5 ástæður til þess að taka EKKI þátt í "Nýtt líf og Ný þú" þjálfun
7 heilsuávinningar kókoshnetunnar
21st April 2015
Ertu óviss hvaða kókosmjólk þú átt að nota? Lestu þetta
28th April 2015
7 heilsuávinningar kókoshnetunnar
21st April 2015
Ertu óviss hvaða kókosmjólk þú átt að nota? Lestu þetta
28th April 2015
Show all
Deildu á facebook
Facebook

5 ástæður til þess að taka EKKI þátt í “Nýtt líf og Ný þú” þjálfun

Nýtt líf, ný þú lífsstílsþjálfun

Í fyrra kynntist ég konu sem var tilbúin í varandi breytingu fyrir fullt og allt!

Hún sagði mér frá því að hafði eytt þúsundum í alls konar megrunarbækur og kúra til að fá snögga lausn á líðan og nýlega keypt fyrir 100 þúsund kr. í startpakka herbalife (sem hún notaði síðan ekki eftir allt saman)…En aldrei hafði hún virkilega stoppað og gefið sér tíma og leyfi til að vera sjálf í forgangi eða finna rótina af hverju hún gafst alltaf upp!

Nú bauðst henni að taka alveg þveröfuga nálgun og þá hélt hún aftur af sér.

Þegar við skoðuðum þetta dýpra kom í ljós að hún hafði myndað sér það viðhorf að hún væri ekki nógu góð, að hún gæti þetta ekki og að þetta væri alltof erfitt fyrir hana. Þetta var að sjálfsögðu ekki rétt. En þetta er eitthvað sem við gerum oft, við förum að efast um okkur og hugsa jafnvel neikvætt áður en við prófum.

Þessi póstur í dag er til þín ef þú vilt hætta að nota afsakanirnar sem hafa stoppað þig í fortíðinni og ná árangri sem varir!

 

5 ástæður af hverju þú ættir EKKI að vera með í Nýtt Líf og Ný Þú 4 mánaða þjálfun:

 

Ástæða #1: “Það er ekki möguleiki að ég haldi þetta út! 4 mánuðir er bara allt of langur tími!”

Mitt svar: Yfir 70% þeirra sem hafa verið í þessari nákvæmu þjálfun hjá mér hugsuðu þetta líka í byrjun, en þegar leið á er fólk alltaf jafnhissa á því hvað tíminn er fljótur að líða og hversu auðvelt það er að halda út þjálfun þegar stuðningurinn er til staðar.

Anna Guðrún Valdimars sem var í Nýtt líf og Ný þú þjálfun sagði akkurat frá því hvað þjálfunin var akkurat góð tímalengd og hjálpaði henni að setja breytingar í fastar varanlegar skorður og komast alla leið að orku alla daga og sátt! Ég mun leiða þig skref fyrir skref og verður fyrsta skrefið jafnframt að koma hugarfari þínu um borð við það sem þú vilt skapa fyrir þig!

 

“Ég upplifði að ég og árangur minn skiptir máli fyrir Júlíu og hún sleppir manni hvorki með afsakanir né aumingjaskap!” – Hólmfríður Guðmunds, ráðgjafi

„Ég finn að það er mikil stuðningur í hópþjálfun” – Jóna Fanney Kristjánsdóttir, bókari

 

Ástæða #2: “Ég hef prófað svo margt sem hefur ekki skilað varanlegum árangri af hverju ætti þetta að virka eitthvað frekar?”

Auf die Lippe beißen

Mitt svar: Málið er að megrunarkúrinn virkar ekki til frambúðar, hann er tímabundinn. Í Nýtt líf og Ný þú þjálfun kenni ég þér sannleikan sem megrunarkúrinn segir þér ekki frá og hjápa þér að finna hvað virkar fyrir ÞIG.

Nýtt líf og Ný þú þjálfun mun móta þína lífsstílsleið að orku, þyngdartapi og vellíðan skref fyrir skref. Það er ekki að ástæðulausu að það sem þú hefur prófað hingað til hefur ekki virkað fyrir þig, því þú hefur alltaf verið að prófa eitthvað sem virkaði fyrir einhvern annan.

 

„Áður hafði ég fylgt ýmsum mataráætlunum sem mér var ráðlagt en ekkert hafði skilaði sér í árangri. Með þjálfun komst ég í kjörþyngd eftir margra ára baráttu og á aðeins örskömmum tíma! Ég hef betri skilning á hvað ég get sett á matardiskinn minn og hvað hæfir mínum sérstaka líkama og er hreinlega ný og betri manneskja í dag! “ – Guðrún Harðardóttir, Atvinnurekandi og Hársnyrtir

„Ég mæli hiklaust með þjálfun hjá Júlíu því þar er þekking sem sem tekur mann lengra en maður átti von á og er sérsniðin að hverjum og einum, ekki fjöldaframleidd eins og margt sem er í boði.” – Auðbjörg Reynisdóttir, Hjúkrunarfræðingur og markþjálfi

„ Það er svo gott að geta spurt aðra þegar maður er að komast uppúr gömlum hjólförum.” – Erla Vigdís Leikskólakennari

„Ég var alltaf að prufa nýja og nýja “kúra” sem skiluðu oft einhverjum árangri en ég gafst alltaf upp á endanum og kílóin komu alltaf aftur.  Í dag líður mér ekki eins og ég sé í megrun heldur og ég borða það sem mér þykir gott og hef misst 7,5 kíló! Ég kem meiru í verk, svo ekki sé minnst á alla orkuna!  Við hjónin höfum fengið hrós fyrir hvað við lítum vel út og sé ég góð áhrif á mína nánustu” – Hulda Guðnadóttir, Grunnskólakennari og leiðsögumaður

 

Ástæða #3: “Ástand mitt er ekki svo slæmt, ég get beðið”

Mitt svar:  Sannleikurinn er sá að því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnun hverju sinni og fyrir hvern áratug eftir breytingaraldur hægist brennsla kvenna um 5%! Og það hættulegasta hjá konum sem grennast og þyngjast um 1-5 kíló í senn, aftur og aftur, eru áhrif þess á ónæmiskerfi líkamans og hversu í stakk búinn líkaminn er gegn sjúkdómum. Hversu lengi ætlar þú að setja heilsu þína á hakan, safna uppi ójafnvægi í líkamanum eða bíða þar til ástandið er orðið verra?

 

„Verkir í baki eru horfnir, meiri orka og meltingin mun betri sem ég vissi ekki að gæti orðið neitt betri. “ – Auðbjörg Reynisdóttir, Hjúkrunarfræðingur og markþjálfi

„ Ég finn fyrir mikilli breytingu bæði andlega og líkamlega, hreyfigeta hefur stóraukist, ég er full af orku og bjartsýni er ríkjandi. Minnið mitt hefur stórbatnað og húðin er að verða eins og á ungabarni, mjúk og kláði og pirringur að hverfa.” – Ásgerður Guðbjörnsdóttir 

 

Ástæða #4: “Þetta verður erfitt, ég hef ekki tíma í svona vesen” 

Woman-Waiting-276x300

Mitt svar: Með leiðarvísi tilbúin fyrir þig frá A-Ö, réttu tólin, aðgang að næringar- og lífsstílsráðgjöfum og stuðningshóp með útvöldum konum sem eru að ganga í gegnum það sama og þú…er það virkilega of erfitt?

Ég veit þú ert upptekin og því gef ég þér alltaf 3 nákvæm skref að taka á næstu 14 dögum og gef þér tilbúna leiðarvísa með allt sem þarf svo þú þurfir einfaldlega bara að prenta út og nota! Ég veit líka að þú getur ekki staðið endalaust lengi í eldhúsinu svo ég bókstaflega segi þér hvað á að borða og hvenær og hef útbúið hollráð til að spara þér tíma í eldamennsku. Þú færð einnig innkaupalista í okkar 3 vikna Nýtt líf og Ný þú matarhreinsun svo einfaldara verður það ekki.

 

„Það kom mér á óvart hvað þetta er í raun auðvelt að tileinka sér nýtt mataræði. “ Viktoría Birgisdóttir, Nemi

„Ég hef farið framúr þeim markmiðum sem ég setti mér varðandi þyngdartap og gerði það fyrirhafnarlaust og léttist um 12 kg á aðeins fyrstu fjórum mánuðum þjálfunar. Öll líkamleg vandamál hjá mér hafa lagast og svefn minn hefur aldrei verið betri.” – Dagmar kirstjánsdóttir, Leikskólakennari

 

Ástæða #5: “Þetta er of dýrt”

Mitt svar: Sem móðir hefurðu eflaust lent í því að setja aðra í forgang á undan sjálfri þér og því er trúlega smá pínlegt að vissu leyti að fara að fjárfesta í þér og þinni heilsu. En ímyndaðu þér ef þú værir svo full af orku og kæmir meira í verk, værir léttari á líkama og sál og laus við leiðinda verki í líkamanum, heldurðu að þú myndir gefa meira af þér til þinna nánustu?

Líttu á þetta sem langtímafjárfestingu í þér og leið til að gefa betur af þér til þín og þinna, því það er líka dýrt að missa af því lífi sem þér var ætlað að lifa, fulla af orku, vellíðan og gleði.

Með því að fjárfesta í sjálfri þér núna getur þú komið í veg fyrir frekari kostnað í framtíðinni eins og megrunarbækur, bætiefni sem þú þarft ekki, lyfjakostnað o.s.frv. Einnig eru stéttarfélög og starfsmannafélög að styrkja Nýtt líf og Ný þú þjálfun. Hafðu samband við stéttarfélagið þitt.

 

„Í dag pæli ég ekki í ákvörðuninni og fjárfestingunni að ganga í Nýtt líf og Ný þú. Því það kostar líka að vera heilsulaus og að vera í öllu þessu brasi. Svo þetta kemur útá það sama”. – Guðný Leikskólakennari

„Þetta án efa sú allbesta fjárfesting sem ég hef farið í og upplifi heilbrigða sál í hraustum líkama og er það gulls gildi.” Ásgerður Guðbjörnsdóttir

„Þegar ég lít til baka á fjárfestingunna hugsa ég ekki um þetta sem kostnað sem slíkt heldur frekar hvað ég er að spara til framtíðar hvað varðar heilsutap og álíkan heilsubrest sem ég vill ekki eiga þátt í!” – Jóna Fanney Kristjánsdóttir, Bókari og háskólanemi

„Þegar ég lít til baka á fjárfestingua sé ég ekki eftir krónu, besta sem ég hef gefið sjálfri mér í mörg ár.” – Dagmar Kristjánsdóttir, Leikskólakennari

„Ég fæ hrós á hverjum degi fyir þessa frábæru rétti frá bæði börnum og eiginmanni. Þetta var Besta fjárfesting sem ég hef gert til þessa svei mér þá.” – Katrín Waagfjörð

 

Ekki leyfa einhverri rangri ástæðu að halda aftur af þér. Ef þú ert að íhuga að vera með í Nýtt líf og Ný þú þjálfuninni svo þú getir komist frá verkjum, ósátt í þínu skinni og þrjósku aukakílóum fyrir fullt máttu fara hér og skrá þig í þjálfun, áður en þú missir af.

Segðu já við Nýju lífi og Nýrri þér hér

Tíminn líður hratt og af hverju ættir þú að setja sjálfa þig og heilsu á hakann örlítið lengur? Í sannleika sagt þá gætu lífsgæði þín og heilsa verið í húfi, en það er eitthvað sem við viljum huga að eins og við mögulega getum!

Nú er því tækifæri til að hleypa ástinni örlítið meira að og finna hvað virkilega hentar þínum sérstæða líkama, þú átt skilið að lifa besta lífinu sem þú getur lifað.

Gefðu þér tíma, settu þig í forgang og segðu já við þinni hjartanslöngun

Skráðu þig hér

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

 

P.S.Ertu ennþá óviss? Viltu spjalla við mig í síma? Ef svo er, pantaðu viðtalstíma með mér og við munum fara yfir það hvað getur verið að hindra þig að árangri og séð hvort Nýtt líf og Ný þú þjálfuninn sé rétt fyrir þig

Bókaði 15 mín tíma hér 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *