af sælgæti þó þú stelist til að fá þér eitt. Taktu eitt skref í einu, hrósaðu sjálfri/sjálfum þér fyrir litlu breytingarnar frekar en að brjóta þig niður fyrir að fara örlítið útaf sporinu. Einföld sannreynd skref eins og ég kenni í kvöld á ókeypis fyrirlestrinum 3 einföld skref til að tvöfalda orkuna, losna við sykurlöngun og auka brennslu náttúrulega koma þér alla leið og það án uppgjafar. Smelltu hér til að skrá þig, enda aðeins örfá laus pláss!

3. Passaðu upp á holla fitu

Holl fita er gríðarlega mikilvæg fyrir seddu og jafnari blóðsykur og ef við fáum ekki nóg af henni getur það brotist út sem sykurlöngun. Fæðutegundir eins og avókadó, olíur, fiskur og hnetur gefa okkur góða fitu sem er nauðsynleg fyrir líkamann. Holl fita er bara eitt dæmi af 19 fæðutegundum sem halda sykurlöngun burtu, en ég fer nánar í 5 helstu þeirra á ókeypis fyrirlestrinum í kvöld, enn er tími til að skrá þig hér!

4. Passaðu upp á svefninn

Svefn spilar gríðarlega mikilvægt hlutverk í Leptin hormóni sem stýrir því hvort við séum södd. Oft endum við með að borða meira en vanalega og sækja í eitthvað saltað og sætt þegar svefninn er í ójafnvægi. Reyndu eftir fremsta megni að sofa 7-8 1/2 klst á nóttu.

5. Gerðu vel við þig án þess að fá þér nammi

Flest okkar tengja einhverskonar huggun og unnun við að fá okkur eitthvað sætt, því er svo mikilvægt að finna aðrar leiðir til að gera lífið sætara. Heitt bað, kertaljós og góð bók eða að kaupa blóm eru góð dæmi um hvernig við getum gert vel við okkur án þess að hafa sykurinn með.

6. Farðu varlega í gervisætur

Gervisætur eru oft ekkert betri en hvítur sykur og margar þeirra geta orsakað magaverki og óþægindi. Nýttu þér fremur náttúrulega sætugjafa og stilltu þeim í hóf.

7. Drekktu nóg vatn

Vatn er svar við ótrúlegustu löngunum! Það er staðreynd að við ruglum oft svengd saman við þorsta. Drekktu nóg vatn yfir daginn (a.m.k 2 lítra) og næst þegar sykurlöngun kallar prófaðu að fá þér stórt vatsnglas!


Gerðu 2019 að þínu heilsuári!

Skráðu þig á ókeypis fyrirlesturinn og lærðu “3 einföld skref að tvöfalda orkuna, losna varanlega við sykurpúkann og auka náttúrulega brennslu”!

Með því að koma færðu einföld og sannreynd skref sem þú getur strax hafist handa á, uppskrift sem dregur úr sykurlöngun, próf sem tekur mið af heilsunni, næstu skref í breyttum lífsstíl og margt margt fleira! Örfá sæti laus!

Takk kærlega fyrir mig. Mjög fróðlegur fyrirlestur, hlakka til og spennt að fá fjölskylduna með  – Guðlaug

Gegn skráningu á ókeypis fyrirlesturinn lærir þú einnig meira um Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðið, a-ö áætlun til að fyllast orku, léttast á náttúrulegan hátt og öðlast stjórn á eigin heilsu.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Margrét Lísa Steingrímsdóttir says:

    takk fyrir þessi fallegu ráð og góðar greinar

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *